föstudagur, júlí 30, 2004

Helgarpistill....Það er gott að elska.

Er það ekki dásamlegt þegar maður hefur búið svo lengi með einhverjum að viðkomandi veit hvernig maður huxar (hugsar er skrifað hér með X...því maður líkist orðið Uxa eftir svo mörg ár) . Já þetta getur nú líka verið ákaflega hvimleitt og bara ömurlegt. En hið jákvæði í þessu er að maður verður svo skemmtilega samstíga. "Heyrðu, bíddu hérna heyrðu, hvað heitir aftur leikarinn hérna...ææi þú veist hérna með hárið...hérna aftur æi þessi breski...þarna þú veist ? " Og maður svarar um hæl já hann, Hugh Grant. Og þá heyrist "já einmitt, nákvæmlega" Svona ótal margar setningar getur fólk skiptst á að botna án þess að hafa heyrt nema hálfa setninguna eða jafnvel bara eitt orð...oft þarf ekki nema augnablikk, skældan munn, hrukkur á enni eða annað tilbrigði allt þetta er nóg til þess að hinn aðilinn viti nákvæmlega hvað er átt við.

Ég til dæmis er allgjör snillingur í að botna sumar setningar hjá henni Dagmar minni. Það bara klikkar ekki hjá mér. Ég veit alltaf svarið og er mjög snöggur t.d. þegar hún segir ekki nema bara eitt orð eins og "VARSTU.." og ég svara samtundis.. " já já akkurar ég var búinn að því" eða orð eins og "FÓRSTU.." og ég svara... "Heyrðu já einmitt ég fór með þetta allt útí tunnu" hinsvegar hef ég í mörg ár átt í nokkrum erfiðleikum með eitt orð hjá henni sem er "DRAKKSTU.." Það bara bregst ekki að þegar ég ætla að svara þessu þá botnar hún yfirleitt með svarinu líka, nær að klára spurninguna sem oft er tvær til þrjár setningar og síðan kemur hún sjálf með svarið...... Ég bara kemst aldrei yfir þetta svar.

Maður þarf líka ekki að búa í mörg ár saman til að átta sig á "tóninum" hvernig er tónninn í setningunni, hrynjandinn, andvarpið. Hvar er komman og hvar er andað í setningunni....já maður veit nokk hvað KLUKKANN SLÆR þegar "tónninn" er kominnn. Þá má maður biðja almættið að hjálpa sér. ....og þá er líka betra að vera ekkert að geta í eyðurnar...bara leyfa spurningunum, einræðunni, tilsögninni, spurningunum að fljóta svona yfir og halda algjöru jafnvægi. Það er mikilvægast. Jafnvægi undir spurningarflaumi húsmóðurinnar er lykilatriði. Allt annað er sem olía á eldinn þegar "tónninn" er við völdinn.

Um leið og ég óska lesendum góðrar helgar, sendi ég hlustunarbræðum mínum baráttukveðjur,
Villi Guðrúnar, Óskar Rósu, Helgi Bjargar, Guðmundur Guðlínar, Gylfa Sigrúnar, Heimir Írisar, Jón Þór Vigdísar,Matti Ragnheiðar, Ingþór Jóhönnu, Bjarna Árnýjar, Pabba Mömmu.

Kristinn Ástsson


miðvikudagur, júlí 28, 2004

Heilsufars- og athafnaskýrsla.

Tja það gengur nú ýmsu hér um slóðir.  Mér finnst nú orðið allir tala við mig eins og ég sé fullorðinn, jafnvel farinn að nálgast eftirlaunaaldurinn.  Skeggið er að gera mig geðveikann, ég er farinn að fá mikil ónót og óþægindi af þessu.  Er orðinn viðþolslaus af snertingarleysi og einangrun.  Já maðurinn er félagsvera...en ekki meir ekki meir...hallast aðþví að líta aftur út allsber í framann og yngjast um leið um mörg ár...reyni að semja við frísörinn um klippingu og rakstur um helgina.  Guð hvað það er yndislegt að hafa sjálfan frísör-meistarann í húsi.  Já einu sinni lét ég klippa mig annarsstaðar......en nú snertir mig enginn nema hún....tja og ég sjálfur auðvitað.

Annars hefur maður verið slappur í maga undanfarna daga...það hefur minkað óþægilega mikið af þýskalands-lagernum og fráhvarfseinkennin eru farin að segja til sín.  Sama er að segja um Dagmar, hún var viðþolslaus sl. nótt með magaverki...taldi reyndar að ég hefði eldað hrátt ofaní hana...og hún fengið "bráða-niðurgang-af grjónum" já ég var með á matseðlinum Hrísgrenerjett, sem líkist grjónagraut á Íslandi.  Það þekkist nú ekki að hægt sé að fá matareitrun af slíkum rétti...en hún telur það ekki ólíklegt....eða þannig....En allir aðrir hressir nema hún....hún er bara spennt litla skinnið yfir því hvað ég töfra fram í kvöldmatinn næsta dag....

Axel Orri fór til nýju dagmömmunnar í dag og gekk frábærlega vel.  Hún hefur hund sem er á stærð við Axel Orra.   En hann er nú orðinn svo vanur hverskyns dyrum, að honum bregður ekki við slíkt fyrirbæri.  Hann verður spenntur að sjá hvaða tegund af hundi afi hans og amma fá sér í Garðabæ og Breiðholti....  Já börn hafa gaman að dýrum annarsstaðar en heima hjá sér....

Það sannar bölvuð kanínan sem slapp útúr garðinum í kvöld.  Var útkall, alfa Rauður og mátti maður fara á inniskónum á eftir kanínu-skrattanum.  Kanínan er nú orðin svo sturluð að hún telur sig vera orðin kött.  Þannig var í kvöld að í hvert skipi sem ég nálgaðist hana, lagðist hún niður og lézt sofa.  Stökk síðan af stað þegar ég ætlaði að ná fyrirbærinu.  Fór svo á endanum að ég hentist yfir í næsta garð, og mátti enda með andlitið klesst uppað svalahurðinni, með slef útá kinn, og vott af svona glæru hordreitli sem kemur þegar maður hefur hlaupið mikið.  Þarna lá ég semsagt eftir að hafa kastast á eftir kanínunni utaní  heimili Deriks (hann er í útileigu) og reyna, og reyna að ná kanínuskrattanum.  Það tókst ekki. 

