þriðjudagur, janúar 31, 2006

Ef það er ekki í hillunni....

Í morgunn fór neminn af stað í leiðangur, já það vantaði rafmangskapla til að tengja Kirkjukrónuna. Og nema hvað arkað í næstu byggingarvöruverslun. Og þar rambaði ég á hilluna með víraleiðslunum. En ekki var nú að sjá að til væri jarðtengdur kapall, svo ég snéri mér að afgreiðslukonunni, sem stundi ógurlega um leið og hún rogaðist með kassana af brettinu, þarna inní miðri búð og setti í hilluna. Enginn kúnni sjáanlegur, bara ég og hún. Við alein tvö.

Ég nálgast hana ofurhægt og læddi útúr mér “Góðann daginn, áttu nokkuð kapalsnúrur með þremur vírum?” og síðan brosti ég....og svarið fékk ég þegar í stað útúr tómat rauðu andliti afgreiðlsukonunnar. “Ef-þa-e-ekki-hilluni, þá erþa ekki til” og síðan hélt hún áfram að vinna. Nohhhh...hugsaði ég klassískt svar, svo þjónusturíkt, svo sjarmerandi.

Ég labbaði því aftur að hilunni og sá vírahrúguna, en enga jarðtengda, þannig ég hugsaði með mér, “allt í lagi ég kaupi bara tíu metra kapal, án jarðar”...svo nú fór ég aftur til afgreiðslukonunnar sem var komin langleiðina með að tæma af brettinu. Og það var ekki laust við að hormónalykt og vinnulykt hinnar rússnesku Olgu legði fyrir vit manns.

Reynslunni ríkari, varð ég ögn svona auðmjúkur í röddinni því ég sá strax að hún hafði hvorki fengið Kornflex eða Hafragraut þennan morguninn..og að auki verið skipað að tæma brettið góða...svo ég spurði bara “Hérna, áttu nokkuð kapal í minni rúllu en hundrað metrar, sko með tveimur vírum það er nefnilega allt í lagi, sko tveir vírar?” Og ég fann sjálfur þegar ég talaði að ég var raunverulega að ég senda henni samúðartón, og yfirvegun mín var mikil í von um að geta hjálpað henni í gegnum daginn.

Hún leit upp, og það vottaði fyrir svitadropa á vanga hennar...klukkan var nú átta mínútur yfir níu, og ég fyrsti kúnninn...sko...já og aftur kom svarið frá þessari elsku “ef þa er ekki í hillunni þá er það ekki til” Ég var svo hissa á svarinu að ég missti útúr mér “Ooog á ég bara þá að leita í hillunni” og jú ég viðurkenni að samúðartónninn var horfinn. Og það stóð ekki á svarinu “ Jááááááááááááááá” sagði hún. Uhummm...þessu átti ég nú ekki von á, tók á rás, labbaði uppað henni og sagði með karlmennskutón, höstulega, með fyrirlitningu, og reyndi að horfa niður á hana...(hún var aðeins hærri en ég) Og sagði “neheii, það held ég sko ekkki” og labbaði út.

Það vona ég að hana dreymi vel, og hún þjónusti mig bara betur næst, ég fyrirgef henni, við getum öll átt slæma daga......ég vona bara að hún verði rekin fyrir vikulok.

Kristinn Viðkunnalegi.

mánudagur, janúar 30, 2006

Kirkjulegir munir.

Helgin liðin, já vorum í slökun, útivist og leikir. Já frostið hér og trén öll í klakaböndum. Mögnuð sjón blasti við okkur hér í garðinum og einnig allt um kring. Tókum nokkrar fjölskyldumyndir og auðvitað með matarkörfuna, heitt kakó á brúsa. Sunnudagurinn var síðan bara í umhverfis-íhugun.

En í dag var farið í leiðangur, sem endaði á trúarlegum nótum. Já það verður ekki annað sagt. Við höfum lengi ætlað okkur að eignast ljósakrónu sem stofustáss. Við vorum því svona að líta eftir einhverju spennandi í antík búðum Jótlandsins. Og í dag, já þá lauk leitinni. Í Silkeborg, fundum við ljósakrónu frá einni af kirkjum bæjarins.

