Síðbúið Nei.
Já maður hefur nú verið spurður aðþví hvort fjölskyldan fari nú ekki til Íslands til jólahalds. Forvitnir Danir sem allt vilja vita, en það er nú aldeilis ekki. Öll jólakortin farin af stað og Öndin komin í afþýðingu. Já úr djúpfrystinum er hún nú að þíðast. Við grilluðum nú bara hér á veröndinni í gærkvöldi eða öllu heldur húsbóndinn. Já það rifjaðist upp grillstemminginn sem var í sumar. En svalt var við grillið annað verður nú ekki sagt.
Sífellt fleiri jólatré sjást inní stofum Dananna, svo þetta fer nú allveg að bresta á. Ég hef verið í vinnu alla þessa viku og mun nú mæta einnig á sjálfan Þorlák. Já já vinna vinna....allt inná bók. Ef til vill tekst mér að ná fram "jóla-streitunni" þar sem mínum jólagjafakaupum er ekki fullkomlega lokið. Ég hef ennþá möguleika á morgunn, allt opið til 19 en Kringlurnar til tíu. Síðan allt harðlæst á aðfangadag, það dettur engum lifandi manni í Danmörku að vinna þá. Svo ekki verður verslað fyrir hádegi þann daginn....
Annars fékk ég bréf í póstinum í dag sem ég hef beðið í þó nokkurn tíma, já eða þannig. Ég var náttúrulega að sækja um á fullu bankastörf og ýmislegt annað hér fyrir nokkrum vikum og fékk viðstöðulaus neibréfin til baka. Fékk ég svo ekki bara en eitt síðbúið "nei-bréfið" en það var meira í bréfinu. Og þar stóð í lauslegri þýðingu "þar sem umsókn þinni um auglýst starf hefur verið hafnað og við ráðið annan verðum við að hryggja þig með því að í þú kemur ekki til greina. Hinsvegar viljum við bjóða þér í samtal hingað í bankann til að ræða hugsanlega aðra möguleika"
Já maður lifandi hér kom bara óvænt samtalsboð um hugsanlega, mögulegt starf. Og ekki nóg með það heldur kom ýtarlegt kort af þeim stað sem ég skal mæta þann 6.janúar nk. Og það var meira því fest við bréfið var ekki bara eitt stykki bílastæðamiði til að þurfa ekki að borga í stöðumælin. Já flott skal það vera. Í bréfinu stóð síðan...."athugið viðtalið getur tekið allt að tvo til þrjá klukkutíma" Svo það var eins gott að þeir sendu stöðumælamiðann með. Ekki veit ég hvað menn vilja ræða í svo langan tíma. En spennandi verður það.
Og hvað ætlar þá Kristinn litli að gera jú , það er nú rétt að kanna hvað mennirnir eru að hugsa en í sömu póstsendingu kom einnig bréf frá Háskóla Íslands sem sendi mér gögn fyrir umsókn mína í Aarhus Universitet. Sá á kvölina sem á völina og flytur til mölina.
Kristinn Jóla Andi.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home