Fór svo að ég sagði þeim mæðgum sem hlógu viðstöðulaust að aðförum mínum. Að kanínan skyldi snauta og skyldi hennar ekki saknað.  Kallaði ég síðan á eftir henni að kæmi hún ekki eins og skot í búrið. Yrði farið með hana til dyralæknis þegar í stað í fyrramálið  og hún send til Nangíala...til þeirra bræðra Ljónshjarta.  Ég er hruflaður á hné og hendi og geðvondur með afbrigðum yfir þessu....en ég þakka þeim sem hlýddu.  Nú bý ég til hanska.

Kristinn Kanínuhanskagerðamaður.



þriðjudagur, júlí 27, 2004

Verslunarmannahelgi á Íslandi.

Nú styttist heldur betur í að íbúar Ísalandsins, fari í áfengisverslunina  og kaupi sér kippu, og þá heldur tvær frekar en eina.  Já en brestur á Verslunarmannahelgin með tilheyrandi neyzlu vitleysu.  Jeminn eini.  Já það verður maður laus við nú líkt og fyrri slíkar helgar.  Við reyndar rifjuðum upp hér við kvöldmatarborðið að undanfarin og bara já síðustu ár.  Höfum við verið í Hamingju-hýsinu í Hvalfirði.  Já þar hefur verið slakað á rætt um lífið.  Það hafa helst verið drykkjulæti ættingjanna sem hafa litið inn dálitla stund sem hafa fipað okkur.....jú jú það stemmir hér er átt við Jón Fulla...eins og hann var kallaður á Skaganum en gengur hér undir nafninu Jón Þór Litli.  Hann átti jafnan góða spretti og sagði sögur af sér eins og Jónas í Hvalnum. ussssssssss það var nú meiri pínan, sveiiiiiiiiii, fusssssssss, ussssssssssssssssss.  En það var ljúft þegar hann var sofnaður...hann síðar gifti sig og er allt annar maður í dag....

Annars kallast það ekki að fá sér almennilega í glas nema vera kominn á það undursamlega stig að fara með ljóð eða kvæði.  Ég þekkti mann sem gerði þetta iðulega...eða þegar hann var kominn á ákveðið stig í að glæða sitt ljúfa söng- og vísnahjarta, með þeim vökva sem sagður er gleðja mannsins hjarta...(þetta var skáldlega mælt)  þá átti hann til að segja, og hafði í raun einkarétt á flutningi þessum:

Hvað er lífið ? Tæmir tára
Tilfinning og þrá.
Hvað er dauðinn? Hulin bára
er hvergi flýja má.
Hvað er öll vor æviiðja?
Endurtekin hik,
sem í þvingun þúsund viðja
þráir röðulblik.

Einhverntímann þegar ég verð stór og kemst á þetta sama stig mun ég reyna að fara með eitthvað álíka en þó aldrei með þeim dásamlega krafti, og með þetta sérstaka blik í auga  og gamli maðurinn gerði.

Kristinn Íglasiglas

laugardagur, júlí 24, 2004

Útvist og sjóböð.

Fórum í dag til Orhúss.  Já lögðum bílnum á góðum stað við höfnina, bílastæði sem ég hafði fengið upplýsingar um hjá vinnufélaga mínum.  Fundum það með léttum leik og brugðum okkur á Strikið.  Fórum fyrst í eitt af stóru verslunarhúsununum Brúns gallerí, því okkur vantaði könnu til að búa til svona freyðandi mjólk útí kaffið.  Fundum þessa sérstöku könnu á endanum.  Og getum nú lagað kaffi með ekta kaffihúsastemmingu hér útí garði hjá okkur.  Röltum aðeins um í miðbænum, sáum einn lappalausann fiðluleikara (gáfum honum ekkert).  Síðan voru spilandi feðgar annar á fiðlu og hin á harmonikku, vínlykt af þeim báðum. (við gáfum þeim ekki neitt heldur).

Nú eftir miðbæjarröltið fórum við síðan á ströndina sem er rétt hjá okkur hér í Skannebooo.  Þar var nú heldur betur margt að sjá...já þar voru nú léttklæddir eldriborgarar og fólk á miðjum aldri og síðan unglingar eins og ég.  Börnin fóru í sjóinn og stunduðu sjóböð af miklum krafti.  Og svo fór á endanum að Axel Orri krafðist þess að ganga um nakinn... jú eitthvað sem faðir hans hafði einnig langað að gera en lét ekki eftir sér í þessari ferð. 

Og Axel Orri gerði meira en það, því hann gerði sér það að leik nokkrum sinnum að setjast svona á hækjur sér og prófaði nokkrum sinnum að finna freyðandi hafið leika við endann á sér.  Já drengurinn fann þarna upp einhverja aðferð sem virtist gera honum gott.  Mun sjálfur prófa þetta í næstu ferð.  Síðan þótti honum afar frumlegt að beygja sig framm nánast með höfuðið niður fyrir hné róta í sandinum...en beygja sig ekki sentimeter í hnjánum sem varð til þess að hann stóð í þrígang þarna beint fyrir framan okkur,  svo greina mátti  í blessuðu barninu komandi endajaxla...þetta er hinsvegar eitthvað sem faðir hans mun ekki prófa.  Drengurin hljóp þarna um allt á "rillanum" og var hinn ánægðasti.  Við fórum síðan heim eftir velheppnaðann dag og höfðum ein-rétta ítalska máltíð, pisssu.

Kristinn Strandkappi.

föstudagur, júlí 23, 2004

Derrik er kominn.

Það fór nú aldrei svo að Derrik og fjölskylda kæmi ekki til baka.  Jú jú þau eru mætt.  Allur skarinn, friðurinn úti og við ekki lengur alein.  Nú er bara tímaspursmál hvernær Derrik kemur yfir girðinguna til að fá eitthvað lánað. Það er nú það.  Seint í gærkvöldi komu tveir bílar stærðar flutningarbíll og fjölskyldubíllinn á þýskum númerum...og vissum við um leið að þar væri Derrik kominn.

Við höfum ákveðið að nota bílinn sem aldrei fyrr og reyna að vera aldrei heima...við ætlum strax á morgunn að fara eitthvað og koma ekki heim fyrr en Derrik og Frú Klein eru sofnuð.  Nágrannar okkar hér í hinum endanum eru nýkominn frá tveggja vikna ferð til Frakklands, þar sem þau lágu í sólinni.   Komu heim brún í framan, ekki þó af drullu heldur sólarslepju.  Á morgunn fer síðan Pólverjinn úr vinnuni til Póllands í ferðalag.  Allar þessar ferðir eru bara farnar á fjölskyldubílunum. Pólland, Þýskaland, Frakkland, Ítalía...allt er þetta keyrt með léttum leik.

