miðvikudagur, apríl 27, 2005

Cirkus Arena

Fórum í kvöld í sirkus, já ekta sirkus þar sem allt var í boði. Allt það góða sem einkennir slíka skemmtun. Poppkorn, kandíflos, fílar og fólk. Enda sýndu listamennirnir frá t.d. Rúslandi að þeir eru bara mannlegir og allt getur gerst í showinu, opið beinbrot og yfirlið...ha nei það var nú reyndar ekki.

Þó varð ég var við að mæðgurnar misstu úr slag og andardrátt í amk tveimur atriðum. Og þannig á sirkus einmitt að vera. Ég heyrði síðan sjálfan mig meira að segja upphátt "shittturinn maður" svona þegar ég varð hvað mest undrandi. Fílar eru ekki lítil dýr....

Á mínum ungdómsárum var Billy Smart goðsagnarpersóna. Sirkus sem allir sátu stjarfir yfir í sjónvarpinu og horfðu á. Það var ekki fyrr en í kvöld þar sem upplifuninn var læf, beint í æð. Að sitja þarna sjá fílana, hestana og dýrin og finna "orginal" lyktina af öllu saman var frábært. Já maður hugsaði bara um gamlárskvöld og reketturnar hans afa, þarna á sekúndubroti.

Svo hugfanginn var ég af tilhugsinni um sirkus lífið þar sem húsvagnarnir stóðu fyrir utan tjaldið að ég kíkti á planið fyrir sumarið. Vantar kannski mann í sumar. Jú það er ekkert öðruvísi en það að sirkúsinn verður með sýningar í allt sumar og t.d. í mai er planið hjá þeim að vera með sýningar um alla Danmörku á hverjum einasta degi...þokkaleg keyrsla þar á ferðinni.

Ég er búinn að týna til appelsínurnar sem ég ætla að æfa mig með á morgunn, keilurnar á föstudaginn og postulínið á laugardaginn...ég skal ná þessu.

Kristinn Trúður.

sunnudagur, apríl 24, 2005

Helgin sem var.

Dagmar að vinna um helgina en það stoppaði okkur ekki að rjúka af stað strax eftir vinnuna og í mollið. Já arkandi froðufellandi í hverja fatabúðina á fætur annarri, með börnin á sitthvorri hendinni. Kvartandi og kveinandi, Er ekki hægt að fá íS ?
Ég þarf að pissa ? Æii heyrðu Kristinn hinkraðu ég þarf aðeins að skoða þetta betur. Pabbi ég þarf aftur að pissa ? Sjáðu er þetta ekki smart?
Kræsturinn, kræsturinn.

Ég löðursveittur fann svitann á bakinu renna niður eftir hryggnum, skyrtan herptist utan um mig. Skórnir farnir að meiða mig á hælnum og mér fannst ég vera ógreiddur. Er verið að horfa mig, fell ég ekki inní mynstrið. Sveittur á enninu, með bæði börnin næstum grenjandi. Hún kominn með fullar hendur fata og strunsar að kassanum. Afhverju í fjandanum er þetta fólk ekki heima hjá sér. Afhverju þurfa allir að vera að versla núna. Á þetta fólk sér ekkert líf.
Eru allir með kaupæði, hundaæði er að koma heimsstyrjöld ?
"Jæja Kristinn minn, þetta gekk nú bara vel ha já já,ljómandi
fínt og börnin bara ánægð ha"

Ég veit það ekki, stundum bara dettur maður niður í hyldýpið, sér allt svart, finnur enga löngunn til að labba, leita, kaupa. Vill heim, vill heim í Caffe Latte með örlitlu dassi af súkkulaði í froðunni.Gægjast í tímarit, horfa í sólina og láta andvarann leika um sig á veröndinni. Setja í Latteð örlítið dass af Grandi. Já þetta líf, þetta líf.... "Kristinn, Kristinn, KRISTINN ! ! ! " Viltu gjörasvovel og hjálpa mér með þetta maður, hvað ertu að hugsa maður".
Æææiiii ég getikki meir, hleypið mér heim.


