Skeggið á og skeggið af.
Kristinn Skegglaus
Hugleiðingar um lífið í Danmörku
Skeggið á og skeggið af.
Kristinn Skegglaus
Axel Orri veikur.
Heimsmeistarakeppni í Dansi.
Jólatré.

Ætlar enginn að segja guðhjálpimér?
Netið stórhætturlegt.
Sko það er nú bara þannig að ef maður gefur sér litla stund til að skoða netið og slá upp t.d. nafni nágrannans eða bara einhverjum sem maður þekkir, þá er allveg ótrúlegt hvað maður getur fundið mikið af upplýsingum um viðkomandi, og ég tala nú ekki um ef viðkomandi heldur útí bloggsíðu. Þá veit maður bara gjörsamlega allt um viðkomandi. Ég hef því passað mig t.d. á því að skrifa ekkert um það þegar ég fór í ristilspeglun, fékk sveppi á mili tánna, þegar gróf í eyranu á mér og þegar ég fékk vindverki og óþægindi í botnlangann. Svo ekki sé nú talað um brisið sem hefur verið að íþyngja mér. Bakflæðið og kíghóstann hef ég heldur ekki skrifað um. En semsagt ég slóg upp nafni á manni sem ég þekki í dag og fann þetta um hann.....þetta var skrifað um frækilegan sigur í heimsmeistarakeppni framhaldsskólanna í ræðulistinni....en þessi texti er nú skrifaður fyrir nokkru síðan eða frá 12.mars 2002, textinn er svona ..
“Sigur FB-inga það ár voru sennilega óvæntustu úrslit í sögu keppninnar. Breiðholtið hafði einu sinni eða tvisvar áður tekist að komast upp úr fyrstu umferð, en fór skyndilega alla leið......Ásamt Bóasi, voru Lárus Páll Birgisson, Arnar Þór Halldórsson og Matthías Geir Ásgeirsson í 1996 liðinu. Lárus er betur þekktur sem Lalli feiti og var valinn fyndnasti maður Íslands fyrir einhverjum misserum...Matti stuðningsmaður er sá eini úr liðinu sem ég hef haldið einhverju sambandi við. Hann var alltaf langbesti ræðumaðurinn í hópnum og hefur þjálfað ræðulið með góðum árangri út um hvippinn og hvappinn. Hins vegar er hann vinnualki af verstu sort. Eftir stúdentsprófið dreif hann sig í smíðanám og er nú að slá upp mótum út um allan bæ, auk þess sem hann er búinn að smíða sér stóreflis hús á Álftanesinu og er kominn með grísling. Matti er eini maðurinn sem ég hef kynnst sem tekist hefur að vera í um 180% vinnu um langt skeið án þess að glata glórunni.”
Já það finnst ýmislegt á veraldarvefnum það verður ekki annað sagt. Meistarinn er á heimleið úr fyrirtækinu, þetta gengur samkvæmt áætlun og útlit fyrir að hún verði bæði búinn að stækka við sig húsnæðið, kaupa fyrirtækisbíl, endurnýja hljómtækin og kaupa sér nýja skjalatösku áður en langt um líður. Ég held áfram að ala upp blessuð litlu börnin.
Skólasýning.
Það hefur mikið gengið á undanfarna daga og vikur með að æfa og gera klárt fyrir skólasýninguna en það er árgangur Önnu Marínar sem sér um showið í ár. Þau hafa samið lög og texta og sýningaratriðin sjálf. Í stað þess að taka eitt stykki tilbúið leikrit og sýna eins og undanfarin ár. Nei nú ákvað kennarinn að þetta yrði svona Revía. Já mörg ólík smáatriði og allir eru með. Já og hvernig gekk...tja jú sko henni og hennar atriði sem var nátturlega bara snilld...sko...enda gætti áhrifa föður hennar í hugmyndasmíðinni. þar..það held ég nú..semsagt það atriði var nátturlega bara æðislegt..gegveigt....en önnur atriði já og mörg hver voru ýmist of löng eða of bjánaleg. Það var því við leikstjórann (tvo stykki kennara) sem ekki höfðu nú haft nægilega mikið aðhald í leikstjórnarmálum að sakast.....stundum þarf bara kurteisislega og með “upp-byggilegri-gagnrýni” segja við nemenda sem t.d. vill syngja einhverja perlu frá Disney myndunum, já sem í orginal útgáfunni er sungið af einhverri skærustu poppstjörnu nútímans... Já það verður að segja við þennan nemanda “Heyrðu vina mín þetta er mjög gott hjá þér, en þú nærð ekki allveg þessum háu tónum hérna sko...þú ert ekki slæm..þú þarft bara meiri tíma..og þú þarft kannski bara meiri æfingu...og síðan á leikstjórinn að bæta við.... þú hefur ekki snefil tóneyra,og ekki sviðsframkomu og getur þetta bara ekki rassí bala, snautaðu af sviðinu og í ár leikur þú bara túlípana og í hópatriðinu leikur þú rabbabara...burt”
Svona hefði þetta átt að vera í einu atriðinu amk. Nei það var ekki gert, og í staðinn söng stúlkan lagið, gleymdi textanum í miðju laginu og grenjaði í millierindinu semsagt átti hrikalega erfitt......ég fann að ég sjálfur hafði ekki bara svona óþæginda tilfinningu, með bjánahroll niður allt bakið og lengra....heldur var við það að fara fara grenja líka...af meðaumkun...allann tímann hafði ég skjálfandi neðrivör sem titraði ítakt við óreglulegan takt hljómsveitarinnar sem vissi ekki hvort hún var að byrja eða enda lagið. Ég fékk mér tvo öl í hléinu og leið strax betur eftir hlé.
