Gestir í húsi. Hér hafa frá því á mánudaginn í síðustu viku og nú um helgina, til laugardagsins. Verið gestir í húsi. Hér voru Matthías litli, Ragnheiður og Valdimar (kallaður Svampur, Moli eða Spædermann). Þau semsagt birtust hér seinnipart mánudags á Tojótu station 7manna. En Matthías fullyrti nokkrum dögum áður að hann yrði í “fókuss” í Danmörku. Það rættist ekki.
Það var fjörug dagskrá sem ég hafði sett saman bæði með alvöru og léttu ívafi...já já. Þau fengu síðan heyrnartæki og spólutæki til að hlusta á sögur um Danmörku á kvöldin...nei annars ég gleymdi því. En þetta þróaðist svona.
Mánudagur:Borðað úti, sett upp fánaborg við komuna og farið yfir helstu atburði og menningarþætti í lífi Skanderborgarbúa. Matthías fékk sér einn kaldann.
Þriðjudagur:Dagurinn samanstóð af gönguferðum og útivist. Matthías fékk sér einn kaldann. Fórum niður í miðbæinn okkar og löbbuðum Laugaveginn, kíktum í nokkra búðarglugga og síðan slakað á við bátabryggjuna. Fengum okkur síðan Ís, og kíktum á stofuna hjá Dagmar. Menningarferð um miðbæinn. Borðað úti. Matthías fékk sér kaldann.
Miðvikudagur:Dagmar komin í frí í dag, svo nú var haldið með matarkörfuna og grillmatinn í Djurs Sommerland. Áttum góðann dag í öllum leiktækjum og Matthías sýndi meistarakta á Trambólíni staðarins. Hoppaði eins og hálfviti.....fór á endanum heljarstökk og minnti allt í einu á sjálfan Schevinginn þegar hann var uppá sitt besta og borðaði ekki skyndibitafæði. Matthías fékk sér síðan einn kaldann. Borðað úti.
Fimmtudagur:Menningarferð á Himmelbjarget, já skoðum það hátt og lágt og horfðum á fegurðina í kringum okkur. Síðan var ekið rakleitt á ströndina og aftur var Matti í aðalhlutverki, hann synti í sjónum og það sást að flestir líkamspartar minntu á pisstasíuhnetur...ekki meira um það.....Anna Marín lét sig hafa það líka að synda. Matthías fékk sér einn kaldann. Nokkuð svalur sjórinn eða 18 gráður.
Föstudagur:Nú var ekið inní Háskólasamfélagið og litið á stjórnmálafræðina og garðinn. Já skólagarðurinn kominn í fullan skrúða og allt leit vel út. Fórum síðan menningarferð í Bilka (stórmarkaðinn) og Toys A Röss (leikfangabúðin). Löbbuðum síðan Strikið inní Aarhus og litum í nokkrar búðir. Matthías fékk sér einn kaldann Og fór í hempuna.
Laugardagur:Borðaðir hafrakoddar og gert klárt fyrir akstur til Kaupmannahafnar.
Matthías fékk sér ekki kaldann áður en farið var af stað.
Heimsóknin var hin skemmtilegasta og þrátt fyrir að júní sé rigningarmánuður í Danmörku þá rættist heldur betur úr veðrinu og hitinn aldrei niður fyrir 23 gráðurnar utan þess að lækka á nóttunni. Matthías skaðbrenndur á öðru eyranu, en sagðist ekki sjá eftir neinu og fékk sér einn kaldann. Takk fyrir komuna þið öll þrjú.
Kristinn Fararstjóri.