"jæja elskan, þá erum við nú búinn að kaupa inn, vilt þú ekki kíkja á eitthvað sumarlegt á þig, elskan". Guð minn almáttugur. Á þessu ekki að fara ljúkja. Ég svar með tón, þannig að það fer EKKKERT á milli mála að minn tími er kominn, farinn, búinn. "NEEEEEEEEEEEEEEEEEEIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIII, ÉG VILL FARA HEIM". "Hvaða hvaða er þetta" jæja þá, við skulum þá bara koma.

Ég labba af stað, hratt, nærbuxurnar eru orðnar klessar við rassinn á mér, ég finn svitann koma útí gallabuxurnar, sveittur undir höndunum. Og lófarnir eru lafmóðir af pokaburði. Það er eins og allt fólkið í Mollinu ætli að labba mig niður..út út út út....ég hugsa um sálfræðingana í fjölskyldunni á ég að hringja fá aðstoð, fá huggunn..ég hugsa um verðið á langlínusamtölum og hætti við. Sest í bílinn, sett útvarpið í gang og keyri heim.

Kristinn í gömlum fötum.

fimmtudagur, apríl 21, 2005

Nöfnin okkar og Derrik.

"Nej, nej en hvað þetta er kúl, er þetta virkilega rétt, HEITÐI ÖLLUM þessum nöfnum" sagði Derrik nágranni okkar. Þar sem ég stóð og límdi nöfn allra fjölskyldumeðlima á póstkassann. Já maður verður nú eitthvað hérna áfram svo það er rétt að merkja póstkassann....nei annars, það var bara mitt nafn lengi vel á kassanum. Og eftir að "mikilvægar" sendingar fóru að fara twist og bazt. Þá ákváðum við að endurmerkja. PóstApinn skyldi fá það óþvegið, og nú skyldi hann fá að lesa hvern einsta bókstaf á kassanum, áður en hann træði bölvuðum gluggapóstinum í kassann.

Hann nefnilega gerði sérkennilegt um daginn, núna í rúmnlega eitt ár hefur nafnið á Dagmar ekki staðið svörtum stöfum á kassanum. Það hefur hinsvegar ekki haft nein áhrif allur pósturi til hennar hefur borist...þar til um daginn.... þá ákvað hann að pósturinn til hennar frá sveitarfélaginu skyldi endursendur. Já í heilt ár hefur pósturinn skilað sér, og sér í lagi reikningarnir.

Nú brá svo við að Mr. Postman neitaði að setja í kassann miðann til hennar. Ekkert nafn, enginn póstur. En tveimur dögum seinna setti hann í póstkasann ítrekun frá Sveitarfélaginu um að ógreiddan reikning stílaðan á Dagmar...kræsturinn.

Derrik stóð yfir mér þar sem ég límdi nöfnin okkar á kassann staf fyrir staf, áttatíuogsjö stafir takk fyrir ég skrifa þetta aftur 87 stafir. Fullt nafn á öllum heimilismönnum (mínus Friðþjófur). Og þarna stóð ég og Derrik og síðan næsti nágranni því Derrik kallaði í hann og bað hann að koma. Þarna stóðum við og horfðum á nöfnin á Íslensku fjölskyldunni. Þeir höfðu aldrei séð annað eins. En þó rifjaðist upp fyrir Derrik og hann hélt því fram að í gamla daga hefðu einmitt nöfn dana verið rituð með sama hætti og íslensku nöfnin okkar. það er sonur og dóttir. Þetta fannst honum æðislegt og þetta ætti nú að taka upp aftur hér. Ekki allir bara Nielsen, Larsen, Jensen og Hansen.

