Stuttir dagar.
Þeir eru nú heldur betur stuttir dagarnir núna þegar maður situr ekki lengur eins og ríkisstarfsmaður og nemar við tölvuskjinn alla daga að leika sér á heimasíðunum. Þá lengist nú milli skrifa. Nú það er útlit fyrir að ég hafi lent í mjög svo spennandi verkefni í hinni nýju vinnu minni. Það að vinna með öllum deildum fyrirtækisins og kynnast hinum ýmsu hliðum málanna gerir dagana stutta og andvökukvöldin löng þar sem maður liggur á koddanum og veltir fyrir sér næstu skrefum...næstu drögum í nýrri atburðarrás. Já maður er að vakna úr alltof löngum dvala námsmannsins og hins væru-kæra lífs. Ég hef virkilega saknað þess og tilfinninginn að mæta er full af spenningi og heimferðin full af trega og eftirsjá að þurfa yfirgefa vinnustaðinn....jæja þetta er nú kannski fullmikið sagt og vemmilegt....
Að öðrum málum frumburðurinn er floginn úr hreiðrinu til Ísalandsins og dvelur þar næstu 10 daga ásamt danskri vinkonu sinni. Ferð sem búið er að plana í meira en hálft ár, varð að veruleika hér í morgunn þegar Danska Hraðlestinn þaut yfir til Copenhagen með þær innanborðs. Ótrúlega spenntar og glaðar. Framundann eru viðburðarríkir dagara hjá öfum og ömmum.
Kristinn Flís.