Ef það er ekki í hillunni....
Í morgunn fór neminn af stað í leiðangur, já það vantaði rafmangskapla til að tengja Kirkjukrónuna. Og nema hvað arkað í næstu byggingarvöruverslun. Og þar rambaði ég á hilluna með víraleiðslunum. En ekki var nú að sjá að til væri jarðtengdur kapall, svo ég snéri mér að afgreiðslukonunni, sem stundi ógurlega um leið og hún rogaðist með kassana af brettinu, þarna inní miðri búð og setti í hilluna. Enginn kúnni sjáanlegur, bara ég og hún. Við alein tvö.
Ég nálgast hana ofurhægt og læddi útúr mér “Góðann daginn, áttu nokkuð kapalsnúrur með þremur vírum?” og síðan brosti ég....og svarið fékk ég þegar í stað útúr tómat rauðu andliti afgreiðlsukonunnar. “Ef-þa-e-ekki-hilluni, þá erþa ekki til” og síðan hélt hún áfram að vinna. Nohhhh...hugsaði ég klassískt svar, svo þjónusturíkt, svo sjarmerandi.
Ég labbaði því aftur að hilunni og sá vírahrúguna, en enga jarðtengda, þannig ég hugsaði með mér, “allt í lagi ég kaupi bara tíu metra kapal, án jarðar”...svo nú fór ég aftur til afgreiðslukonunnar sem var komin langleiðina með að tæma af brettinu. Og það var ekki laust við að hormónalykt og vinnulykt hinnar rússnesku Olgu legði fyrir vit manns.
Reynslunni ríkari, varð ég ögn svona auðmjúkur í röddinni því ég sá strax að hún hafði hvorki fengið Kornflex eða Hafragraut þennan morguninn..og að auki verið skipað að tæma brettið góða...svo ég spurði bara “Hérna, áttu nokkuð kapal í minni rúllu en hundrað metrar, sko með tveimur vírum það er nefnilega allt í lagi, sko tveir vírar?” Og ég fann sjálfur þegar ég talaði að ég var raunverulega að ég senda henni samúðartón, og yfirvegun mín var mikil í von um að geta hjálpað henni í gegnum daginn.
Hún leit upp, og það vottaði fyrir svitadropa á vanga hennar...klukkan var nú átta mínútur yfir níu, og ég fyrsti kúnninn...sko...já og aftur kom svarið frá þessari elsku “ef þa er ekki í hillunni þá er það ekki til” Ég var svo hissa á svarinu að ég missti útúr mér “Ooog á ég bara þá að leita í hillunni” og jú ég viðurkenni að samúðartónninn var horfinn. Og það stóð ekki á svarinu “ Jááááááááááááááá” sagði hún. Uhummm...þessu átti ég nú ekki von á, tók á rás, labbaði uppað henni og sagði með karlmennskutón, höstulega, með fyrirlitningu, og reyndi að horfa niður á hana...(hún var aðeins hærri en ég) Og sagði “neheii, það held ég sko ekkki” og labbaði út.
Það vona ég að hana dreymi vel, og hún þjónusti mig bara betur næst, ég fyrirgef henni, við getum öll átt slæma daga......ég vona bara að hún verði rekin fyrir vikulok.
Kristinn Viðkunnalegi.

3 Comments:
Ef það sé ekki þarna þá sé það ekki til. Hvað skeði eiginlega fyrir þig, þú ert eins og amma sín.
(Kassadama í Húsasmiðjunni)
Kristinn það ná spara sér kapal í danska kirkjukrónu, kerti eru á góðu verði.
VaxAndi.
Bíddu var þetta ekki kertaljósa króna??? Hlakka mikið til að sjá mynd af herlegheitunum.
Vaxandi...þetta er bara landlægt, siðir sem Húsasmiðjan og Bykó hafa tekið upp eftir erlendri fyrirmynd..haldiði að sé. En á foreldrakaffinu í skólanum hjá AMK þá sagði einn pabbinn, það vantar nú ekki starfsmennina í þessar íslensku búðir en að þeir geri eitthvað það hef ég aldrei séð...glöggt er gezts augað.
Jóhanna....nei nei þótt rafmangið sé dýrt í Danmörku þá skellti maður sér nú á rafmagnskrónu, tja það er með öllu óvíst hvort það verði myndbirting...þú kíkir bara við.
Kv. Kristinn
Skrifa ummæli
<< Home