Gestirnir farnir.
Lestin brunaði af stað með foreldra mína áleiðs til Íslands í dag. Þau komu í opnunina hjá Meistaranum á Aros Hair (www.aroshair.dk ). Það var ýmislegt brallað en Axel Orri og Anna Marín nutu góðs af Afa sínum og ömmu allann tímann, og voru þetta líka mikið ánægð að fá þau í heimsókn. Meistarinn fór snemma á fætur alla dagana, tekur hraðlestina klukkan átta og er mætt með nýmalað kaffi handa fyrsta kúnnanum klukkann níu.
Annars er fyrsta vígið fallið, ég fussaði og sveiaði yfir þeirri gígantískri áherslu að kaffið yrði að vera gott, það besta sem finnst er víst á Aros Hair.. Ég spurði ítrekað hvort fólk væri ekki að koma í klippingu og strípur og léti sig engu varða hvort það fengi gamalt Merrild eða Ríókaffið. Nei nei nei...Meistarinn og partnerinn sögðu að hér yrði að kaupa allt það flottasta og besta í kaffigerðinni. Og nú fá semsagt viðskiptavinir þetta líka dýrindiskaffi...úr hágáða ítölsku kaffivélinni sem á engann sinn líka....og ég bíð eftir jólavertíðinni....það á víst að auka enn á þægindi og vellíðan kúnnans í desembermánuði...maður verður að fara panta tíma....

Aroshair.dk
Við vorum nú hálfloftlaus í dag, mikið spennufall og rólegtheit bara. Eldaður íslenskur fjallalambahryggur með öllu tilheyrandi en foreldrar mínir mættu hingað sl. föstudag, sáu um börn og bú hér í undirbúningi að opnuninni sl.tvo sólarhringa. En nú fer Meistarinn að huga að markaðssetningu ofl....við erum komin með fréttatilkynningu inná þess síðu hér http://www.ifhorsens.dk/ og síðan munum við sjálfsagt setja fleiri auglýsingar eftir því sem við á....annars styttist nú í annan endann á starfi okkar ráðgjafanna, okkur var gert ljóst þegar umræðan um vörur og framsetningu á stofunni ofl...þá vorum við skyndilega beðnir um að huxxa um eitthvað annað...það virðast vera einhver mörk sem okkur er ætlað að halda okkur innan...en við sjá hvað setur. Fengum síðan í gærkvöldi símtal frá frænku minni, sem ég heyrði að Meistarinn var ánægð með að fá, heildsölu-yfirsölustýra –hárgreiðslunnar á Íslandi..heillaóskakveðjur þaðan, en kokkurinn hafði einmitt unnið til medalíu þann daginn...stór dagur á því heimili...og gagnkvæmar hamingjuóskir héðan og þangað....
Aroshair opnar.
Atvinnulaus fyrirvinna – Ný áskorunn.
Meistarinn hefur látið af störfum, mætir ekki oftar á kontórinn hér í Skanderborginni.. Tók Dönsku Hraðlestina í morgunn á vit nýrra ævintýra í átt til Árósa.. Nýr kafli er hafinn, kyssti mína bisness vúmann, á brautarpallinnum, og þegar ég smellti á hana kossi beygði hún annan fótinn við hné, eins og gerist í amerískum gæðakvikmyndum. Ég horfði á eftir meistaranum fjarlægast á ógnarhraða...eftir sat ég einn, aleinn með börnin okkar sem einstæðingur væri. Hlutabréfin mín í stofunni geta ekki annað en hækkað.
Kristinn ræstingarstjóri.