Veisluhöld á Íslandi.
Amma Björg er rétt í þessu að halda Önnu Marín samkvæmi í Garðabænum. Anna Marín er búin að vera á fullu síðan hún kom til Íslands að hitta vini sína. Hún var búin að ræða við Dag vin sinn í Sólheimum um að koma í heimsókn og fór þangað í gær og hitti fjölskylduna. Og svo fór að hún gisti bara hjá þeim líka....já hún nýtur sín vel núna dóttir okkar á Ísalandi. Anna Marín ku hafa fengið hjá ömmu sinni um að halda síðbúið íslenskt afmæli fyrir börn og fullorðna...barnaafmælið/partýið er í kvöld og ættingjakaffið verður síðar í vikunni. Amma hennar er á útopnu......
....enda ekki nema von, þar sem elsti sonur hennar Jón bróðir Þór Dagmar, karlmaður langt genginn fertugt, giftur með eitt barn. Er fluttur heim. Já hann er fluttur með fjölskylduna sína eins og hún leggur sig inná gafl þeirra hjóna í Garðabænum. Svo það er ekki lítið álagið á þeim bænum þessa dagana. Og hversu lengi hann verður, það má guð vita, ég segi nú ekki annnað. Nei það er seint sem foreldrahúsum sleppir í þessari ættinni það er nú líkast til. En svo segir mér hugur að þetta sé millibilsástand þar til sú fjölskylda fær sitt eigið á ný...en það ku vera í byggingu. (þeir voru að klára teikningarnar fyrir helgina)
Nú annars situm við bara ennþá foreldrar frumburðarins sem einstæðingar og höldum áfram að tala saman, það gengur líka ljómandi vel hjá okkur. Axel Orri fór til dagmömmunnar í dag, og þar er systemið orðið þannig að ef hann þarf að pissa þá fer hann bara sjálfur á klósettið og reddar sér...en í dag gerðist það að hann var ekki nógu snöggur að hneppa gallabuxunum sínum og snarast á toi-lettið að bunan fór í buxurnar. Okkar maður fór að háskæla í kjölfarið og skammaðist sín vafalaust töluvert. En það jafnaði sig nú fljótt. Hann fer núna hvern morgunn, án þess að væla í mömmu sinni en í staðinn segir hann að meðaltali ellefu sinnum "farvel" við mömmu sína. Fengum í dag staðfestingu á leikskólaplássi fyrir hann frá og með 1.október.
Kristinn alltaf á koppnum.
