miðvikudagur, nóvember 28, 2007

Jólaskrautið í götunni.

“Halló þið þarna, halló” sá ég að nágranninn huxaði þegar ég var búinn að hengja upp jólaskrautið útí garðinum hjá okkur. “Heyrðu eruð þið frá Víetnam eða Tailandi?” já það er von það sé spurt, þvílík litagleði í garðinum hefur bara ekki sést. Við erum semsagt búinn að setja í hæðsta tréð okkar marglita jólaseríu. Og auðvitað er búið að koma “tæmer” svo ekki fari sekúndubrot af orkunni til spillis. Stundvíslega klukkann 1700 kveiknar og stundvíslega klukkann Ó tuttuguogfjögurhundruð slokknar. Serían fór í hæðstu hæðir og tréð sem eru fjórir metrar á hæð er vel skreytt. Enda fór svo að einn nágranninn kom og spurði hvort þetta væri innflutt sería. Litaseríu hafði hún aldrei séð. Og þegar við sögðum henni að við hefðum nú bara keypt hana hér í heimabæ okkar, þá rauk hún af stað og skellti sér á eina seríu,...eina seríu eða 50 ljós. Kræsturinn... Nú er hún búinn að lífga “svakalega” og “rosalega” uppá götuna okkar með að hengja þessar tutlur á litla tréð sitt sem líklega er 46 centimetrar ef maður teygir á því.... með EINNI seríu. Nei fyrr skal ég dauður liggja en ég tapi jólaskreytingarstríðinu í götunni, djöffulll skal ég skreyta. Og ég er búinn að setja seríuna mína í tréð og hverzu mörg ljós....já takkfyrir fjögurhundruð og átttatíu ljós takk fyrrir....480 stk. Eru kominn í tréð á tæmer. Enda er ljósadýrðin svo rosalega að við sofum orðið með lepp fyrir augum ef við förum uppí fyrir núll tuttuguogfjögur hundruð, og nágrannarnir ganga hér um með sólgleraugu. Ég skal vinna jólaskreytingarkeppnina í götunni þetta árið.


Kristinn Ljós.

föstudagur, nóvember 23, 2007

Helgarpistill - Veikindi.

Ég hef áður skrifað um það hversu svakalega ég verð alltaf veikur ef ég fæ kvef og hálsbólgu. Það er einhver erfðafræðileg gen sem gera það að verkum að ég verð fársjúkur og þarf virkilega mikla umhyggju og þjónustu. Þetta er bara eitthvað sem ég get ekkert gert að, svona er fólk bara misjanft. Í vikunni lagðist dóttir mín í flenzu og gat sig varla hreyft. Henni fannst samstundis skorta á allt umbyrðarlyndi foreldar sinna og samúð og langt og farsælt frí frá amstri dagsins var í órafjarlægð. Hún fékk þó að vera heima einn dag. Fékk hinsvegar lífræðilega staðfestingu á því að hitinn var nánast enginn. Hún varð frekar fúl. Síðan leið dagurinn og mikið kvartaði hún yfir skilningsleysi foreldra sinna. Sem ýmist sögðu henni að snauta þá uppí rúm, drekka jurtaseyði eða nota nefdropa. Ekkert af þessu fannst henni sérstaklega spennandi. Hún varð enn fúlari. Hélt langa ræðu um það að þegar pabbi hennar væri veikur þá þyrfti hún að veit slíka topp þjónustu í mat og drykk að annað eins fyndist bara ekki.

Nú daginn eftir veikindadaginn var hún svo rekin í skólann, sagt að klæða sig vel og koma sér af stað. Þann sama dag kvartaði hún áfram um ýmsa kvilla og skelfilega vanlíðan, en um kvöldmatarleytið tilkynnti hún hinsvegar foreldrum sínum að hún og vinkonurnar sem eru jú í heilsu átæki hefðu farið út og skokkað nokkra hringi seinnipartinn.....díseskræsturinn...hvað gerðist næst jú..móðir hennar missti andlitið og ég sá að froðan byrjaði að mótast í munnvikum hennar. Ósjálfrátt lyfti ég höndum fyrir bæði eyrun því nú var eins og almannavarnir ríkisins og þriðja heimsstyrjöldin væri að skella á.... FÓRSTU ÚT AÐ HLAUPAAAA?????? “já bara svona nokkra hringi sko” sagði dóttir mín en sá um leið að hún hefði betur sleppt því að taka umræðuefnið upp. Og svarið við spurningu móðurinnar var kolvitlaust....(það lærist með árunum hvernær maður á bara að þaga, svara stutt, eða færa sig inní stofu)...Móðirinn skipti litum, en sagði svo að hún vildi ekki heyra minnst á innflúenzu, hausverk og vanlíðan. Dóttirinn var hriklalega fúl og skilur ekkert í því að hún fái ekki meiri stuðning til að stunda úti-hlaup sem eru jú bara til að styrkja mann og byggja upp sko....

