miðvikudagur, ágúst 25, 2004

Lokaflutningur frá Íslandi.

Nú er búið að funda stíft á heimilinu um fráganginn á íbúðinni og skúrnum. Nýbúinn Róbert sá sem keypti af okkur er fluttur inn, alsæll. Leigjandinn er farinn út alsæll,og allt er að verða klárt. Nú er maður kominn með langann lista yfir allt það sem ýmist fer á haugana, í geymslu eða til Danmerkur. Það hafa vitanlega verið mikil átök á þessum fundum um það hvað skuli fara t.d. í ruslið. Ég skil ekki afhverju ég þarf t.d. að henda gömlu glósubókunum mínum frá grunnskóla og háskólaárum. Afhverju má maður ekki bara eiga þetta. Og afhverju þarf ég að henda gömlum blöðum frá Alþýðuflokknum. Ég á t.d. nokkur eintök af því frábæra blaði Alþýðublaðinu…já það er tekist á um hlutina. Ég á líka nokkra hluti frá því ég var á sjó á Bíldudal og í frystihúsinu. Já hlutir sem hafa tilfinningalegt gildi fyrir mig. Hlutir sem ég get handleikið og skoðað einn með sjálfum mér og hugsað um liðna tíð. Þetta er partur af sjálfum mér, hluti af sjálfinu. Það er t.d. þarna gamalt flotholt, svona appelsínugult,gamalt útvarp, klukka, tréhilla, lukkutröll úr leir og bara ýmislegt dót…sem bara ekki allir sjá gildið í.

Ég verð örugglega hálfskælandi yfir því sem ég þarf að henda, vegna þess að Dagmar hefur líka fyrirskipað að ég verði að senda skýrslu á tölvutæku formi og helst stafrænar myndir á netinu til hennar. Því hún ætlar að fylgjast með þessu. Ég hef þó komið með þá hugmynd að við ættum bara að taka sem mest af þessu til Danmerkur og selja síðan hér á Flóamörkuðum. Það hefur mér amk fundist nokkuð snjöll hugmynd….hún er EKKI sammála.

En svo gerðist það bara í gær. Að Dagmar sagði…”það er allveg ljóst að ég verð að hafa minn fulltrúa við þessa tiltekt, annað kemur ekki til greina” og hún hefur ákveðið að móðir sín verður þessi fulltrúi….jahérnahér detti mérnu allar vonandi steindauðar...úr höfði...ég benti henni nú á það að faðir hennar yrði mér nú innanhandar með þetta allt saman. En þá kom svarið…”þú og pabbi, sko það er pottþétt að það verða fleiri að koma að þessu máli. Þið tveir…nei nei það verður ekki..ég á helminginn af þessari búslóð og fulltrúinn mætir” Þannig að nú er viðbúið að Frú Björg láti sjá sig í skúrnum….en það er bara fínt þegar öllu er á botnin hvolft…þær eru nú svo líkar í mörgu blessaðar mæðgurnar og hafa svo næmt auga fyrir ýmsum hlutum….(þá frekar hlutunum sínum en mínum)


Kristinn Pakkari.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Counters
Web Site Counter