Tilfinningalega Lamaður.
Kæru vinir, já það er sem maður hafi verið gjörsamlega lamaður eftir allar síðustu uppákomur. Eftir að Dagmar fór til Kaupmannahafnar, Anna Marín til Íslands, Axel Orri til Kaupmannahafnar og ég útí garð að slá. Þá er sem ég hafi tímabundið lamast. Tilfinningaleg Lömun. Ég hef misst alla athygli tímabundið þó eftir að Marteinn Mosdal/Gísli Marteinn/ Andri Marteinn kom í heimminn þarna í Kaupmannahöfn.
Ég er semsagt að jafna mig aftur og nú komast vonandi pistlaskrif mín í gang að nýju.
Það er jú frá mörgu að segja. Anna Marín fór semsagt með Afa sínum og Ömmu héðan frá borginni til Færeyja. Þau sigldu með þessu stóra skipi Norrænu sem allir hafa nú látið vel að. Nema hvað Anna Marín talaði um það í nokkra daga hvort hún yrði nú ekki örugglega sjóveik, og hvort þetta skip færi nú ekki upp og niður, út og suður. Og sá möguleiki væri til staðar að það gæti sokkið. Við foreldrarnir reyndum nú í nokkra daga að telja henni trú að þetta væri svo stórt skip að hún þyrfti ekki að hafa neinar áhyggjur. Það hreyfðist varla vegna þess hve það væri stórt, og það væri sundlaug og leiktæki og bara fullt af hlutum sem væri hægt að gera sér til dundurs á meðan. Þetta væri frábært skip.
Röksemdar færsla okkar var tæmd þegar dóttir okkar benti á eitt kvöldið að jú jú þetta væri örugglega mjög stór skip, leiktæki og fullt af skemmtilegum hlutum. En það hefði nú líka verið í Titanic. En hvað varð um það....já það bara sökkkkk....
Við þessu var nú lítið hægt að segja. Dóttir okkar hefur líka margoft séð Tætanikk myndina hina rómuðu hryllingsmynd þar sem ferjan ósökkvanlega endar á hafsbotni....nema hvað Anna Marín er kominn til Íslands...jú jú skipið valt allaf helling og hún varð sjóveik..lifði það af og situr nú í heita pottinum hjá afa sínum og ömmu í sumarbústaðnum. Komin til Íslands.
Ég finn stöðug fráhvarfseinkenni eftir fjarveru frumburðarins, þannig að maður er ekki sífellt að biðja barnið um að hætta hinu og þessu tuði. Við Dagmar og reyndar Axel Orri...sitjum bara hér eins og ellilífeyrisþegar og hugsum hvað við eigum að gera næst...þótt Axel Litli Orri sé ágætur heldur maður ekki upp mjög vitsmunalegum samræðum við hann eins og maður gæti við Önnu Marín..já eða þannig.
Við Dagmar höfum þurft að tala meira saman en áður...en það er bara allt í lagi. Hún sagði mér t.d. í kvöld að hún hafi á tímabili búið á Akranesi.....nei nei nei þetta er nú bara grín.
Hingað komu Árný, Bjarni Óli, Davíð Ýmir og Tinna (æskuvinkona Dagmar) í matarboð til okkar, það var mjög skemmtilegt að hitta þau. Dagmar eldaði kalkún í kóki handa þeim sem tókst mjög vel. Jammmm....kóki helt útí kalkúnn..og hér urðu allir svona eiturhressir í kjölfarið (sjá www.kalkunn.is)
Aðeins um vinnuna, ég fór í dag og hitti forstjórann til að reyna að biðja um kauphækkun og svona fá upplýsingar hvort maður sé nú að standa sig eða ekki....hann sagði þegar ég nefndi launin "Kristinn minn, þú verður að athuga það að þú kemst nú mjög snemma inní kerfið okkar varðandi efirlaunaaldurinn....við byrjum að borga inná hann hjá þér bara núna sex mánðum eftir að þú byrjaðir hjá okkur...það er nú bara nokkuð..ha áttaðu þig á því kallinn minnn" ....ég bað um annan fund í ágúst.
Ég vona að mér takist að finna aðra vinnu, en lagerinn hjá þeim áður en ég verð 67 ára..en það er auðvitað fullkomlega óvíst...
Kristinn verðandi ellilífeyrisþegi í Danmörku.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home