Nú skiptir Axel Orri öðru sinni um dagmömmu, Gréta er kominn í fjögra vikna sumarfrí, og því hittum við nýja dagmömmu á mánudag.  Það kemur í ljós hvernig það gengur.  Við Anna Marín fórum í "sumarfrís-kaffi" til hennar í dag.  Jarðaberjakökur, súkkulaði og slikkerí...já það var dælig...Ætlum að grilla saman með Dorrit og fjölskyldu í kvöld. Fá sér einn eða tvo öl. 

Ég er ennþá mjög fullorðinn í framan, en veit hreint ekki hvað ég held þetta lengi út. Fjölskyldan hefur nú tekið fyrir alla snertingu og ég er að einangrast töluvert.  Sagður stínga, rispa, rífa, brenna og eyðileggja....ég er eiginlega aleinn....ég segi næstum eins og í laginu " Vill einhver knúsa þrjátíuogtveggja ára lagermann..."

ps.
ég vill biðja lesendur afsökunar...en síðasti pistill var draumur minn um eigið ágæti.  Það er ekki fyrr nú sem ég viðurkenni það fyrir sjálfum mér og þér líka lesandi góður, ég hélt ég hefði lent í þessu, ég hélt...fyrirgefðu.

Kristinn Broddgöltur.

mánudagur, júlí 19, 2004

Frægur maður í Danmörku.
 
Halló, halló heyrðu bíddu aðeins...heyrði ég kallað á eftir mér.  Ég snéri mér við og sá mann koma hlaupandi á eftir mér.  Hann kom lafmóður til mín og sagði "þú talar ensku" já já sagði ég.  "Ég vissi það, ég vissi það.  Þetta ert þú".  "Ha" sagði ég og gat ekki annað.  "Já já þú ert kominn hingað til Danmerkur viltu gefa mér eiginhandaráritun. Þú bara verður, þú verður, þetta er rosalega stór stund...skrifaðu hér á þennan miða" 
 
Ég var nú  hálfvandræðalegur yfir þessu látum, í manninum  og vissi ekki allveg hvernig ég átti að bera mig að.   Þannig að ég spurði  manninn  hvað honum gengi til og hvort við þekktumst.  "jú, sagði hann ert ekki Robert DeNiro ?.... þú ert nákvæmlega eins og hann.  Þú ert hann er það ekki ?"
 
Þá áttaði ég mig á því, að ég er orðinn svona líka  sláandi líkur Róbert DeNíro eftir að ég safnaði skeggi eins og hann hafði í myndinni t.d. Carlitos Way, já og í svo ótal mörgum myndum.  Ég er eiginlega orðinn nákvæmlega eins og hann.  Bara síðast í morgunn þegar ég vaknaði og  ég leit í spegil og sá ásjónu mína, og hvernig hárið lagðist svona til á höfðinu á mér eftir svefninn...þá gat ég bara ekki annað en hugsað um Róbert.  Við erum orðnir eitt.  Ég, DeNíró sami maðurinn.  Mikið rosalega er ég orðinn líkur honum. 
 
Ég ræddi þetta bæði við Dagmar og Önnu Marín í kvöld.  Þær kannast ekki við samanburðinn, og dóttirin hótar að hætta kalla mig  föður sinn nema ég raki skeggið af.  Við Dagmar höfum fjarlægst hvort annað verulega eða um 40 centimetra.  Síðast í gærkvöldi fannst henni eins og hún héldi frammhjá þegar ég "reyndi" að bjóða góða nótt....(að öllum líkindum með Robert DeNíró).  Nei svokallaðir "fjar-kossar" og "fjar-snerting" við börnin mín er það sem stendur yfir um þessar mundir.  En ég er alsæll ennþá. Er nákvæmlega eins og Róbert DeNiro.
 
Kristinn DeNiro.

sunnudagur, júlí 18, 2004

Flóamarkaður og Grillveisla.
 
Jæja það fór nú aldrei svo að við lyftum okkur ekki aðeins á kreik um helgina.  Dagmar var reyndar að vinna laugardag til hádegis...og ég líkt og áður í aðalhlutverki.  Nú síðan höfðum við verið að velta fyrir okkur að kíkja á flóamarkað í Losbíí...já íslensk stafsetning fyrir ættingjana..já semsagt á flóamarkaðinn þar. Og í því sem við erum að undirbúa Ljónið í ferðina.  Þá hringir síminn. Og er þá ekki íslenskir vinir okkar nákvæmlega í þeirri stórborg að hringja til að kanna stöðuna.  Úr því símtali verður síðan ákveðið að koma við og kíkja í síðdegiskaffi og grill...já maður bara hittir ekki fólk fyrir minna....nei annars við fórum á markaðinn og sáum ýmislegt.  Til dæmis voru þarna á einum stað allar jólagafirnar sem við munum gefa í ár og næsta ár og þarnæsta ár.  Já við gerðum góð kaup. Notaðir nærbolir með myndum og margt fallegt. 
 
Það er nú þannig með jólagjafarnir...að næstum óþarft er að minnast á en það er HUGURINN...já Hugurinn sem gildir en ekki verðmæti eða umfang gjafanna...eins og Heimir, Jón Þór og Matthías hafa alltaf haldið..... Svo bara gleðiðleg jól og veriði þakklátir  fyrir að fá bara nokkuð skapaðan hlut frá okkur hérna öreigunum í Skannebooo.
 
Þarna var líka allir helstu broddborgarar kommúnar samankomnir, og þangað munum við fara aftur, og aftur. Því allar afmælisgjafir framtíðarinnar verða keyptar þarna.
 
En eftir markaðinn fórum við semsagt til vina okkar þarna á svæðinu.  Gylfi Þór og Sigrún hafa búið þarna í fjögur ár...og höfum við nú oftar en ekki spurt þau um allt sem okkur langar að vita um Danmörku...við erum gjörsamlega hætt að spyrja Heimir bróðir hennar Dagmar, enda býr hann í Kaupmannahöfn...og það hefur aldrei staðist eitt eða neitt sem hann hefur sagt okkur um Danmörku.  En ég hef nú sagt frá því áður hér í pistli. 
 