Tíu-arma kertaljósa króna úr miðju kirkjuskipinu, það eru ófáir sálmarnir sem hún hefur fengið að hlusta á blessunin, og það fylgir henni undarleg kyrrð þegar við tendrum á henni ljósin. Guðminnalmáttgur. Maður verður nú að rifja upp nokkra sálma.

Kristinn Ljósálfur.

föstudagur, janúar 27, 2006

Bekkjarbræður- og systur.

Í tilefni próloka ákvað hópurinn úr Pólitískri Spillingu að fara út að borða. Já og þessi fíni veitingarstaður fundinn inní Aarhus. Það er hinsvegar ekki seldur dropi af áfengi inná þessum stað. Því það er ætlast til þess að maður komi sjálfur með vínið. Já síðan kemur hver maður með sína flösku og drekkur af stút...ha nei nei maður fær sko vínglös og svoleiðis, já og flaskan opnuð. Staðurinn selur síðan kaffi og te og eplsasafa.
Hér erum við bara að tala um viðskiptahugmynd sem útfæra mætti í hinum íslenska ódýra veitingabranza.

Nema hvað þetta var mjög skemmtileg og fékk maður ýmsar nytsamar reynslusögur af kennurum háskólans og áhugaverðum kúrsum.

Einn samnemenda minna er einmitt innflytjandi eins og ég hann, Jesper sem þarna var með bróður sínum. Komu skemmtilega á óvart, en hann er frá Finnlandi. Það voru því norrænar samræður fram eftir kvöldi. Síðan var það næturhraðlestinn heim.

Kristinn Glaði.

fimmtudagur, janúar 26, 2006

Próflok.

Jæja þá er þessi önn búinn. Og maður getur aftur leitað jafnvægis. Já ekki verið sá skemmtilegasti undarfarið, enda búinn að borða nokkur glös af sprengitöflum. Þetta hafa verið áttaka tímar. En nú semsagt er lokið prófi um Spillingu í löndum heimsins, og prófi í Áhrifum fjölmiðla á pólitískar skoðanir fólks. Vill einhver sperja....????

Það ætlar seint að renna af manni prófkvíðinn, já asskoti getur maður orðið stressaður undir þessum kringumstæðum. Bæði voru þetta munnleg próf í fræðunum ásamt svona ör-ritgerð sem ég sendi til kennarans áður til kynningar....synopsis.

Þessu er lokið. Senn hefst ný önn, með fyrirheit um breytt vinnulag og öðruvísi ástundun,
er maður ekki alltaf að læra.....já já það er nú líklegast....kallinn....

Kristinn fyrv.prófskrekkur

sunnudagur, janúar 15, 2006

Dagmar Ósk, 15.janúar 2006

Það er nú bara svo, já Meistarinn afmæli dag, hver veit nema maður ýti bókunum til hliðar og einbeiti sér að afmælisbarninu. Hún er óbreytt að sjá í háttum og hegðun, þannig að aldurin virðist ekki breyta miklu. Og síðan er hún líka með yngri manni, þannig að ekki getur hún nú yngt upp hjá sér....eða hvað.....já hún er tveimur árum eldri sem er umtalsverður munur.....jæja það er best að reyna að vera góður í dag.

Kristinn Veislustjóri.

föstudagur, janúar 13, 2006

Afmælismatarboð.

Fórum í gærkvöldi til vina okkar, Dorit og Torben buðu í mat. En Dorit átti einmitt afmæli núna 11.janúar, svo rætt var um að bjóða þeim í köku hingað á sunnudag en þau okkur í mat. Þessu var nú slegið saman. Fyrirvinnan skellti í köku og við örkuðum yfir. Sátum í góðu yfirlæti í nokkra tíma. Fengum fína steik og rauðvín sem ég sjálfur hafði valið. Já allt gekk í sóma.
Og hún talaði um að halda uppá næsta afmæli á Íslandi......

