þriðjudagur, apríl 25, 2006

Dagarnir líða....

Þá er rétt að rifja upp staðreyndir, Axel Orri er ennþá með hlupahjólsbólur en það hefur snarlega dregið úr einkennum. Svo það ætti að fara bresta á með útivist og leikjum fljótlega. Það styttist í annan endann námið hjá mér, og próf á næsta leyti. Magasárið hefur þó ekki opnað sig ennþá en það kemur að því. Meistarinn er á fullu í vinnu, og hefur verið nóg að gera líkt og fyrr. Einn starfsmaður hefur þó hætt störfum á stofunni og leit stendur yfir að þeim næsta.

Nágrannarnar okkar eru farnir að sjást með morgunkaffið útí görðunum sínum. Og sólhúsgögnin og garðverkfærin hafa víða verið tekin fram. Sá einmitt sl. sunnudag, einn nágranna okkar arka af stað með sláttuvélina. Það er líka farið að hlýna töluvert frá því sem verið hefur.

Við teljum þó niður dagana þangað til við förum í sumarfrí og hittum góða vini. Við hlökkum mikið til og það verður kærkomið. Máttur veraldarfefsins gerir það að verkum að nú höfum við skoðað ljósmyndir.....úr lofti af næsta áfangastað sumarsins. Gúggúl Örð (google earth) er magnað forrit sem maður getur sótt fríkeypis á netið. Og fundið ljósmyndir af hvaða húsi sem er hvar sem er í heiminum. Þannig að ef þú hefur forritið skal ég senda þér staðsetningarpunktin okkar hér í Danmörku. Og þú sérð húsið okkar úr lofti.

Kristinn Sól.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Counters
Web Site Counter