Fengum við þetta flotta síðdegiskaffi og vöfflur og síðan var bara grillað ofaní Skanderborgarfjölskylduna.  Dagmar tók nú skærin með og klippti 50% af fjölskyldunni þau Gylfa og Söru  dóttur þeirra.  Og heppnaðist sú snyrting bara vel.
 
Á morgunn kemur ný vika með nýjum áskorunum.  Við tökum á móti henni með gleði og ró í hjarta.
 
Kristinn markaðsmaður.

fimmtudagur, júlí 15, 2004

Anna Marín komin.


Jæja þá er hún nú loksins komin til okkar, dóttir okkar. Það er virkilega gott að hún er nú komin. Við fórum í gærkvöldi að taka á móti henni, en eitthvað tafðist nú vélin þar sem það varð seinkunn um næstum klukkutíma. En við fengum hana nú út á endanum. Ferðin frá Íslandi gekk einstaklega vel og Anna Marín var mjög ánægð. Unnur Ýr vinkona Dagmar hjálpaði henni í gegnum þetta en hún hafði einmitt skipt um vakt og var því flugfreyja í ferðinni. Við fengum því miður hvorki að sjá né heyra í Unni Ýr á vellinum, en svona eru reglurnar. Við fengum heldur ekki að fara inn og sækja Önnu Marín, hún kom sjálf út í fylgd með flugvallastarfsmanni.

Við fórum á Ljóninu og sóttum hana og komum reyndar alltof snemma (fyrir utan seinkun). Það tók okkur um 40 mín að keyra á flugvöllin í björtu en rúmam klukkutíma til baka í myrkri. Já við skelltum okkur því í smá bíltúr áðurn en vélin lennti og fórum til Give sem er rétt hjá Billund. Þar vorum við einmitt fyrir tveimur árum þegar við gistum í heimagistingu á þeim slóðum. Það var gaman að koma þarna aftur og rifja upp fyrri ferðir undir öðrum formerkjum.

Axel Orri er afar ánægður með að systir hans er kominn. Hann er búinn að tala um það alla vikuna og búa til gjafir handa henni hjá dagmömmunni. Hér í fyrrakvöld var hann á leiðinni í háttinn, eða átti að fara í háttinn. Hann var nú ekki mjög ánægður með það og fór í eina af sínum einstöku akranesku-fýluköstum. Stóð hér á stigapallinum og sagði með miklum áherslu tónn. "Ég fer niður" og þá var hann spurður "Hvað ætlar þú að gera niður, þú átt að fara bursta og fara í rúmmið"...þá kom svarið sem kom okkur svolítið á óvart. Hann svaraði "Ég niður ég vill bjór".

Hvert stefnum við í uppeldismálum...tja það verða menn bara að sjá þegar þeir koma í heimsókn. Hingað, já það eru breyttir tímar. En ég hef nú beðið móður hans að hægja aðeins á sér í ölinu.

Kristinn alsæll faðir.

þriðjudagur, júlí 13, 2004

Himmelbjarget og Sykurtoppurinn.

Fórum nú í litla útileiguferð með nestiskörfuna okkar og hitabrúsa. Skelltum okkur með Dorrit og fjölskyldu, sem hafa lítinn kálgarð ca 20 km frá okkur hér. Við vel falinn bóndabæ sem þau höfðu búið á tímabundið. Þarna slökuðum við á í dagsstund og söfnuðum orku. Og þvílík orka sem maður fékk, það var ótrúlegt að sitja þarna við lækjarsprænuna og sjá heilu fjölskyldurnar sigla niður á kanó eða kajak...eitthvað sem við erum ákveðin í að leigja áður en langt um líður. Já að láta sig fljóta niður þessar ótal mörgu læki og ár og enda svo í kyrrð og ró á miðju vatninu...er nátturulega bara eitthvað sem maður les um í sögubókum en upplifir hér í borginni.

Nú við keyrðum síðan lítið lengra og fórum á Sukkertoppen sem er ótrúlega magnaður útsýnisstaður þar sem sést yfir dali og hóla og "fjöll". Þetta heitir Sykurtoppurinn því þarna er kvartz-sandur sem minnir alla á sykur. Nú síðan fórum við á Himmelbjarget...hin sögufræga stað. Já það endaði nú svona og svona......

Eftir dagsferð var kominn tími til að fara á klósettið, og ákváðu nú feðgarnir að bregða sér á klóssettið þarna á Himmelbjarginu. Nú við röltum tveir saman af stað og komum að toi-lettunum. Drengurinn hafði áður sagt að hann þyrfti að pissa en eftir því sem við komum nær...þróaðist þetta í að hann þyrfti að gera númer Tvöö. Allt í lagi með það. Nú við komum þarna að klósettinu og annar eins sóðasataður fyrirfinnst nú varla....subbulegri klósettaðstöðu er vart hægt að hugsa sér. Þvílík skömmm...enda fór svo að sú "útvíkkun" sem drengurinn hafði fengið áleiðis á klósettið gekk fullkomlega til baka og hann neitaði að setjast á klósettið. Jamm punktur. Það var sama hvað pabbi hans gerði til að fá hann á klósettið...Neibbb..."ég bara get iggi" sagði hann.

Þá verður svo að vera sagði faðir hans...nokkuð pirraður, en þó ekki. Drengurinn stóð nú í dyragættinni. Tilkynnti nú faðir hans að hann ætti að standa grafkyrr...og bíða þangað til húsbóndinn sjálfur hefði nú pissað. ég fikraði mig nú nær þvagskálunum...sem þarna voru en ekkert ljós var inná salerninu þannig að af þeim 8 skálum sem þarna voru valdi ég þá sem stóð næst dyrunum. Sömuleiðis til að geta rætt við drenginn og séð hann áfram. Hann stóð nú kyrr þarna í hurðinni....og faðir hans lét bununa í gang....þar sem bunan er kominn vel í gang og útlit fyrir afléttingu synda dagsins..Tilkynnir drengurinn stundarhátt.."Nú FER ÉG TIL MÖMMU". Með einstakri lægni og ljúfmennsku í röddinni sagði ég " NEIIIIIIIIIII, þúúú ferrrð ekkki neiiiittttt, stattu grafkyrrrrr "

