fimmtudagur, nóvember 27, 2008

Baksturinn er hafinn.

“Þú gætir nú allavega bara bakað eitthvað sjálfur núna” sagði Meistarinn þegar ég þuldi upp allar smákökusortirnar sem ég óska mér í ár. Og það fór svo að í dag setti ég í tvær sortir. Lyktin ilmaði um allt húsið þegar degið var komið í ofninn. Tilhugsunin og eftirvæntingin var allgjör. Og með bakaraofn með blæstri sem dreifir hitanum jafnt um allann ofninn er öruggt að maður fær gæðabakstur. Kötlu bökunarvörurnar voru þó ekki notaðar enda ekki auðfengnar hér þótt gæðin séu óumdeild.

Áður en ég hefst handa við kökubaksturinn set ég gamla geðþekka geisladiskinn með Jóhanni Gé. og Helgu Möller þar sem þau syngja ....”ég kemst í hátíðarskap þótt úti séu snjór og krap það hljómar hvar sem ég fer.....” Já stemmingin í eldhúsinu er óviðjafnanleg, hátíðarbragur og ég finn jólakskapið hellast yfir mig....Kökurnar í ofninn og ég sest með svuntuna í eldhúskrókknum og fæ mér sígó og kaffi...nei reyndar ekki sígó....Nú líður tíminn og klukkann hringir. Hið fallega smákökubox með jólaenglum er tilbúið að taka á móti engiferkökunum, sem hægt verður að gæða sér á allt fram til jóla..... Kökurnar eru klárar. Skima ég nú inní ofninn og við mér blasir skelfileg sjón. Bölvaðar engiferkökurnar á efstu plötunni eru skaðbrenndar og sótsvartar, þegar ég opna svo ofninn kemur rjúkandi brunalyktin á móti mér....anskotans...smákökurnar eru á suðumarki. Ilmurinn úr eldhúsinu breytist á svipstundu í brunastækju og ég má hafa mig allann við að opna út og veifa einz og sjúklingur í átt til reykskynjarans til að forðast brunaútkall.

Engiferkökurnar sem að jafnaði eru ein af uppáhaldsortunum er nú komnar á borðið, sótsvartar, skaðbrenndar,sundurtættar og óætar. Hitinn reyndist of mikill á ofninum. Ég finn hvernig stoltið og jólaskapið hverfur og ég öskra á Helgu Möller að grjóthalda sér saman.....Ég sópa leifunum af jólasmákökunum upp og hendi í ruslið. Þetta fer eins og í fyrra Meistarinn sér um kökubaksturinn og ég verð látinn vaska upp.

Kristinn Kökugerðarmaður.

föstudagur, nóvember 21, 2008

Unglingarnir.

Krísufundur á heimilinu unglingurinn þolir ekki vinkonur sínar, þær eru flestar ef ekki allar asnar. Meistarinn sér um að taka umræðuna þar sem sko Pabbinn er ekki allveg nógu mikið inní þessum málum til ráðgjafar. Þrátt fyrir að hafa lesið allar bækurnar hans Andrésar...gullverk eins og “Fjórtán...bráðum fimtán”....”Viltu byrja með mér” og ég veit ekki hvað og hvað...sjálfur náttúrulega notað mörg gullkornin úr þessum bókum til að sjarmera fyrir öðrum.....Nú nema hvað Meistarinn leysti málið enda sálfræðingur af guðsnáð...þrátt fyrir að ég hafi líka lesið “Kæri Sáli” eftir hann Sigtrygg.....allar þessar bækur hef ég nú sett í bókahillu unglingsins í von um uppörvun og öflug slagorð og sjálfshálp. Það er þó hvorki minnst á Æpott eða Flatskjá í þessum bókum, hvað þá fartölvu enda þó nokkuð liðið frá útgáfunni eða frá árinu 1983.

