Spánn 1.kafli
Er kominn heim sótsvartur. Kolsvartur....Það finnast víða “vitringarnir” já þeir eru líka á Spáni. Og hér kemur fullyrðing. Spánverjar eru margir afar “gáfaðir og framúrskarandi þjónustuglaðir”. Við leigðum bíl í Spánarferðinni, en það reyndist vera Ford Fjúsion. Já kraftlítill bíll, en þó nánast úr kassanum, ekinn þetta fimm þúsund kílómetra. Ljónið er sem eðalvagn í samanburði. Nema hvað þegar ég tók við bílnum, þá gat ég með engu móti áttað mig á því hvernig hægt vara að læsa bílnum án lykils, innanfrá. Ford hefur hannað “innhverfa og ósýnilega læsingu” í hurðarhúninum sem var bara of flókið fyrir mig....nema hvað þegar ég sá það að ég kunni ekki að læsa bílnum talaði ég við mannin á bílaleigunni. Og sagði honum að ég gæti bara ekki áttað mig á því hvernig hægt væri að læsa bílnum án þess að nota lykilinn.
Spánverjinn þjónustuglaði hófst nú handa við að leiðbeina mér með læsinguna....en áður en samtalinu lauk hafði ég tekið inn fjórar hjartatöflur, átta róandi og einn San Miguel. Samtalið var svona:
Ég: “heyrðu getur þú sýnt mér hvernig ég læsi bílnum án þess að nota lykilinn?”
Spánverjinn “þú ýtir sko á takkann á fjarstýringunni”
Ég: “veit það, en ef ég ætla ekki að nota fjarstýringuna, hvernig læsi ég þá bílnum, innan frá ?”
Spánverjinn: “Afhverju læsir þú ekki bara með fjarstýringunni?”
Ég: “jú það getur bara staðið þannig á að ég vilji læsa án þess að hafa lykilinn”
Spánverjirinn: “ég skil ekki, þú notar bara fjarstýringuna”
Ég: “Þú skilur hvað ég er að meina er það ekki, það er einhver takki inní bílnum til að læsa, án lykils, hvernig gerir maður það”
Spánverjinn: “Ég skil bara ekki afhverju þú læsir ekki bara með lyklinum”
Nú tók ég fyrsta skammtinn af róandi og sopa af Miguel.
Ég: “sjáðu til, það geta verið þær aðstæður að það þurfi að læsa bílnum án þess að hafa lykilinn”
Spánverjiinn: “Ég skil bara ekki hvaða aðstæður það gætu verið, þú setur bara lykilinn í skránna, snýrð og læsir bílnum”
Ég: “Ertu að grínast? Sjáðu nú til EF og hér kemur dæmi, ég væri í búðinni og börnin mín inní bílnum á meðan og skyndilega koma mjög vondir menn, og ætla að ræna þeim, börnin verða hrædd og vilja læsa bílnum, hvernig læsa þau bílnum?”
Spánverjirinn: “Það má aldrei læsa börn inní bíl, það er ólöglegt”
Nú fékk ég mér hjartatöflur, róandi og Miguel. Og ég fann hvernig blóðið fór að renna framan í andlitið og bláæðarnar að þrútna út......
Ég: “Heyrðu ég get bara ekki rætt þetta meira, ég þarf bara að vita hvernig á að læsa bílnum, það getur nú ekki verið svona flókið”
Spánverjinn: “það er ekki hægt að læsa bílnum án þess að nota lykilinn”
Ég: “okey, ég skil, ÞAÐ ER EKKI HÆGT AÐ LÆSA ÁN LYKILS?”
Spánverjinn: “Neibb, það er ekki hægt”
Ég: “Alltílagi þá er þessi bíll ekki nægilega öruggur fyrir mig og fjölskylduna og ég vill annan bíl. ég verð að geta læst bílnum”
Spánverjirinn: “ókidók þá bara finn ég annan bíl”
Ég: “Já og það er eins gott að þú finnir hann sem er mögulegt að læsa”
Spánverjirinn: “ég veit ekki hvaða bíl er hægt að læsa án þess að nota lykilinn”
Ég: “Heyrðu nú get ég ekki meir, hvar er yfirmaðurinn”
Spánverjirinn “Á skrifstofunni”
Ég: Takk fyrir ég er búinn að fá allveg nóg af þér og upplýsingunum frá þér.
Kláraði hér pilluskammtinn og San Miguelinn og labbaði af stað. Þar sem ég er kominn rétt hundrað metra, heyri ég Spánverjarnn gala á eftir mér “heyrðu, heyrðu ég veit það núna, ég veit það núna”
Ég snéri mér við tilbúinn að æða í mannin sem nautabani væri. En hreytti bara í hann af íslenskum sið “Heyrðu ég stend bara ekki í að hlusta á einhverjur háðsglósur og útúrsnúninga frá þér meira , þetta er allveg komið nóg og ég eyði ekki frekari tíma í þetta bull”
En Spánverjinn hafði greinilega hringt í Ford Forstjórann og fengið leiðbeiningar um læsinguna, dróg mig nú að bílnum, settist inní bílinn og læsti að sér án lykils. Síðan sat hann læstur inní bíl og brosti sem fábjáni væri útum rúðuna...sí sí.
Þegar hann opnaði sagði ég með viðeigandi tón “bíddu það er bara hægt að læsa án lykils, hvernig má þetta vera” Hann sagði ekkert. Svo ég hélt áfram....”ég lít svo á að þú sért allveg að fara biðja mig afsökunar á þessu bulli um ólæsanlega bíla”....Spánverjaranum sem gat ekki verið meira sama um viðskiptavini sína eða tilsvörin...sagði ”ha jú jú afsakaðu þetta” en bæði með tón og látbragði að hann meinti nákvæmlega ekkert með því, heldur mátti skilja.....snauta þú nú bara heim til þín túrista azni, það er komin síesta hjá mér.
Kristinn Túrist.