Það má skjóta því hérna inn að Derrik og fjölskylda var að fá sér bíl einmitt í dag, nýlegan tja það er spurning, Toyota Corolla með álfelgum...árgerð...það er ekki málið. Málið er að hann fer á milli staða segir Derrik...en hann fór einmitt á bílnum til þýskalands í morgunn...held ég, sennilega ef hann hefur komist...bíllinn verður fimmtán ára núna í júlí.


Kristinn Nielsen Larsen Corolla.

þriðjudagur, apríl 19, 2005

Barnauppeldi.

Anna Marín kom heim með bréf úr frístundarklúbbnum fyrir nokkru síðan, það hefur verið ákveðið að fara í ferð. Já allir krakkarnir sem eru 10 og 11 ára fara í ferðina. Anna Marín hefur ekkert sérstaklega sýnt þessu áhuga en fékk þó mikla hvatningu frá leiðbeinendunum í Frístundarklúbbnum um að koma með. Og við vorum svona mátulega hress með ferðalagið fyrirhugaða. Þannig að þegar hún sýndi þessu ekkert sérstakan áhuga þá sögðum við bara "nei, þú ferð bara ekkert". Hún fór síðan með þau skilaboð til leiðbeinandans að hún færi ekki með. Hún kom heim og þrýstingurinn hafði aukist, foreldranir beðnir að hringja í leiðbeinandann til að fá frekari skýringar á ferðalaginu, umræðan fór í fullan gang á heimilinu. Þannig á endanum ákváðum við foreldrarnir að gefa eftir....með trega þó...græna ljósið kom.

Ég hugsaði um það í tvo daga eftir að við gáfum græna ljósið hvort þetta væri rétt, jú líklega, ferðalag lífsins..líf og fjör, steminginn, söngur leikir og gleði. En það kallaði líka fram þá tilfinningu að við Dagmar urðum að segja eitthvað, það var eitthvað ósagt um leið og "græna ljósið kom". Það varð því smá "familí míting" Við settumst niður með Önnu Marín og skýrðum út afhverju við höfðum neitað fyrst, og svona frekar verið á því að hún færi ekki. Málið er að ferðalagið er í þrjá daga. Það á að sofa þrjár nætur í ferðalaginu. Og það fannst okkur ekkert sérstakla æðislegt...hér í Skanderborg hafa komið upp tilfelli og er núna til meðferðar hjá lögreglunni, kynferðisleg áreitni viðurlegs tónlistarkennara í bænum. Það koma fram hjá "gömlum" nemanda að fyrir nokkrum árum hefði tónlistarkennarinn leitað á nemandann....svo kom bara í ljós að núverandi börn voru að lenda í þessu sama...enginn hafði sagt neitt..fyrr en "gamli" nemandinn kom í ljós, enginn hafði vakið athygli á neinu...allir voru á sínum stað í sorg..En allt í einu brast múrinn og margra ára misnotkun misalvarleg virðist vera staðreynd.
Þetta eru einfaldlega sömu hlutir að hafa verið að koma í ljós á Íslandi, sorglegt mál einmitt í tilfelli þess sem allir treysta. "Frístundar-leiðbeinanda" útá landi. Þetta er allstaðar og maður veit aldrei, hvort, hvenær eða hver er á ferð.

Allar þessar vangaveltur leituðu á okkur áður en svarið kom um þriggja nátta ferðalag með skólafélögunum. Við fórum því yfir þetta með Önnu Marín ræddum hætturnar sem eru svo víða....og enginn segir neitt.
Hún sagði "nú skil ég, nú er allt svolítið skýrara". En er það raunverulega, maður veit það ekki við höfum allavega reynt að lýsa málunum, aðstöðunni sem upp getur komið. Trúnaðarsambandi barna og foreldra. Við vonum að þetta fyrsta spjall okkar um þessi mál, sé vísir að veganesti. En það er svo margt sem er ótímabært að ræða við hana.

