fimmtudagur, október 21, 2004

Silfurbrúðkaup hjá vinnufélaga.


Það var ekkert minna á fætur fór ég hálf sex í gærmorgunn til að mæta í Silfurbrúðkaup. Já það er von að maður hváii…en hér um slóðir er mikið gert úr því að eiga silfurbrúðkaup. Það er jú langur tími og bera að hafa í huga að það þarf úthald til að halda slíkan tíma út. Nema hvað, hér er það þannig að á Silfurbrúðkaupsdegi mæta vinnufélagar og vinir heim til viðkomandi. Segja má að dagurinn sé allur tileinkaður “Endurbrúðkaupi” því umfangið og tilstandið minnir helst á brúðkaupsveisluna sjálfa.

Ég var sóttur á stoppustöðina við heimilið 06:15 brunað var af stað heim til vinnufélagans, Bente. Hún býr í um 15 mín frá okkur. Þannig að um hálf sjö voru allir mættir á bæjarbenzínstöðina í þorpinu sem hún býr. Þangað mættu þrettán vinnufélagar hennar ásamt mér. Fórum við síðan í halarófu að heimilinu hennar þar sem úti biðu vinir og ættingjar. Í svarta myrkir og kulda en þó mikilli stillu. Stóðum við með sprittkerti og söngtexta. Klukkan sjö byrjaði litla lúðrasveitin sem á svæðinu var að spila. Samanstóð sveitin af fjórum ungum spilurum. Og þaut fyrir hugskotsjónum mér sú tíð þegar ég sjálfur stóð með kalt munnstykkið og kalda fingur og spilaði í lúðrasveitinni..jeminn eini.

Birtust nú hin 25 ára gömlu brúðhjón í dyragættinni. Og stóðu þar glöð á svip. Var búið að útbúa stórt mark, já svona næstum eins og í fótbolta nema það var bara ramminn, stöng, slá, stöng, var hann blómum skreyttur og á miðri slánni var stórt rautt hjarta sagað og málað í spónarplötu.
Þarna stóðu þau undir eins og í myndaramma. Áletrað fyrir ofan höfuð þeirra til hamingju.
Voru nú sungin þrjú lög útá gangstéttinni. Síðasta lagið fjallaði um það að nú værum við komin í kaffi til að fagna með þeim. Var okkur síðan boðið til stofu. Gerði ég mig líklegan til að troðast fyrstur í kaffið og kökurnar..en þess var nú ekki þörf.

Þau sögðu gangið til stofu og heilsuðu öllum með handabandi í dyragættinni. Þegar inní stofuna var komið, var búið að dekka tvö 25 manna langborð.Þau höfðu gjörsamlega tæmt stofuna, hent út sófasettinu, borðinum, mublunum og öllu saman. Myndir á veggjum en langborðin blöstu við. Þar settist maður niður. Kaffi og te á borðum og skyndilega birtust rúnstykki á bakka, ostar, vínber…og að sjálfsögðu Bitter flöskurnar. Lítil staup á borðum og allt klárt. Já og klukkan maður lifandi. Klukkan var 07:30, ég taldi 46 manns í stofunni allir komnir til að fagna.

Þetta var ótrúlega skemmtilegt já afhverju ætti maður ekki að gera mikið úr þessum tímamótum, það er ekki spurning. Um kvöldið var síðan búið að panta sal þar sem nánustu ættingjum og vinum var boðið til veislu. Þar átti að dansa, drekka og slást…nei líklega ekki íslensk veisla…nei allt nema þetta að slást.

Klukkan hálf níu byrjuðu gestirnir að týnast út og til vinnu eða heim til sín. En það var ljóst að brúðarparið vissi af þessu. Þau hafa vaknað um hálf sex leytið til að hella uppá kaffi og fara í bakaríið. Þessi siður er víst stundaður hér um alla Danmörku. Og þykir gríðarlega merkilegt, sem það er. Vinnufélagarnir slógu saman í gjafkort í Den Danske Bank, ávísun uppá kr. 700,- Maður mátti gjörasvovel að punga út 25 krónum, vegna þessa...en ég sé nú ekki eftir því.

Kristinn Bitter.


0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Counters
Web Site Counter