Anna Marín hefur hækkað um "gæðaflokk" í sundinu, sem þýðir að nú virðist vera hætt að leika sér helminginn af tímanum. Enda kvartaði hún mikið og sagðist uppgefin þegar hún kom af sundæfingu í gærkvöldi. "Og við fengum ekkert frjálst" sagði hún. Við erum hinsvegar himinlifandi að nú fái hún kanski svoltítið meira útúr þessu en áður. Og meiri alvara lögð í æfingarnar.

Axel Orri hefur mikið að gera í leikskólanum byrjaði í vikunni í leikfimi og tekur það mjög alvarlega. Hann var þó nokkru fyrir byrjaður að æfa sig fyrir leikfimina, og ekki minkaði það þegar fyrsti tíminn var búinn. Hann tók hér einn kvöldmatartímann í að sýna okkur hinum hvernig maður gerir æfingar. Sumt af þeim minnti reyndar frekar á gömlu góðu Mullers-æfingar...eða hann hérna hvað hét hann vaxtaræktartröllið hannn....Atlas...já.


Kristinn Vinzæli.

miðvikudagur, janúar 11, 2006

Geðvondur.

já það eru ekki glæsilegar fyrirsagnirnar þessa dagana. En það er nú bara eins og lífið sjálft. Já maður er eitthvað pirraður þessa dagana. En ég reyni að láta fara lítið fyrir mér, og flýg inní sólina. Og sný baki við skugganum. Já og svo bara grípur maður í góða bók, eða skólabók.
Og allt verður sem fyrr.

Lífið gengur sinn vanagang, fyrirvinnan í innkaupaferð í búðina í dag, ég í skólanum, en á heimleiðinni ákvað að taka vagninn....en hann keyrir akkurat ekki í dag samkvæmt laugardagsplaninu. Þannig að þegar ég kom útúr blaðsölunni við stoppustöðina þá sá ég afturenda vagnins....og þegar betur var að gáð....þá var það fimmtudagsplanið sem hann keyrði eftir....ég beið því í bara 45 mínútur eftir honum. En ég komst heim og það er fyrir öllu.

Kristinn Tímavörður.

mánudagur, janúar 09, 2006

Mæðulegur mánudagur.

Kynnti munnlega fyrir samnemendum mínum, verkefnið mitt til prófs. Hef undanfarnar vikur verið að vinna í því og útfæra. Og það bara ekkert annað en það að þeim fannst það óskýrt, málfræðilega snúið, óljósar háðar og óháðar breytur og tilgangurinn óljós. Gekk semsagt bara æðislega......þetta fór semsagt andskotans til. Afsakið orðbragðið hér. Það verður ekki meira skrifað í dag. Takk fyrir.

Kristinn Gjörsamlegageðveikur.

sunnudagur, janúar 08, 2006

Helgin.

Laugardagurinn fór í lestur, já það eru nú ekki margir á lesstofunni, þessa dagana. Mætti halda að menn lærðu ekkert í prófunum. Nema hvað ég mætti og sat frameftir. Svo það var fínt, og og lærði sitt lítið. Er einmitt að stúdera pólitíska spillingu í hinum ýmsu ríkjum heims en mestu spillingu, þar sem fólk borgar fyrir að losna við hraðasektir og umferðarljósa sektir er víða að finna. Búlgaría er með spilltustu löndum Evrópu og fleiri er hægt að nefna. Já og Rússland guðminneini.

Við höfum í nokkur ár haft hið svokallaða “Spilakvöld” sem á uppruna sinn og upphaf að rekja til Sólheima þó ekki í Grímsnesi. En þannig var að við hóuðum í bræður Dagmar, og frændsystkini þeirra úr Grindavík til að spila nokkur spil. Aðalega gekk þetta nú útá öl og snafsadrykkju en þó voru tekin hin ýmsu spil fram. Í seinni tíð hefur nú verið fámennt á spilakvöldunum, en í gærkvöldi var slíkt kvöld haldið á Íslandi. Og með nútímatækni þá tókst okkur hér í Danmörku að spila með í Popppunkti og Trivjal Pörsjút ...og áttum við stórleik. Við í fjarrænu sambandi í hljóð og mynd, sáum og heyrðum hina þátttakandur. Þetta var hinn besta skemmtun og tókst vel.

