sunnudagur, febrúar 19, 2006

Séra Mundi.

Ég hef kynnst nýjum vin. Já meðan fjölskylda mín var í burtu kynntist ég manni. Já sannkölluðum trúnaðar- og trúarvini, ég hef þekkt hann aðeins af afspurn en kynntist honum rækilega núna um helgina. Já það er enginn annar en Séra Mundi, sóknarprestur hér í Skanderborg. Hálfur íslendingur og ég veit ekki hvað og hvað.

Hann vissi af mér aleinum, slóg á þráðin og við ræddum saman lengi og ekki bara það heldur slóg kallinn upp heljarinnar mótttöku útaf afmælinu mínu um helgina, en afmælið verður sem alþjóð veit í næstu viku. Ég tók þetta allt saman uppá myndband og vonast til að geta sýnt ykkur Séra Munda á heimasíðunni okkar á þriðjudaginn.

Það er gott að eiga vini. Góðar stundir.

Kristinn Ekkialeinn.


ps. Þau koma heim á morgunn...ég búinn að þrífa bæði klósettinn og ryksuga stigann.

3 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Hvar er séra Mundi ?
Er hann ekki langafabarn séra Sigvalda ?

11:56 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Mikið dj.... er Mundi glær og þunnur. Kveðja frá Séra Jóni heitnum aumingja.

10:02 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Jú takk takk....Nei hann Séra Mundi man eftir okkur öllum. Þetta er allt að fara í gang á ný.
Maður er svona að jafna sig eftir kökurnar og meðlætið.

kv.
Kristinn

8:46 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home

Counters
Web Site Counter