Hvar er handbókin um barnauppeldið ? Hún fæst ekki. Það er enginn bók. Bara maður sjálfur sem foreldri, bróðir eða systir, frændi eða frænka..vinur. Og hver er niðurstaðan, jú manni er ekki siðferðilega stætt á því að sitja hjá. Láta ekki vita, benda á, kvarta, kæra. Það er ófyrirgefanlegt, ekki endilega vegna manns sjálfs, heldur vegna þeirra sem stöðugt verða fyrir barðinu í þögninni.

Séra Kristinn.

laugardagur, apríl 16, 2005

Össur Skarphéðinsson.

Ég gekk í Alþýðuflokkinn þann 21.febrúar 1991. Ég hef verið flokksbundinn í Alþýðuflokknum síðan þá. Ég hef unnið ýmis trúnaðarstörf í þágu flokksins. Og sannfærst betur og betur eftir því sem ég eldist að málstaður jafnaðarmanna sé skynsamlegur, heiðarlegur og réttlátur málstaður. Annar afi minn var líka jafnaðarmaður og hinn reyndar líka, en hann var þó aðeins rauðari en ég og hinn afi minn.

Ég er þeirrar skoðunnar að nú í baráttunni um formanssætið í Samfylkingunni þá sé rétt að Össur haldi áfram sem formaður. Össur er umdeildur og þykir mörgum að hann hafi stígið nokkur feilspor í opinberri umræðu, hann hefur verið sakaður um óstöðugleika í afstöðu til mála og ýmsir tala um skort á trausti í hans karakter.

Ég er ósammála þessu. Hann er öflugri en áður, hann hefur vaxið að verðleikum. Og hefur þrátt fyrir allt náð flokknum á þann stað sem hann er í dag. Hann á stórann þátt í því sem áunnist hefur.

Og síðan hitt hann hefur áhuga á fólki, hann hefur fylgst náið með okkur hér í Danmörku og við höfum rætt ýmis mál undanfarin misseri. Síðast í gær hringdi hann í okkur og ræddi um baráttuna og stöðu mála.

Össur þú hefur minn stuðning.

Kristinn Solrunn.

laugardagur, apríl 09, 2005

Vinnuálagið eykst.

Dagmar er komin í helgarfrí með fjölskyldunni og svo er að sjá hvað henni tekst að vaka marga tíma. Já hún er uppgefin er að ná sér eftir London reisuna og allt það. Fyrsta dagurinn í langann tíma á morgunn sunnudag. Vann í dag en frí á morgunn. Heilög stund hér allann sunnudaginn líklega. Ég verð því að reyna sýna tillit bjóða í nudd og heilun. Samhliða þessu fara að aukast verkefnin hjá mér í skólanum, það syttist í annan endann á önninni og nú eykst hraðinn og stemminginn.

Nú eru börnin farin að vera meira útivið og það er farið að sjást í nágrannana sem eru að vakna af vetrardvalanum. Anna Marín var einmitt úti hér ásamt bróður sínum en þá kom nágranna stelpann til hennar. Dóttir Kurts. Og sagði "æðislegt...en hvað ég hlakka til sumarsins þá verður mikið fjör og hægt að fara í brennó og svoleiðis leiki svona rétt eins og í "gamla daga" eða eins og var í fyrrasumar. Sagði stelpan, Anna Marín tók undir þetta enda voru margir skemmtilegir boltaleikir hér í fyrraumar frameftir kvöldi.

Skyndilega kom sólskinsdagur, allir krakkarnir úti að leika svo Anna Marín ákvað að fara og bjóða nágrannavinkonunni í boltaleik, hún gekk áleiðis og bankaði. Til dyra kom dóttir Kurt. Anna Marin "Jenní kemurðu ekki út í brennó ? " Og þá kom svarið "Anna Marín hvað heldur þú að ég sé, ég leik ekkert lengur með litlum krökkum" Anna Marín varð svolítið hissa og spurði hana "Varstu ekki að tala um daginn að það væri svo skemmtilegt þegar sumarið kæmi og allir kæmu út í boltaleik ?"

