föstudagur, apríl 07, 2006

Helgarpistill – Portúgalinn.

Síðasta föstudag fór í ég í boð til eins of prófessoranum sem ég hef, ásamt öllum hópnum. Jú hún bauð heim til sín í miðbæ Aarhus. Það var sko fróðlegt og skemmtilegt. Þanngað mættu semsagt bæði hinir dönsku stúdentar og síðan skiptinemarnir. Allir komu með eitthvað með sér á veisluborðið og drykkjarföng..hver fyrir sig. Ég kom með Danskar úrgangs-kokteil-puulsur og sósur og síðan eina létta Rauða svona til að grípa í. Þarna voru Þýskarar, Tyrkir, Portúgalar, Frakkar, Ítalir og Danir og Ég.

Urðu nú allir málglaðir nokk er leið á kvöldið en um miðaftan þá sagði Prófessorinn að nú yrði myndasýning. Tók hún bara ekki fram gömlu slædsmyndavélina sína, og ég fékk svona tilfinningu eins og ég væri staddur í jólaboði. Þannig að ég sturtaði góðum slurk í glasið. En það voru nú ekki jólalegar myndirnar hjá Prófessornum því þarna voru þá myndir frá ferðalagi hennar og eiginmannsins til Írak, á valdatíma Saddams Sjálfs. Þar sem hún í gegnum kíkuskap hafði fengið Sendiráðsbifreið dana til afnota, þvi engir ferðamenn fóru um þessar slóðir. Og það var nú heldurbetur frásögn og myndir jeminn eini.

Nú leið á kvöldið og að lokinni myndasýningunni þurfti að færa matarborðið aftur á sinn stað, en þar sem allt hafði nú færst úr stað var skyndilega rauðvínsflaskan mín kominn á annan endann í stofunni. Og blasti hún nú við Portúgalanum Palladínó. Palladínó hafði ákveðið að koma bara með einn bjór sem hann var lauungu búinn með og nú langaði Palladínó í eitthvað meira. Þannig að hann tók bara rauðvínsflöskuna mína og hellti sér góðan slatta í glas. Ég var orðlaus.
Palladínó sat þarna við hlið Olgu, Þýskrar stelpu sem kom frá stærsta bjórhéraði í Þýskalandi en henni finnst bjór mjög vondur. Og sætir víst einelti vegna þessa í heimabæ sínum(hún sagði þetta). Nú nema hvað skyndilega segir Palladínó ”heyrðu þú drekkur ekki bjór, viltu ekki bara fá þér rauðvín?” ”...tja ha hum” segir Olga og bætir við ”átt þú þetta rauðvín?” Palladínó var nú ekki lengi að svara og sagði svellkaldur eða sjóðheitur ”Hva, þetta er bara hérna fáðu þér bara” Hún tók sopa úr glasinu hans, gretti sig og sagði þetta vont rauðvín, ”hva ekki svo” heyrði ég Palladínó tuldra....En nú varð skyndilega Olga flóttaleg og fannst eins og verið væri að fylgjast með sér. Og jú mikið rétt, ég bæði horfði og hlustaði á þetta allt saman.

Hún brosti til mín aumingjalega og skyndilega horfði Palladínó til mín líka. Og þá gat ég ekki haldið aftur að mér og sagði ”Bíddu, getur verið að þú sért að bjóða henni rauðvínið mitt?” Og ég sá að Palladínó var nokkuð brugðið. Ekki bara það, að á milli okkar sætu átta manns sem hlustuðu heldur beindust núna auga þeirra að Palladínó, varð nú fátt um svör....svo ég bara varð að taka þetta aðeins lengra...Og sagði við hann ”ertu að stela rauðvíninu mínu og bjóða síðan fleirum?” Palladínó var nú greinilega farið að líða þónokkuð illla...og þá skyndilega í sömu andrá mundi ég eftir stórkostlegu ævintýri og sagði ”það er nefnilega þannig að stolið rauðvín smakkast verr en keypt” Og þarna fannst mér ég nátturulega allveg hljóma eins og snillingur vitnandi í helstu bókmenntasögur heimsins.

En Palladínó frá Portúgal hafði greinilega ekki lesið þetta ævintýri....og því sagði ég bara við hann svona í lokinn ” Heyrðu þú ert orðinn eldrauður í framann, þú bara roðnar við þetta allt saman”.....Þá fyrst stundi Pallódínó upp orði og sagði ”tja ja, ehemm....já þetta er mjög vandræðalegt ég ætlaði ekki að stela.” Það sem eftir lifði kvölds snerti hann ekki glasið sitt (með víninu mínu) og það blasti við honum allt kvöldið sem áminning um að það er ljótt að stela frá Kristnum mönnum.

Kristinn Sprúttsali.

3 Comments:

Blogger Herdís said...

Það er greinilegt að Potúgalar líða fyrir að lesa ekki hin merku bókmenntaverk sem haldin eru að okkur Íslendingum frá blautu barnsbeini. En ég ætla rétt að vona að skandinavarnir í veislunni hafi náð þessari frábæru og viðeigandi tilvísun.

3:25 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Takk fyrir þetta Herdís.
Nákvæmlega..já skandinavarnir kímdu...en Danirnir lesa nú ekki mikið horfa meira á vídeó held ég....þú skalt aldrei fara til Portúgal því þetta eru allt þjóðfar held ég.

kv.
Kristinn

10:07 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Við skulum virða Portugal og portugali og fyrirgefa þeim misgjörðir þeirra. Það er rétt að þið ólestnu og heimóttalegu fáið að vita að þessi þjóð kemur svo sannarlega við sögu bókmennta-arfs vors þar sem eitt mesta meistaraverk sem samið hefur verið á íslenska tungu af Jónasi Svafár hljóðar svo: HANI GALAR Í PORTI - PORTUGAL.

12:45 f.h.  

Skrifa ummæli

<< Home

Counters
Web Site Counter