Kristinn Læknir.

þriðjudagur, nóvember 20, 2007

Dans.

Fórum í gærkvöldi í dansskólann okkar og hittum kennarann okkar sem var að enda við að vinna hér sigur í danskeppni í danska sjónvarpinu. Já líkt og bara í flestum löndum er keppni hér í sjónvarpinu sem heitir “Sjúk í dans” (vild med dans) eða “dancing star” Bretlandi eða “Hoblaskob danzchni” Rússlandi, nema hvað þátturinn gengur útá það að atvinnudansarar taka þekkta aðila úr samfélaginu og breyta þeim í dans-stjörnur. Þetta er danskennarinn okkar búinn að gera síðustu 15 föstudagskvöld og höfum við fylgst með henni auðvitað allann tímann. Síðan er kosið með EssEmmMEsss kosningu. En aldrei hefur maður nú fengið að vita hversu margir kjósa, en hún sagði einmitt í gærkvöldi að talið hefði verið að sjöhundruð þúsund SMS hefðu verið send í úrslitaþáttinn.... sjöhundruð þúsund. Það er slatti sko...nú þátturinn hefur fengið metáhorf en ca. 1,5 milljón horfði á úrslitin. Hún var að vonum ánægð. Og fyrir áhugasama þá er þetta danskennarinn og skoffínið sem hún dansaði við. Þekktur leikari hér í Danmörku.
http://www.bt.dk/article/20071117/underholdning/71117015/


Kristinn Kvikkstepp.

föstudagur, nóvember 16, 2007

Helgarpistill-Leikföngin.

Hver man ekki eftir dönsku-merkjamyndunum. Já þessar um Fríðu í Fiskamerkinu, Nóru í Nautinu og Boggu í Bogamanninum. Já þessar dönsku merkjamyndir voru eitthvað það “bláasta” sem fyrirfannst á sínum tíma á íslenskum vídeó-sjónvarpsmarkaði. Gott ef ekki nokkur eintök voru til á Ætttar-Vídeóleigunni (það er fjölskyldu Meistarans). Nema hvað þessar dönsku-merkjamyndir áttu það til að sýna það sem allir hafa svo gaman af ber brjóst og rosalega rassa. Og hafði maður löngum gaman af þegar maður heyrði sögur frá þeim sem höfðu séð þessar sóðalegu myndir. Og ekki var laust að margur maðurinn fengi fyrstu og mikilvægustu upplýsingar þess tíma um eðlileg atlot og athafnir fólks á “merkja-sviðinu”. Nú kveikir maður bara á MTv eða VH1 og tekur fyrir andlitið þegar hvert skak-atriðið skýst yfir skerminn. Þegar maður horfir með krökkunum á tónlistarmyndbönd. Þar sem allar helstu undistöðu-hreyfingar atlotanna eru sýndar. Skak, splitt og spínatt allt í einum pakka. Nú nú, var ég ekki að lesa grein í tímariti sem leggur til að foreldrar allra Barna á aldrinum svona 13 til 15 ára kaupi einfaldlega handa þeim í afmælisgjöf eða jólagjöf eitthvert skemmtilegt kynlífsleiktæki, svo þessir krakkar geti nú fengið réttar hugmyndir um sjálft sig og líkamann. Guð Minn Almáttúgur...Jeminn Eini....ekki hefur það hvarflað að mér eina sekúndu að fara í hannyrðaverslunina Losti & Leður & Funi, og kaupa slík tæki handa dóttur minni í afmælisgjöf eða jólagjöf....Fyrr mætti ég steindauður liggja.....Nei þá held ég að það sé betra að hún fari á bókasafnið og kíki í nokkrar blómaræktunarbækur og kynni sér efnið sjálf. Ekki minnist ég þess að hafa fengið sjálfur að gjöf nokkurt einasta slíkt tæki fyrir utan handjárnin sem konan mín notaði á mig þegar hún hlékkjaði mig við klósetthurðinna þegar ég varð ofurölvi og dó áfengisdauða eftir jólahlaðborðið þarna ´87, handjárnin hafa ekki verið notuð síðan. Nei þetta kaupi ég ekki handa dóttur minni. Hún verður þá bara að fá lánað Stjórnumerkjasafnið hjá henni móður sinnar.

