Þjóðvegur 66.
Já söngurinn um þjóðveginn bæði með Brimkló og KK kom uppí hugann þegar maður keyrði Þýsku hraðbrautina. Takmarkalaus hraði er nátturulega eitthvað sem allir verða að prófa. Og maður finnur fljótt hvar mörkin eru, með fullann bíl af krökkum með öskrandi Ljónið í fimmta....sonna kringum tvöhundraðið verður að vana...eða því sem næst. Nei annars meðalhraðinn á Ljóninu er þetta 150 til 170. En eins og áður hefur verið sagt frá þá stressast maður svo upp við að fá Bensa, Porscha,Ádí og Béemmvaffa við hliðina á sér að það er engu lagi líkt. Maður stífnar í öxlum og einbeiting við að krúsa frammhjá gömlum Fíat Unóum, Almerum, Tojotum, Hondum, og Súsúkki verður í algleymi.
En svo gerist það.....eitthvað óvænt gerist. Ég var neyddur til að slá aðeins af eftir að hafa verið á þessum ógnarhraða, fór niður í okkar danska hraða þetta 110 til 130. Og það var ekki að spyrja aðþví Meistarinn hrökk við, “hvað er Kristinn, hvað er að gerast, eitthvað að” ég hægði á bílnum jafnt og þétt og keyrði á eftir gamalli Hondu. Og meistarinn spurði aftur “hvað erum við stopp, afhverju ætlar þú að stoppa?” Loks fékk ég tækifæri til að segja henni að málið væri nú bara það að ég ætlaði aðeins að hvíla mig og keyra þetta á 130 kílómetra hraða hvort það væri nú ekki í lagi. Meistarinn fussaði og sveiaði fannst sem við færðumst bara ekki fet úr stað, allir bílar frammúr okkur. Nei kallinn minn ekkert droll...ég mátti snarast aftur í þetta 170 til að henni fyndist við ekki vera stopp....já það hefði nú einhverntímann verið kvartað undan hraðakstri. En það var nú ekki á Þjóðvegi 45.
Kristinn Schumakker.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home