Samstundis reyni ég að hægja á bununni því óvíst er hvað gerist næst....en það sem gerðist var að drengurin sagði "Ég er FARINNNN"...og hljóp út. Bunan var ennþá að renna og ég missti útúr mér á íslensku...stundarhátt.. "ANDSKOTINN". Sé ég ekkki þar sem drengurinn hleypur af stað, útá plan, ég í fáti stöðva bununa næstum með ofbeldi. Snýr mér samstundis að dyrunum, þar stendur þá dönsk eldri kona, amma barnanna sem þar voru líka, öll með ís í hendi og horfir hún í áttina að salerninu þar sem ég stend. Ég hægi á mér meðan ég hneppi buxunum, drengurinn er nú kominn ískyggilega langt í burtu, og langt frá því að vera á leið til mömmu sinnar. Gremjan og pirringurinn yfir stjórnleysi mínu yfir syni mínum, er að ná hámarki, og það að eiga á hættu að missa síðustu dropana í buxurnar eru að gera mig geðveikann. Ég hneppi og hleyp sem eldibrandur á eftir drengum yfir bílaplanið, hann nálgast þá söluturn, svo ég hleyp enn hraðar áður en hann kemur að götunni. Ég teygi mig á hlaupunum og snarkippi í hann. Honum bregður svo við að hann öskrar af öllum lífs og sálarkröftum. Ég næstum í móðursýkiskasti yfir því að týna drengnum, hlaupa á eftir honum og missa allt í buxurnar. Hafa nú gert mig næstum sturlaðann af bræði. Ég tek drenginn undir hendina. Vitandi það að hvar sem er gætu leynst fulltrúar dönsku barnaverndaryfirvalda. Ég tek hann og geng rakleitt að Svarta Ljóninu. Þar er drengurinn bundinn niður og settur í stól sinn. Grenjandi. Ég sest í ökumannssætið, hugsa um allar þær róandi töflur sem framleiddar eru í heiminum og hvað það gæti verið gott að hafa eina, bara kannski eina í hanskahólfinu á bílnum. En þar er ekkert. Ég set útvarpið á og hækka. Lygni aftur augunum og reyni að slaka á. Finn samt að ég á ennþá eftir að pissa.

Kristinn ennþá í spreng

sunnudagur, júlí 11, 2004

Danskt brúðkaup.

Já það fór nú svo að við fórum í brúðkaupið í gær. Dorrit tók að sér að passsa drenginn og fékk hann að gista. Það gekk síðan ljómandi vel og gátum við verið áhyggjulaus í veislunni amk hans vegna.

Brúðkaupið hófst í kirkjunni okkar hér í borginni. Þangað mættu gestir prúðbúnir í einhverri þeirri mestu rigningu sem um getur. Já himinninn grét af gleði allann tíman, allann daginn, alla nóttina. Við gengum til kirkju og þar mætti okkur brúðguminn og heilsaði. Svarmaðurinn var besti vinur hans og þeir stóðu í anddyrinu í kirkjunni. Síðan settust gestirnir þannig að öðru megin sat hennar fjölskyldan og hans hinumegin. Við settumst hans megin. Nú athöfnin var hátíðleg, móðir besta vinar hans, söng Ave Maria og tókst afar vel upp. Athöfnin stóð í klukkutíma. Við keyrðum síðan á BÍLNUM OKKAR til veislunnar sem var í hálftímaakstri frá kirkjunni. Það gekk síðan ljómandi vel.

Hófst nú veislan og fór maður nú að skoða veislugestina. Í fyrstu var boði uppá bjór eins og hver gat í sig látið...og þann einn og hálfa klukkutíma sem myndatakan var hjá parinu...drukku menn þétt og mikið af bjórnum......Það verður að segjast að minnti þetta helst á brúðkaup hjá Jóni og frú Vigdísi.(klæðnaðurinn) Ekki laust við að örlítið væri þarna frá Jóhönnu & hr. Ingþóri(maturinn), og smá vottur frá Bjarna Óla og Árný Veislu.(vínið). Brúðkaup Guðlínar og Guðmundur kom síðan uppí hugann...þegar leið á veisluna..eða eins og Silla frænka sagði...þetta er góður sopi....

Þegar sest var til borðs var vitanlega búið að raða niður...ég kom þarna sem partur af vinnufélagaliðinu og við Dagmar þekktum því ekki marga. Við sátum ekki saman. Neibbbb...öllum veislugestunum var raðað þannig til borðs að enginn pör sátu saman...það tókst afar vel í okkar tilfelli enda við sérstaklega málgefinn og gefum okkur að öðru fólki. Við áttum því ekki í vanda með þetta....hefði maður verið sjálhverfur, innhvefur eða á röngunni hefði þetta orðið vandamál. Fyrri part kvölds var því setið svona í borðhaldinu. Það var skemmtilegt.

En aðeins um hópinn sem mætti. Skrautlegri veilsugesti hefur maður nú sjaldan séð. Pabbi brúðgumans er líklega langt genginn í fimmtugt. Í anda, hegðun, fasi og framkomu er hann ekki deginum eldri en 26 ára gamall. Hann er með axlasítt hár (álíka og Dagmar), gráhærður herðar niður. Gekk í leðurjakka, og smókingbuxum í brúðkaupinu. Í svona ca, 3ja þumlungsþykkum skóm. Og hafði ávallt svört sólgleraugu utaná vasanum. Ræðan hans í brúðkaupinu gekk útá allann þann fjölda af gömlum kærustum sem brúðguminn hafði sofið hjá. Og þótti röffff.. En síðan var brúðurinn sú besta og hún var lengst inná heimilinu og er ennn.. Pabbi brúðgumans var síðan um kvöldið kominn í djúpan koss...eða eins og unglingarnir segja hörku sleik.....við seinni konuna sína...það var nú það. Við fölnuðum uppp..við þessu var hinsvegar ekkert hægt að gera. Svona er hann bara.

Móðir brúðgumans var áður en maturinn var kominn á borðið, kominn niðrí hálfa-aðra rauðvínsflösku, fjóra bjóra og tvö sérrístaup. Ræðan hennar skildist ekki.
Veislustjórinn faðir brúðarinnar var nú ekki eftir svo mjög langann tíma orðinn nokkuð slompaður. Svo fór að þegar hann var búinn að fá sér nóg í bili, hélt hann sína ræðu. Hann komst vel að orði og átti góðann sprett í ræðunni sinni...en síðan sagði hann veislugestunum sem sífellt gjömmuðu frammí ræðunna, að halda kjafti. Í að minnsta kosti tvígang sagði hann hátt og skýrt ..hold kjaft.... Við háborðið sat einnig móðir brúðarinnar, en hún og faðir brúðarinnar skildu þegar hún var lítil. Sama var að segja um foreldra brúðgumans, þegar þau höfðu átt sjö börn skildu þau. Pabbi brúðgumans var síðan kominn með nýja konu uppá arminn eins og áður sagði.