Axel hélt því fram í gærkvöldi, rétt fyrir svefninn, við kvöldlesturinn þegar ég sagði honum að bekkurinn hans ætlaði að hittast í útivist&leikjum á Sunnudag. Já þegar hann uppgötvaði að það yrði “úti-bowling” enn ekki keiluferð í keiluhöllina, sagðist hann ekki mæta. “ég kem ekki” sagði hann. Og þegar hann var spurður um ástæðuna jú “leiðinlegt” Þá spurði pabbi hans hvernig hann gæti vitað það þegar hann hefði ekki prófað. “Ég sé inní framtíðina” svaraði hann. Ég sagðist efast um það en sagðist vilja spyrja um um framtíðana. Það væri margt sem mig langaði að vita. Hann leit á mig og sagðist allveg getað svarað öllu og svo glotti hann. Ég spurði “Verður sól eða rigning í fyrramálið þegar þú ferð í skólann” Hann klóraði sér í hökunni fetti uppá nefið leit á mig og sagði “Það verður skýjað”.

Kristinn Sálusefari.

fimmtudagur, nóvember 13, 2008

Hvar er Illugi?

“Jæja elskan kveiktu ná Illuga” var viðkvæðið oft á sunnudagskvöldum hér á árum áður þegar við hjónin vorum lögst útaf eftir kvöldmat og bænir á sunnudagskvöldum. Líkt og það var til siðs hjá afa mínum og ömmu að hlusta alltaf á Kvöldgesti Jónasar, þá kveiktum við í seinni tíma á Illuga. Og nú er svo komið með nútímatækni að misgáfulegir kvöldgestir Jónasar hljóma í eyrum okkar. Með Æpottinn að verki hlustum við nú kvöld og kvöld á hina ýmsu þætti..en slökkvum þegar “bjánahrollurinn” verður of mikill. Ég með annað eyrað útroðið af heyrnartæki og Meistarinn með hitt. En það verður nú að segjast að Jónas er kominn á aldur, maður þarf ekki að hlusta lengi til að heyra “Góðir hlustendur kvöldgestur minn er Gunnar Bjarnason, segðu mér Gunnar þú varst sjómaður á Heklunni”...svar “Já Jónas, það var reyndar Esja” já akkurat segir Jónas...skömmu síðar í sama þætti “Gunnar þú varðst ungur sjómaður á Esjunni sigldir útum heimsins höf....” Jónas er nú orðinn svo roskinn að þáttur í klukkutíma inniheldur viðstöðulausar endurtekningar og sömu spurningarnar. Nú væri ráð að endurspila bara gömlu þættina....því Jónas segir núorðið við Kvöldgesti sína “Já Gunnar hann afi þinn var einmitt kvöldgestur hjá mér fyrir 15 árum og þá sagði hann mér.....”

Lögreglustjórinn í heimabæ mínum hér spurði mig þegar ég krafðist þess að fá sakavottorð og (það hreint, sem ég fékk) “Hvernig væri að vera íslendingur í Danmörku?” Og svo glotti hann. Því hér hefur verið töluvert fjallað um nokkra aumingja sem koma í fjölmiðlum og þiggja ölmusur og samskot frá Dönum. Og líkt og íslenskar alhæfingar um að lífið sé svona og svona í Danmörku...þá fullyrða Danir náttúrulega að allir íslendingar sem búa í Danmörku séu fátæklingar......Sem rifjar auðvitað upp hvernig
íslendingar misnotuðu velferðarkerfi dana á sjöundaáratugnum og lágu fyllerísdauða útum borg og bý eftir að hafa fengið danskar-örorkubætur.

Ég get ekki annað en fundið til með mínum nánustu ættingjum sem ekkert hafa til saka unnið og sitja í súpunni. Það er hlegið af Íslandi á alþjóðavettvangi, spillingin á háustigi, einkavinavæðing, blýantsnagarar í Seðlabanka og ég veit ekki hvað og hvað. Og hvað gerir fólkið....nokkrar hræður á Austurvelli sem mótmæla...líklega mest útlendingar. Og það er ekki laust við að maður skammist sín fyrir að þurfa réttlæta tilvist sína, hugleiði að skipta um ríkisborgararétt. Axel hinsvegar heldur þó skjaldamerki og merki Íslands hátt á lofti, krefst þess að allir kunni að bjóða góðan dag á Íslensku í skólanum, hjólar um með íslensku húfuna sína og gengur nánast í þjóðbúningi. Notar hvert tækifæri til að segja að hann komi frá Íslandi, hann er heppinn ef hann verður ekki fljótlega laminn.

Kristinn fátæklingur.

Counters
Web Site Counter