mánudagur, október 11, 2004

Helgarfrí ný upplifun.

Ein lengsta helgi í manna minnum hér í Skanderborg. Jú Dagmar átti kærkomið laugardagsfrí frá vinnu. Og fjölskyldan gekk sameinuð til verkefna helgarinnar….já það var ekkert minna. Í meira en fjóra mánuði hefur “eldri dóttir mín” unnið alla laugardaga. (“dóttir” þar sem ég hef nú tekið nánast/næstum/hérumbil yfir allt það sem viðkemur heimilishaldinu) Þannig að laugardagurinn var tekin fyrst í stað, rólega en síðan var haldið inni Aarhus. Já brunað var á göngugötuna og þar strollað niður eftir öllu, þar til við komum inní Skóbúð bæjarins. Já þar fundu Anna Marín og Dagmar stígvél sem Anna Marín hefur nú rætt um í nokkra daga að sig vanti. Þau eru nú komin í hús og hún getur nú skundað af stað eins og hinar stelpurnar í bekknum. Í sömu búð fundust síðan kuldaskór á Axel Orra, sem var afmælisgjöf frá föður Afa hans og ömmu. Já ekkert minna en GoríTex skór á drenginn, loðfóðraðir með öllum græjum.

Hinsvegar þurfti margoft að semja við drenginn inní skóbúðinni um að máta. Hann hafði EKKI áhuga. Hann fékk tyggjó, loforð um sódavatn, sögu um skóna ofl til að telja honum trú um að máta….og það gerði hann að lokum og við fengum skó sem pössuðu. Já og með tveggja ára ábyrgð. Já það er neytendaverndin svo lengi sem maður kemur með kvittun….2 ár takk fyrir.

Sunnudagurinn fór í tiltekt í geymslunni, nú er búið að stilla verkfærum og öðru upp. Já og frystikistan komin í gang. En það virðast nú einhver tæknilegir örðuleikar með hana. Hún hefur aldrei verið í Danmörku fyrr, og finnst svo heitt hérna hjá okkur að hún nánast neitar að minnka frostið….yfir 30 gráðu frost. Er nú svona í hærri kantinum segja fróðir menn. Kjúklingurinn yrði þetta hálfan mánuð, þrjár vikur að þiðna…..það er kannski rétt að fara að huga að jólamatnum. Tekin var síðan ferð til Horsens og kíkt í eina húsgagnabúð, já sjónvarpssófi er það sem heimilisfólkinu vantar nú, og útlit er fyrir að við höfum fundið þann rétta.

Í tiltektinni í gær áttum við allt eins von á viðbótarferð á slysavarðstofunna. Axel Orri í húlahopp úti á stéttinni náði ekki snúningnum, datt á andlitið, stóð upp sótrauður í framan og blóðugur um munninn. Já leit ekki vel út (fyrir þvott) en síðar kom í ljós að hann hafði fengið góða/stóra rispu fyrir ofan efri vörina. Sem rann kröftulega úr, það jafnaði sig og hann líka. Það var ákveðið að fara ekki með hann í gifsinu á slysavarðstofuna til að sauma (þurfti reyndar ekki). Það hefði líka verið líklegt að félagsmálafulltrúinn hefði komið fljótlega í heimsókn, og kynnti sér fjölskyldumálin.

Kristinn alltaf á vakt.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Counters
Web Site Counter