Undir þessu öllu saman, var keðujureykt milli rétta, og sífellt verið að skála, rauðvínið flaut um allar gáttir, Og síðan var kaffi og koníak með kransakökunni..ræðurnar héldu áfram en sífellt heyrðist minna og minna af því sem sagt var. Gestirnir neituðu að þagna, og töluðu, reyktu og drukku útí eitt.

Kvöldið endaði síðan með hljómsveitarspili þeirrar heimsfrægu hljómsveitar Old Spæs, en hún var samansett af félögum sem eru vinir föður brúðarinnar.

Við fórum heim klukkan rúmlega eitt, höfðum þá verið í brúðkaupinu í 11 klukkutíma. Við vorum orðinn svo gjörsamlega úrvinda, reykt sundur og saman. Dönsuðum nú reyndar nokkra dansa með hljómsveitinni...og keyrðum síðan heim...já hver keyrði heim..góð spurning..

Húsbóndinn sjálfur tók um stýrið og ók spússu sinni heim. Inní rökkur kyrðina á hraðbraut lífsins, þjóðvegi E45 heim, heim í Skanderborg.


Kristinn Reykur.

fimmtudagur, júlí 08, 2004

Eintóm hamingja eða hvað.....


Jæja við erum ennþá himinlifandi yfir nýja bílnum okkar. Já maður fór bara lengri leiðina heim í dag. Sótti Axel Orra og síðan tókum við feðgarnir eina salíbunu um hverfið...það var ljúft. Axel Orri ræddi mikið í dag við dagmömmuna og sagði henni frá bílnum. Svo fór að hún kom vitanlega út að skoða með drengnum þegar ég sótti hann. Nú styttist í að við förum í brúðkaupið hjá vinnufélaganum. En Pólverjinn kemur nú ekki þar sem hann er að jarða á morgunn föstudag í Póllandi, aftur. Við höfum nú ákveðið að fara á bílnum í brúðkaupið þótt okkur hafi nú verið boðið far....já maður getur bara ekki leyft sér það að nota ekki bílinn...áfengi...ekki inn fyrir okkar varir. Nei aldrei aldrei aftur, ætlar Dagmar að smakka það...svo við getum alltaf verið á bílnum.....já það er yndislegt þetta líf.

En það er nú ekki svo hjá öllum. Horfðum í kvöld aðeins á sjónvarpið. Heimildarmynd sem var tilnefnd til Óskarsverðlaunanna. Mynd um náunga í Bandaríkjunum sem fæddist ekki bara mikið lamaður heldur einnig spastískur. En það sem var svo merkilegt var að hann var gjörsamlega fangi í eigin líkama. Þetta er náungi sem er allveg með fulla fimm....en getur sig nánast ekki hreyft og talar mjög óskýrt.

Myndin fjallaði um líf stráksins, og það var fylgst með honum frá því hann var 12 ára til 26 ára. Það er svona baráttusaga og sannarlega hetja hversdagsins. Hann fór í skóla fyrir fatlaða. Mamma hans ákveður að setja hann í almennan skóla, hann pikkar á tölvuna með priki sem fest er á höfuðið á honum. Hann fer í skólann, lýkur framhaldsskólaprófi, flytur að heiman og býr einn. Í þessu öllu síðan kemur í ljós að hann hefur einstaka myndlistarhæfileika sem hann hefur síðan nýtt sér. Hann málar með því að festa þar til gerðan búnað á höfuðið og hann hefur haldið sýningar og vakið mikla athygli.

En eins og fram kemur í myndinni og einn viðmælandinn segir " Ef þeir sem hefðu heilbrigðan líkama hefðu bara aðeins, örlítið af þeim innri styrk og krafti sem þú hefðir, þá væri margt öðruvísi".

Það er einmitt það. Afar athyglisverð mynd.
Það er nefnilega yfirleitt þannig að maður verður að upplifa, sjá eða heyra af óhamingju annarra til að átta sig á því hvað maður hefur það gott. Það er svo merkilegt. Og maður er sennilega aldrei nægilega þakklátur fyrir það sem maður hefur.

Séra Kristinn.

miðvikudagur, júlí 07, 2004

Bíll.

Það er kominn bíll á heimilið. Gerðist í dag klukkan fimm. Maður finnur samstundis þá yndislegu breytingu sem verður á fótunum. Það svona líður úr manni þreytan, og nú bíður maður þess að fá siggg á tærnar eftir kúplingu og bremsuna. Já það eru breyttir tímar. Nú verður hægt að snúa við blaðinu og aka á móts við vindinn og veröldina.

Við erum alsæl og mjög ánægð með kaupin. Pus-sjó var það, já það þætti nú ekki merkilegt á Íslandi....nei þar er það Tojotann. En öðru máli gildir í stærri samfélögum mannnanna eins og hér í Danmörku. Þar kaupa ALLIR Pusjú. Það er sá bíll sem hefur verið söluhæstur síðustu fimm árin. Svo til að tryggja okkur fyrir endursölunni ákváðum við að veðja á hann. Og síðan er það nátturulega þetta himneska slagorð...."Ljón á veginum" það segir nú bara allt. En ég hef nú reyndar notað það þegar ég hjóla um hverfið sveittur á rassinum .....en það er annað mál...það var einu sinni...ekki meir, ekki lengur.

Kristinn Aðstoðarökumaður.

þriðjudagur, júlí 06, 2004

Syfjaður á hjólinu.

Það er ekki laust við að maður geispi nánast golunni hér á leið í vinnuna þessa morgnana. Upp úr bælinu klukkan hálf sjö til að gera sig klárann. Annars er ég byrjaður með nýjan vinnutíma. Vinna hefst núna klukkan hálf átta alla daga nema mánudaga þá klukkan sjö. Og alla daga lýkur vinnu klukkan hálf fjögur nema föstudaga þá er það klukkan hálf þrjú. Það verður að segjast að það verður nú aðeins meira úr deginum fyrir vikið. En maður vinnur jú sama tímafjölda eftir sem áður. Og svo eru það heimilisstörfin, já það vantar nú ekki. Við erum saman í þessu sambandi og við erum saman í húsverkunum og uppeldi barna okkar...við erum samrýmd og við gerum þetta saman....jamm...þetta las ég í viðtali held í í Vikunni eða Nýju Lífi...svona er þetta næstum hér....