Eitthvað brá Jenný við þessa áminningu en svaraði síðan "Sko, Anna Marín ég var tólf ára þá, ég er sko þrettán núna." En Anna Marín var ekki á því að gefa eftir og minnti hana á að þetta hefði nú bara verið í síðustu viku sem hún hafði óskað sér boltaleik. Hin sagðist ekki mega vera að þessu og yrði að fara inn. Hinir krakkarnir fóru í boltaleik og skemmtu sér vel.

Kristinn heilari.

mánudagur, apríl 04, 2005

Háskólinn í nýjum fötum.

Það var heldur betur breytt stemming á skólalóðinni í dag. Já heldur betur. Háskólasamfélagið fékk áður óþekkta, eða áður óþekkta stemmingu getur maður sagt. Sólin braust fram í dag með miklum hita, já því var spáð í gær að hitinn færi nálægt 20 gráðum. Það varð til þess að háskólastúdentarnir komu ýmist berleggjaðir í minipilsum og/eða berfættir í ermalausum bol. Já það á ekki að missa af einni einustu sólarstund. Jeminn eini....ég mætti sem fyrr í kuldaúlpunni og trömpurum, heitt, jú jú mér var svosem heitt en ekki nægilega til að koma á sandölunum mínum. Maður er nú ekki svona snöggur að skipta yfir í sumarfatnaðinn.

Annars var ég eitthvað slappur í dag, uppsöfnuð spenna og þreyta síðustu vikna, einveran, ábyrgðin. Heilsan segir til sín, náði ekki að sitja allann fyrirlesturinn um Evrópumálin fór heim, með hausverk og óþægindi. Var sóttur af heimsborgaranum frá London.

Stelpan og strákurinn kominn með lit í andlitið af útiveru helgarinnar með föður sínum. En faðir þeirra er samt ennþá hálf fölur, já það tekur lengri tíma að
ná af stað litnum.


Kristinn Pils.

laugardagur, apríl 02, 2005

H.C Andersen 200 ára.

Já það má ekki líðast að minnast ekki hér á þann merkisdag sem nú er í Danmörkunni. Afmæli rithöfundarins ótrúlega. Hér undanfarið hafa verið sýndir sjónvarpsþættir um líf hans ofl. Við höfum líka fengið bæklinga inn um póstlúguna um H.C Andersen bjór, H.C Andersen kökur, -ís, -svuntur, -húfur, -íþróttaföt, -stílabækur, -mjólk, konfekt, -pottablóm og fleira. Já hann kom víða við blessaður, og ég sem hélt að hann hefði bara samið ævintýri nei ekki aldeilis.
Hér er hægt að fá allt sem kallinn gerði.
Og síðan var stærsta sjónvarpsútsending rétt að ljúka í ríkissjónvarpinu þar sem Tina Turner heiðraði kallinn, og sjálf Ólafía Newton John, eða bara Sandy úr Grease komu fram. Já heldur betur sýning í lagi. Nema hvað til hamingju með daginn elsku kallinn minn, og ætli maður lesi ekki eins og eitt ævintýri fyrir börnin.

Cristian Frið Asgjersen.

föstudagur, apríl 01, 2005

Danmörk er of lítil, Bretland er landið.

Ég vissi það, það hlaut að koma aðþví. Dagmar finnst Danmörk vera of lítil, henni fanst hún þurfa tilbreytingu og fór til London í gærkvöldi. Já dreif sig af stað stelpan. Fannst sem hún þyrfti að komast í heimsborgina í Bretlandi, hitta prinsinn, drottninguna og allt hitt stjörnuliðið.

Hún flaug frá Árósa flugvelli til London fyrir 3500 kr. íslenskar, já. Expexx hvað. Hún kemur vonandi aftur en það ætti að vera á sunnudaginn. Annars þurfti hún nú að taka inn nokkrar af sprengitöflunum sem móðir hennar hafði gleymt hér, því þrýstingurinn fór nú uppúr öllu hjá minni.

