föstudagur, mars 17, 2006

Helgarpistill.

Ég var ekki fyrr búinn að segja aldraðri móður minni frá því í netspjalli að Fuglainnflúenzan væri kominn til Danmerkur. Allt morandi í Fuglaflensu fuglum. Og kjúklingamarkaðurinn í uppnámi. Og viti menn í þeim töluðu orðum hnerrar Herra Axel Orri gríðarlega, telur sig slappann og legst fyrir. Og það er bara svo drengurinn er lagstur...með flenzu. Hann fór því snemma uppí, en í næturkyrrðinni heyrðist hann kalla á mömmu sína, fyrst og síðan föður sinn (mamma hans rumskar nú sjaldnast fyrst..held ég). Þar sem ég glaðvakna við fyrsta kall og stekk framúr rúminu, fálmandi í gegnum myrkrið að leita að syni mínum, þá segir hann mér að sér sé kalt og þurfi strax að pissa. Þar sem hann stendur við postulínið og lætur bununa falla í stellið, þá sé ég í næturhúminu að drengurinn er kominn með útbrot, útbrot sem ég kannaðist ekki við og hafði aldrei séð áður. Ég kalla þegar í stað í móður hans í gegnum svefnrofann, sem aðþví er virtist vera að dreyma sumarhús á Spáni eða drauma frá hitabeltislöndunum. Með Lúmax koddastimpil merki í andlitinu, staulast hún fram, þannig útlitandi að maður verður að koma sér beint að efninu, ekkert grín, ekkert fliss.. Ég segi henni því bara að koma inná klósett og kíkja á son okkar. Og það er ekki um að villast drengurinn er kominn með útbrot sem við höfum aldrei fyrr séð.....Ég kveiki þegar í stað á veraldarvefnum og inná doktor punktur dé ká, og lyfjabókina punktur is.

Móðir hans horfir þó nokkuð skelkuð gegnum svefnkraminn og píruð augun á son okkar og ég sjálfur er nokkuð stressaður yfir útbrotunum. Útbrotin voru hvítskellótt, og virtust koma útúr húðinni.....Og það sem kom okkur mest á óvart og gerði okkur nokkuð skelkuð, óttasleginn og sérlega áhyggjufull var að drenguinn var með útbrot sem líktust helst einhverum fulgseinkennum á hálsinum, bakinu og höndunum. Við höfum nú farið í gegnum allar vefsíður sem lýsa Fuglainnflúensunni og teljum næsta víst að hann sé ekki með hana. Þegar leið á morgunnin kom líka í ljós að einkennin sem sonur okkar hafði voru Fuglsfjaðrir sem höfðu komið útúr koddanum hans. Og fest sig rafmagnað á kropp drengsins. Hann verður því hvorki gaggandi eða kvakandi hér í dag. Koddinn verður saumaður um helgina, hann er bara með kvef og verður heima í dag.

Kristinn Doktor.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Counters
Web Site Counter