Kristinn Fiskamerkinu.

miðvikudagur, nóvember 14, 2007

Textabrot no. 400

Jæja Guð blessi kónginn. Já nú er maður á fullu í kökubakstri það verða aftur ellefu sortir hjá mér í ár. Og húsið ilmar. Ilmur jólanna í hýbílum mannanna....fyrir utan gluggan eru snjóflyksur að falla til jarðar það er orðið svalt í Danmörku. Kosningar í gær og ekki var nú niðurstaðann beisinn...VinstriGrænir reyndar tvöfölduðu fylgi sig og hellingur frá þeim sest á Alþingi. Hinsvegar verð ég alltaf jafn undrandi á því hversu mikið umburðarlyndi Danir hafa fyrir Danska Fólkipartí. Sem er á skjön við flesta hvað varðar t.d. útlendingapólitík. Málstaðurinn er einhvernveginn svona. Danmörk fyrir Dani. Og viti menn það er hellingur að fólki sem styður þeirra þröngsýnu sjónarmið. Æii hvað maður getur nú orðið leiður yfir þessari umræðu. Enda hefur flokksformaðurinn sólarhingsvakt lífvarða í kringum sig alla daga, allt árið um kring.

Axel orðinn tannlaus og sagði stoltur að hann myndi samþykkja hverskonar verðlaun fyrir það afrek, hvort sem það væru pakka-verðlaun eða pjéninga-verðlaun. Já hann kippir í móðurkynið blessaður sonurinn.

En takk kærlega fyrir allar athugasemdirnar við skrifin það er gott að þið kvittið reglulega og veitið móralskan stuðning. Skammist ykkar bara.

Kristinn Piparkaka.


miðvikudagur, nóvember 07, 2007

Örvandi lyf á foreldrafundi.

Fyrstir stjórnarfurndur í foreldraráðinu hjá Axel í gærkvöldi í okkar húsi. Já já maður sá um veitingar og fundarstjórn. Gekk líka svona glimrandi vel. Fundurinn stóð í þrjá tíma og umræður voru miklar sérstakla um nýjustu uppákomuna. En á síðasta foreldarafundi í bekknum, sögðu allir foreldrarnir “já það er mikilvægt að passa að skilja ekki börnin útúndan þegar bjóða á í afmæli” þetta fannst öllum falleg og góð hugsun. Nema einum. Já hann Dan Danski var ekki á þessari skoðunn. Æsti sig uppúr öllu, sótraður í framann, hreytti útúr sér að hans börn myndi sko alls ekki bjóða einhverjum krökkum heim til sín, sérstaklega ekki þeim börnum sem þeim fyndist vera hundleiðinleg....Og ef hann héldi barnaafmæli þá byði hann þeim sem honum sýndist, kannski myndi hann bjóða bara öllum nema einum. Já hann myndi sko gera það.

Dan hin Danski var reyndar eini um þessa skoðunn. En svo kröftug voru mótmæli hans og geðvonska að restinn af fundargestum sátu sem lamaðir. Kennarinn sagði síðan að hún hefði aldrei nokkurn tímann upplifað annað eins. Enda fór svo að Dan hin Danski var kallaður á fund skólastjórans vegna framkomu sinnar. Og fékk hann sundurliðað í sex tölusettum atriðum hvernig hann ætti að haga sér í framtíðinni. Jeminn eini.....já mín skýring var hinsvegar sú að annaðhvort væri hann geðveikur, á örfandi lyfjum eða átti bara slæman dag. Ekkert af þessu hefur verið staðfest, en Dan hin Danski er semsagt svarti sauður bekksins og það verður gaman að vinna með honum í framtíðinni.

Kristinn stjórnarmaður.

Counters
Web Site Counter