Á mánudögum skiptumst við á, í vinnunni að kaupa Fransbrauð til að hafa í morgunkaffinu (rúnstykki á föstudögum). Í gær var minn dagur að kaupa svo ég var farinn útúr húsi hér á reiðhjólinu mínu klukkan hálf sjö. Segi ég og skrifa...farinn út á hjólinu klukkan hálfsjö. En þar sem ég ætlaði að koma við í bakaríinu fór ég mér rólega. Ég taldi víst að það opnaði nú ekki fyrr en sjö. En þar sem ég hjóla uppað Bavinchi Bakaríí í Stilling. Blasir við mér morgunvaktar konan. Hún var æði hress, hefur reyndar mjög sérstakan kæk, og hann er sá að hún þylur alltaf upp jafn óðum það sem maður ætlar að kaupa. Og það ekkert á lægstu nótunum neiheiiii.... maður segir 2 rúnstykki með birki....þá svarar hún svo allir í búðinni heyra " TVÖ RÚNSTYKKI MEÐ BIRKI" og síðan segir maður einn kanilsnúð..og hún svarar svo undirtekur í bakaríinu og allir heyra " EINN KANILSNÚÐ" þetta er ótrúlegt að hlusta á þetta. T.d. voru fjórir á undan mér í röðinni og blessuð konan galaði yfir alla, ALLT bókstaflega ALLT sem þetta fólk keypti. Hún gæti t.d. ekki selt verjur í apóteki...það myndi enginn kaupa.

Nú nema hvað...bakaríð var galopið þegar ég renndi í hlað um korter í sjö...og það opnar ekki klukkan sjö fyrir gesti og gangandi. Á hverjum degi opnar bakaríið frá mánudegi til föstudag klukkan HÁLF-SEX á morgnanna. Jammm...maður getur mætt þarna uppúr fimmleytinu til að kaupa sér nýbakað brauð. Það er því langur vinnudagurinn hjá talgóðu konunni.

Annars gengur allt annars fínt. Axel Orri er nú orðinn mjög sjálfstæður í klósett málum, nú fer hann og pissar sjálfur eða gerir númer tvö. Síðan er það bara hending hvort maður nær að komast til hans áður en hann stekkur af klósettinu. Því honum er það kappsmál að enginn, komi til aðstoðar og hann geri þetta allt sjálfur. Hann er mjög stoltur af sér. Hann er núna hjá "gesta-dagmömmunni" henni Grétu en Læla er kominn í fjórar vikur í sumarfrí. Hann er bara mjög ánægður enda þekkir hann orðið Grétu mjög vel.

Dagmar er í fríi á þriðjudögum og í dag var farið í búðarleiðangur á reiðhjólinu og keypt sittafhvorutagi.
Farið á pósthúsið og farið síðan heim. Fullur vinnudagur á morgunn.

En það er nú þannig í lífinu að gleðin sem er besta víman, ætli ég skjóti ekki á mína einum léttum brandara snöggvast.

Kristinn Bakaradrengur.

mánudagur, júlí 05, 2004

Allir heilsuhraustir.


Já það var nú það sem forstjórinn sagði við mig í morgunn þegar ég mætti til vinnu. Og síðan glotti hann við tönn. Hann sagði eiginlega "eru ekki allir hressir hjá þér Kristinn". Kaldhæðnislegur gálgahúmor þar á ferð eða hvað ? Nei líklega bara danskur húmor í hnotskurn afhverju jú vegna þess.......

Pólverjinn fór heim í síðustu viku nokkuð niðurlútur, tengdafaðir hans eldri maður á níræðisaldri, hafði misst heilsuna nokkru fyrr og var orðinn rúmliggjandi. Svo var komið að honum var vart hugað líf.
Og hann því dó....í síðustu viku.

Þegar mér var sagt þetta í morgun, munaði ofurlitu að ég færi að hlæja, en það var vitanlega ekki yfir því að gamli maðurinn hefði gefið upp öndina. nei það var vegna þess hvernig mér var sagt þetta. Maður er nú alltaf að læra eitthvað nýtt í dönskunni. Málið er að hér segja menn ekkert... "já það er nú það nú er hann látinn" óneiiii..... hér er eitt orð yfir þetta látinn, andaður, liðinn, kominn yfir móðuna og allt það.
Hér eru menn einfaldlega død.

Þetta hljómar í eyrum manns sem kann ekki allt í dönsku einfaldlega sem dauður. Þetta hljómar hranalegt og kalt. En semsagt tengdapabbi hans var því dauður. Og ekki nóg með það heldur dó fósturfaðir hans einnig nú um helgina tveimur til þremur dögum síðar. Svo frásagan hélt áfram hjá vinnufélaganum. "Hann er líka dauður" Það er nú ekki víst að þú lesandi góður náir samhenginu nema að hafa heyrt þetta á dönsku....en skondið er það.

Hörmungarnar héldu áfram í vinnunni í dag. Ung stelpa sem er í sumarafleysingum og átti að byrja í morgunn, fór á mótorhjólinu með kærastanum áleiðis til vinnu. Það var keyrt á þau á leiðinni og kærastinn dó og hún liggur stórslösuð á sjúkrahúsi, lærbrotinn, handleggsbrotin, viðbeinsbrotin...og ég veit ekki hvað og hvað. Á leiðinni sveigði bíll í veg fyrir mótorhjólið með þessum afleiðingum.

Um hádegið kom síðan í ljós að fyrverandi starfsmaður hjá fyrirtækinu væri dáinn úr hjartaslag, 65 ára gamall. Mjög óvænt og án þess að hafa fundið fyrir nokkru.

Ég þekkti ekkert að þessu fólki og hef aldrei hitt neinn. Ég hélt bara áfram mínum störfum, það var nú ekki að sjá að neinn væri í sjokki enda spurði forstjórinn " Kristinn, eru ekki allir heilsuhraustir hjá þér"
Svona er lífið.


Kristinn í ágætis formi.

föstudagur, júlí 02, 2004

Helgarpistill.

