föstudagur, ágúst 13, 2004

Ólánsdagur...fyrir suma.

Já föstudagurinn þrettándi er ekki leikur enn hjá öllum á þessari jarðkringlu. Það átti svo sannarlega við hjá kanínunni okkar. En hún var tekinn af lífi í dag. Já þá er hún farin yfir móðuna miklu til Nangiala, á vit feðra sinna. Sofnuð svefninum langa.

Það ríkir sannkölluð gleði hér í húsinu, allir eru svo dauð, dauðfegnir að vera lausir við hana, að það er engu lagi líkt. Jú jú maður mátti svo borga kirkjugarðsgjald fyrir þetta 200 danskar krónur. Eða rétt um 2400 krónur íslenskar. Sem verða dregnar af hinum formlega eiganda Önnu Marín þegar hún fermist. Já þetta verður skráð í bókhaldið og hér í dagbókina. Ævintýrið um kanínuna sem var hún þegar hún kom, en fór héðan sem hann, eftir að hafa reynt við hinn. Átt í samkynhneigðu ástarsambandi og tilburðum við hinn, sem fór í kjölfarið. (Sjá fyrri pistla.)

Hin opinber skýring gagnvart Axel Orra er hinsvegar sú að hún hafi þurft félagsskap við aðrar kanínur og hafði því verið farið með hana á kanínuheimili, þar sem margar kanínunar hittast rétt eins og á leikskóla eða hjá dagmömmu. Það er bara að þessi skýring haldi amk þangað til hann verður læs og getur séð þetta hér.

Föstudagurinn 13. varð því úrslitadagur fyrir Fredrik og þar með var hann allur.

Hvíl í friði....kanínuhanski.

Kristinn Útfararstjóri.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Counters
Web Site Counter