Gestir í borginni.
Já maður fer allveg úr sambandi þegar maður eldar fyrir fleiri en fjóra. Já maður er kominn allveg í gírinn og síðan koma gestir. Og allt í einu verð ég að útvíka hugsanir mínar eins og ég sé kokkur í stóru mötuneyti. Nei, nei ekki það að þau borði svo mikið, en þetta verður að vera vandað. Karl faðir minn og móðir eru hér í heimsókn um þessar mundir. En faðir minn átti einmitt afmæli í gær hérna hjá okkur. Ég og Axel Orri keyrðum til Kaupmannahafnar og sóttum þau sl. föstudag. Já Ljónið fór greitt yfir og ferðin gekk vel. Tveir og hálfur tími í keyrslu hvora leið.
Við komum síðan við hjá Mosdal fjölskyldunni í Kaupmannahöfn bróður Dagmar og Co. Og þangað keyrði maður eins og innfæddur. Já keyrði þvers og krus í stöðugu símasambandi við bróðurinn sem leysti allann minn vanda.
(Rangar upplýsingar nefnilega á kortinu sem ég hafði, mun setja mig í samb. við útgefandann)
Nú Axel Orri er með kvef og hóstar hér eins og hann sé á prósentum við það. Fór með hann til læknis í dag, sem hlustaði hann og skoðaði. Úrskurður læknisins,...þú ert lélegur sjúklingur það finnst ekkert að... Við löbbuðum síðan út alsælir feðgarnir. Það er víst að ganga flenza hér um slóðir núna einmitt, svo þetta kom lækninum ekki á óvart.
Annars er allt með kyrrjum kjörum maður er jú að hafa ofanaf fyrir gestunum, en þau Anna Marín og Axel Orri eru alsæl að hafa afa sinn og ömmu hér. En tímin líður hratt eins og alltaf...en við það verður ekkert ráðið.
Elduðum í gær í tilefni afmælisins og sem "general-prufa" fyrir jólin Pekíngg-Önd, sem heppnaðst svona líka ljómandi vel. Ég og aðstoðarkokkurinn DÓH, hjálpuðumst að. Það var því ákveðið í gær að slaufa hamborgarahryggnum í ár (enda er hann alltaf hér á sunnudögum) Og nú verður elduð Önd. Já það verður spennandi hér í andabæ.
Kristinn með foreldrum sínum.
ps. þetta með að lesendur geti sett athugasemdir við pistlana er ekki að gera sig í augnablikinu...tæknin er eitthvað að stríða okkur, en unnið er að viðgerð...

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home