Þurrkarinn ónýtur tilkynnti fyrirvinnan í gærkvöldi, dagurinn í dag fór því að rífa þurrkarann í sundur og kíkja á tólið. En fjarri viðgerðarmönnum verður maður líkt og var með uppþvottvélinna að redda bara málunum sjálfur. Jú, jú urg og zarg í trommlunni og allt á leið til fjandans. En með yfirvegun og hugleiðingum um mekkanisma Þurrkans tókst eftir nokkur bölv að koma honum í lag. Hefur aldrei verið betri.

Kristinn Spilasjúki.

fimmtudagur, janúar 05, 2006

Óþekkt í drengnum.

Miðvikudagar eru frídagar fyrirvinnunnar, svo það var aðeins litið í búð í gærmorgunn og skiptum hitakönnu sem við fengum í jólagjöf, og völdum aðra í stíl við innréttinguna...nei ég segi sonnna... Síðan æddi maður sem öskrandi ljón á lesstofuna og settist við skriftir og lestur. Já gekk ágætlega og var frammá kvöld. Tók stætó heim og hossaðist í vagninum í þessar fjörtíuogfimm mínútur. Komst aðþví áður en ég kom heim að drengurinn hafði tekið geðvonsku-kast á systur sína og móður. Já hreinlega tapað sér kallinn....hann er soltið tæpur þessa dagana, en það er líklega álagið í leikskólanum, mikið að gera hjá honum eftir jólafríið og svona...nema hvað móðir hans sem er ávallt afar dagfarsprúð og óverulega vanstillt á geði. Tók sig til og tuktaði drenginn rækilega til. Gerði honum grein fyrir að svona hagaði maður sér ekki.

Það varð til þess að hann grenjaði ennþá hærra og meira að segja stappaði niður fótum. Hann var þegar í stað sendur sendur inní herbergi til kælingar. Kom skömmu seinna með ekka-innsogi og bað systur sína afsökunnar, og síðan móður sína sem bráðnaði við litla labbakútinn, með tár á báðum kinnum og svo ósköp, ósköp, lítinn og dapran eitthvað, elsku litli mömmusnúðurinn. (já það hefði ekkert verið gefið eftir hjá pabba hans sko...farðu bara að ryksuga eða eitthvað drengur hefði viðbrögðin orðið)

Ég spurði hann síðan hér í morgunn hvað hefði gengið á og svarið kom strax “Ekki neitt, allt fínt” og það var sama hvað ég ýjaði sterkt aðþví aðhann hefði tapað sér þarna í gær...hann kannaðist ekkert við það. Þangað til mamma hans sagði “viltu kannski ekki tala um þetta?” og það var málið. Hann var fljótur að segja nei við þeirri spurningu. Og óskaði síðan eftir að þetta yrði ekki rætt frekar. Og þar við sat.

Kristinn Uppeldisfræðingur.

þriðjudagur, janúar 03, 2006

Nú árið er liðið í aldanna....

Og nýtt hafið og allt komið gjörsamlega á botnlausa siglingu. Maður situr með öran hjartslátt á lesstofunni þessa dagana að vinna upp gamlar syndir, já amen á eftir því efni. Það kreppir að, prófin eru í janúar mánuði og skiladagarnir nálgast. Leikskólinn kominn í gang og skólarnir. Flestir hér á heimilinu fegnir að komast í rútínu á nýjan leik, útvera,vinirnir og leikir. Já nóg komið af hangiketi og andabringum. Annars fór hér allt friðsamlega fram um áramótin við vorum ennþá slöpp svo ekkert sterkara en íslenska maltið var drukkið það kvöldið. Jú tappi úr kampavíni flaug um miðnæti með sama stryrkleika og maltið. Og síðan eru það jólagjafirnar úr pökkunum, húsmæðra- og fyrirvinnuorlof á Íslandi í febrúar. Það er ekkert minna. Það held ég verði nú stemming í húsinu. Jæja áfram við lestur og skrif pólitískra hugleiðinga.

Kristinn Sveitti.

Counters
Web Site Counter