sunnudagur, nóvember 14, 2004

Matarboð.

Héldum stórglæsilegt matarboð í gærkvöldi fyrir þau Hanne, Bente, Slawek og Morten. Bífóliðið sem ég vann með. Gekk glimrandi enda töfraði Dagmar fram hvern réttinn á fætur öðrum. Og þau voru bara öll ánægð með boðið. Buðum í fordrykk og franskar...nei ekki franskar þetta passaði bara svo vel... fordrykk klukkan 1800 og þau sátu hér til ellefu. Vorum með roastbeef sem lukkaðist vel, ístertu og kaffi og koníjakkk. Já allir sáttir. Þau komu hinsvegar öll með hlaup og nammi handa börnunum og hvort þetta sé siður hjá dönum eigum við eftir að fá staðfest. En þetta virtist vera form sem þau þekktu.

Slawek færði Dagmar blóm og kom einnig með slikkeri í fyrir börnin blessuð litlu...sem voru eins og ljós og Anna Marín hafði stjórn á bróður sínum meðan gestirnir voru. Svo þetta virkaði sem gjörsamlega fyrirmyndarfjölskylda allann tímann.

Kristinn aðstoðarbryti.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Counters
Web Site Counter