miðvikudagur, febrúar 15, 2006

Svefnleysi.

Það fer ekki mikið fyrir nætursvefninum þessa dagana. Það er helst að maður detti utaf undir morgunn. Í nótt til dæmis hrökk ég allveg rosalega við, fann hvernig kaldur svitinn spratt fram, aleinn. Enginn nema ég til að stóla á. Það brakaði í einhverju og gott ef ég heyrði ekki brothljóð, kveikti öll ljós. Spratt upp í karatestellingu þarna í rúminu, tilbúinn að mæta því óvænta. Sá þá liggjandi á gólfinu, nefdropa glasið mitt sem ég hafði í gegnum svefn-mókið slegið niður, eftir að hafa sprautað í mig fjórum pústum.

Reyndi að sofna aftur en ætlaði aldrei að geta fest blund fyrir andrættinum í sjálfum mér, hávaðinn var gríðarlegur. Ég prófaði því að halda niður í mér andanum og reyna sofna þannig en það tókst ekki....ég datt svo út einhvern tímann undir morgunn..

Ég vona bara að ég sturlist ekki áður en þau koma heim, eins þeir þarna í Gaukshreiðrinu eða eins og geðgóði Vetrar-Hótelvörðurinn þarna í Sjæning myndinni.

Krystynn Svefnlaus.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Counters
Web Site Counter