Afmælið.
Það er ekki laust við afmælisgleiðinni ætlaði seint að ljúka....enda hafa skrifin dregist frammúr öllu hófi....
Og hverjar voru síðan gjafirnar jú fyrst og fremst var það nú frá unnustunni...já búinn að suðu í áratug og rúmlega það...og seginn er sú saga...suða, suða og maður fær. Hljómborðið er komið í hús, já frá hinum heimsfræga framleiðanda JammaHaa. Ekkert minna en þeirra stærsta, besta og flottasta og tæknilegasta hljómborð sem framleitt hefur verið. Atvinnumannagræja sem notuð er af atvinnumönnum í faginu. Svo nú er bara að leggja inn pöntun fyrir tónleikum og skemmtunn ég syng líka með ef þess er óskað....ef hún leyfir....Svo það er heldur betur hægt að bregða á leik. Síðan komu hér kærkomnir sendingar sem notaðar hafa verið í ýmsar fjárfestingar þar á meðal vegna hljómborðsins og já eftilvill ljósmyndaprentara........
Já takk fyrir kveðjurnar þið sem þær senduð....hér vita þeir sem það vita, við hvern átt er við.....það vita þau.
Kristinn Eldri.

2 Comments:
Sæll frændi, pössuðu bleiku flókaskórnir ? Sá þig fyrir mér í þeim við hljómborðið.
G.L.
Sæl Gé og Ell...eða já ég veit ekki.
Maður á ekki flíka hlutum sem enga stoð eiga í raunveruleikanum.
Ég segi því bara
"Takk fyrir ekki neitt"
kv.
Kristinn
Skrifa ummæli
<< Home