Ef það er eitthvað sem fer hrikalega/svakalega í taugarnar á mér þá er það það þegar sofið er yfir sjónvarpinu. Ég get allveg tapað mér þegar það gerist. Já það gerist nefnilega reglulega hér yfir dönsku sjónvarpsdagskránni en það er ekki ég, ó nei það er HÚN sem sofnar. Síðast í gærkvöldi ákváðum við aðeins að kíkja á sjónvarpið jú jú bara róleg og rómantísk mynd, í ammerískum stíl. Við sátum fyrst í sitthvoru hvorninu svona í sófanum, brostum, hlógum, skiptumst á athugasemdum um myndina og svona.

Nú síðan ákveður HÚN að færa sig nær mér. Jú jú sem er bara notalegt, HÚN tekur teppið og svona "hjúrar" sig uppað mér. Já notaleg stund við sjónvarpið. Ég segi við HANA " þú ert ekkert að sofna er þaaa ? " Nei, nei hvaa elskan mín, ekki aldeilis"...nú líður og bíður, myndin rúllar og er bara nokkuð skemmtileg, skyndilega finn ég svona einhvern sérstakan hita, já svona næstum vatn sé að renna niður hendina á mér einmitt þar sem HÚN liggur. Ég læt á engu bera en spyr "Ertu sofnuð ?" það er eins og örvæntingarfullt svar komi frá HENNI " haaa nei nei, ég er bara í slökunn sko, nei ég er að horfa"...nú líður og bíður og aftur finn ég hitann og rakann koma. Ég halla mér aðeins fram og sé þá að útum vinstra munnvikið, vætlar munnvatnsdreytill...augun lokuð og HÚN steinsofandi og slefandi á hendina á mér.

Myndin rétt að verða búinn. Ég geri ekkert sit bara kjurr, og bíð þess að myndin klárist. Þegar síðan textinn fer að rúlla yfir skjáinn, myndin búin er ég orðinn svo, svekktur og pirraður að sitja þarna aleinn yfir sjónvarpinu með HANA liggjandi á hægri síðunni á mér, slefandi og hálfhrjótandi, að ég stend bara nokkuð kröftulega upp. Svo HÚN örugglega rumski...og það klikkar ekki hún vaknar upp og segir " Já, þetta var nú ágæt mynd, jahérna hér".

Ef þetta er ekki til að gera mann geðbilaðann í skapinu...síðan er farið upp og burstað. Og þá kemur "það getur verið að ég hafi eitthvað misst úr". Þá er ég orðinn svo geðvondur að það tekur mig allt að 40 mínútum að ná mér niður þegar ég svo leggst á koddann. HÚN bara heldur áfram að sofa, og gott ef ekki strax er kominn þessi persónulega munnvatns-kodda-slefs einkenni sem vafalaust er hjá fleirum í ættinni. En svona er sambýliskonan..skyldi það breytast ef hún giftist.....


Kristinn Lokbrá.

fimmtudagur, júlí 01, 2004

Flugfreyjan hringir.

jæja ósköp hefur maður nú verið rólegur í tíðinni við skriftir. En þetta er nú bara svona. Fyrsti dagurinn í dag í nýju kerfi hérna í Skanderborg. Jú nú hefur heimilisfaðirinn tekið aukin þátt í rekstri heimilisins. Þannig er að að bóndinn byrjar nú í vinnu á hverjum morgni klukkan hálf átta í stað hálf níu. Þannig að vinnudeginum lýkur því nú frá 1.júlí klukkan 15:30, já það er nú meira sældarlífið skyldi einhver hugsa...en reiknið nú. Hvorki er tekið kaffi né pásur, nema til að bregða sér á Settið. Síðan eru 30 mín í mat. Og maður skal hafa matinn með sér. Svo það er nú ekki allt fengið. Nóg um það. Mánuðurinn losar í vinnustundum 160,3 klst.

Við höfum nú svona velt fyrir okkur hvernig Önnu Marín gangi eins síns liðs í fluginu til Danmerkur. En skyndilega hringdi í okkur flugfreyjan sem flýgur í sömu vél og er að auki á vaktinni. Já flugfreyjan fékk vinnunni breytt hjá sér svo hún gæti fylgst með dóttur okkar í fluginu. Snillingur þar á ferð. En þetta er nú æskuvinkona hennar Dagmar, Unnur Ýr...gott ef bóndinn mun bara ekki fljúgja. Flugmaðurinn Konni. En það er óvíst. Nema hvað hún fékk skipt og flýgur nú þetta flug sem Anna Marín kemur með. Mikill er sá léttir, og það auðveldar nú öll mál. Takk fyrir þetta Unnur Ýr.

Já breyttur vinnutími. Dagmar litla fór nú í fyrsta sinn í langann tíma í vinnuna undir þeim formerkjum að fara ekki út fyrir að loknum fullum vinnudegi. Hún andvarpaði ógurlega í gær, í gærkvöldi, í morgunn og í hádeginu yfir þessu. En það er nú vonandi að þetta gangi. En við munum nú ekki allt okkar líf hafa þetta svona. Við sjáum hvernig þessi mál þróast og hvort okkur tekst að halda heimilinu gangandi, með húsbóndann í aðalhlutverki.

Annars er nú pirringurinn í að ná hámarki í vinnuni, forverinn í starfi mínu, þykir ég vera orðinn full mikið sjálfstæður og hefur orðið nokkrar skoðanir á því hvernig á að vinna verkin...eitthvað sem húsbóndanum hér í Skanderborg er ekki að falla mjög létt í geð. En það eru nú ekki nema 8 stundir þar til hann fer í sumarfrí í þrjár vikur. Og þessvegna var nú ákveðið í vikubyrjun að bíta á jaxlinn og láta þetta yfir sig ganga út þessa viku... Já svona þessi skynsemisrödd sem hljómaði í eyrum mér og sagði " Kristinn minn, nú er bara að róa sig niður, átta sig á stöðunni og segja ekkert sem gæti valdið dauðsfalli eða kallað á áfallahjálp vinnufélagana" sem nótabene hafa aldrei séð húsbóndann hér skipta skapi. Og fara úr "já-sjálfsagt-gírnum" sá tími er hinsvegar liðinn eftir 24 klst, eða 7,5 stunda vinnudag á morgunn. Þetta gengur ekki lengur.

Fleiri hús eru að byggjast í hverfinu, og leikvöllurinn hér á lóðinni er að taka á sig mynd. Við höldum áfram í hugleiðingum okkar um bílakaup og erum orðin spennt fyrir Pussjó 206, litlum, dýrum, sparneytnum bíl hér í Danmörku. Meira um það síðar.

Kristinn við það að springa.

Counters
Web Site Counter