Menningarnótt í miðborg Kaupmannahafnar.
Föstudagurinn leið hratt eftir skóla og vinnu skunduðum við í fínpússningu og uppstillingu hér á heimilinu. Já stilla upp fyrir komu 50% fjölskyldumeðlima vora. Hér var tekið til svo spegla mátti sig í gluggum og gólfum. En fórum síðdegis til Kaupmannahafnar á Ljóninu. Hinsvegar komum við í Bílabúð Bjarna hér í Skanderborg og keyptum þjófavörn á stýrið. Já galvanizerað stálrör og tilheyrandi til að tefja glæpamenn Kaupmannahafnar við hugsanlegan stuld á Ljóninu. Keyrðum þetta á tveimur og hálfum tíma. Komum til Köben um sexleytið.
Fengum ljúfar móttökur hjá bróður Dagmar, Heimi og Írisi og Andra Marteini syni þeirra. Já föstudagur í næturborg Danmerkur. Um tíuleytið birtist síðan systir Írisar og sambýlingur hennar. En þau búa í Álaborg. Var nú bara spjallað og rætt um daginn og veginn.
Um tólfleytið var hinsvegar ákveðið að drengirnir færu í miðbæinn og litu á mannlífið. Anna Marín var í umsjá Írisar en ég fór ásamt þeim félögum í miðbæinn. Já það fór bara um mann fiðringur. Ár og dagar síðan síðast var litið á mannlífið. Var nú tekið eitt staup áður en farið var af stað, annað á leiðinni niður lyftuna, þriðja í miðbænum, fjórða á veitingastað, fimmta annarssatðar og síðan hætti ég að telja...ofaní Heimi bróðir Dagmar.
Copenhagen Jazzclubhouse. Einn virtasti Jazz staður borgarinnar. Þar skunduðum við inn og upplifðum sanna næturklúbbastemmingu Kaupmannahafnar. Já áttum góða stund þar framundir morgunn...svo að segja. Týndum síðan fljótlega okkar þriðja manni. Og eftir stóðum við, ég og Heimir. Rúmlega þrjú tókst mér að stela af Heimi, fatamiðanum, og ná í Ullarpelsinn hans í fatahengið. Og draga hann útaf staðnum. Fengum okkur pulsu og kók á Ráðhústorginu, ræddum um kosningarnar og hversu lífið væri ljúft. Röltum heim á leið. Og komum í íbúð þeirra Heimirs og Írisar ekki löngu síðar.....
Allt var hljótt og rótt. Andri Marteinn sonur hans sofandi, sambýliskonan og dóttir mín. Ég átti ásamt Önnu Marín að fá að gista í stofunni, en nú brá svo við að hún svaf í herbergi þeirra sambýlinga værum svefni. Neitaði nú Heimir að færa frænku sína um rúm, og sagðist hvergi sofa nema í sama rúmmi og ég í stofunni. Runnu nú á mig tvær grímur. Og ég fann hvernig ég andaði örar, og varð taugaveiklaður. Eins og yfir mig væri að hellast ólýsanleg örvænting. Hvað skyldi dóttir mín, sambýliskona hans og sonur halda, daginn eftir ? Tveir fullvaxta karlmenn í mjúkum rómatískum svefnsófa frá Ikea, saman tveir. "Nei, nei Hemmi litli" sagði ég..."viltu ekki bara sofa í þínu rúmmi kallinn". Hann hélt nú ekki. Og mátti ég sofa með þennan skeggbrodda, tattóveraða karlmann, mér við hlið heila nótt. Milli svefns og ótta um að hann gripi mig vaxtaræktar örmum og hvíslaði ástarorð í eyra mitt í stað sambýliskonunnar, vöktu ugg í brjósti.
Áfengisangann lagði um hvílustað oss. Og mér var órótt. Sofnaði þó fljótlega án þess að verða fyrir áreiti og vaknaði af værum blundi undir morgunn. Hann heldur því hinsvegar fram að ég hafi slegið sig létt í rassinn um miðnóttina og sagt "Mikið er gott að þú ert kominn Dagmar mín" en ég veit að það er lýgi...það er lýgi Heimir ég gerði það ekki.....
Núna svef ég áhyggjulaus umvafinn örmum minnar. Hún er kominn heim og sonur minn líka. Fjölskyldan er sameinuð á ný. Fleiri minningar frá Kaupmannahafn koma hér í vikunni.
Kristinn Svefnlaus í Sjálandi.

1 Comments:
Bara ein viðbót - Ímyndið ykkur 4 fullvaxta karlmenn sitjandi við borð á einum vinsælasta stað Kaupmannahafnar og allir kneifa ölið í stórum glösum utan einn.... hann situr með sitt glas og drekkur Cosmopolitan!! Og giskið, já giskið lesendur góðir hver það var sem hefur fengið viðurnefnið Cosmó!!? :-)
.... og jú - ég fékk víst klapp á bossann ... þótti það bara vinalegt :-)
Skrifa ummæli
<< Home