Málið var nefnilega að kvöldflugið til London er á þeim tíma sem nánast allar samgöngur í London eru að lamast. Já kvöld og næturþjónusta lestanna er takmörkuð í London. Sem þýddi að frá Standsted flugvelli varð hún að hafa hraðan á til að ná lestinni. Það kostar nefnilega um um 10 eða 12 þúsund að taka leigubíl frá flugvellinum. Já nokkrum sinnum hægt að fljúga fram og til baka fyrir þann pening.
Svo við vorum búin að kortleggja flugstöðina og hún átti að drífa sig í gegn. Sem hún gerði og missti þó af lestinni. Jammm, enginn lest sorrý... Hún fann þó fljótlega flugrútuna sem brunaði með hana í miðborgina. Um hálftvö var hún komin í miðborgina og í íbúðina sem hún leigði sér.

Ekki bara að kvöldflugið færi í hana, heldur fór nú þrýstingurinn, það er blóð-þrýstingurinn að segja til sín. Við brunnuðum því tímalega af stað úta flugvöll, tekur um klukkutíma að keyra þangað og þar sem við rennum í hlað á flugvellinum segir Dagmar "Heyrðu, heyrðu, Shitturinn maður, heyrðu ég man ekki pin númerið á símanum mínum".....díseskræsturinn panik ástand í bílnum, þar sem ég stansa þegar í stað fyrir utan flugstöðvarbygginguna, sem endar með því að upp að okkur keyrir danska lögreglan og spyr hvað við séum eiginlega að gera. "Ekkert" segi ég "Nú viljið þið þá gjörasvol að koma ykkur héðan í burtu og leggja á bílastæðinu, það er allgjörlega bannað að stoppa hér". Þess má geta að það var nákvæmlega enginn umferð eða bíll á svæðinu, ekki einn einasti nema við jú og lögreglan.

Við í svitakasti og ólgandi blóðið, vegna PIN númeraskorts, og hótana frá dönsku lögreglunni. Reyndum við að leysa vandann á svæðinu. Hún átti nefnilega að hringja í vinkonur sínar sem ætluðu að hitta hana þegar hún kæmi til London. Senda endalaus SMS og vera í sambandi. Símalaus á nýjum stað í heimsborginni London þar sem allt getur gerst. Litla sveitastúlkan með eldspýturnar frá Akranesi, var í sjokki.

VIð hringdum í þjónustuverið sem sagði okkur að hringja bara í fyrramálið..."já já herra hálfviti, hvernig á ég að hringja í þjónustuverið á morgun staddur í London með lokaðan síman vegna þess að það vantar pin númerið...halllóóóóó " og maðurinn í upplýsingum svaraði "ég veit það ekki, það er ekkert sem ég get gert, ég vinn ekki í þessari deild" Þar með lauk aðstoð þjónusversins.

Það var ekkert annað að gera en kveðjast, síðasta famlagið, í köldu næturhúminu kvöddumst við elskendurnir góðu og litu í hvort annars auga hinsta sinni þennan daginn. (Þetta var frumlegt). Ég steig benzínið í botn, brunaði af stað ég hafði rúman klukkutíma til að koma okkur Axel Orra heim, leita að pin númerinu og hringja í hana. Það tókst, fann númerið og hringdi í hana. Tuttugu mínútum fyrir loftför flugvélarinnar. Hún hafði að sjálfsögðu verið stoppuð í öryggishliðinu beðin að fara úr....skónum því þeir ýluðu. Hún hafði nefnilega ákveðið að fela gafal í hælnum...nei nei járnspenna yfir ristina ýlfraði.

Nú spókar hún sig alsæl í London, innan um heimsbúðirnar, veitingahúsin, leikhúsin og lystisemdir lífsins. Ég líkt og áður held saman heimilinu og sinni elsku litlu börnunum okkar. Sem fara snemma í háttinn, svo ég geti fengið mér einn sterkan fyrir svefninn.

Kristinn Lonlý Gæ.

Counters
Web Site Counter