Hætt í dansi og Axel Orri stóri bróðir.
Það eru stórtíðindi í dansheiminum, já það er ekki á hverjum degi sem stjörnunar segja skilið við stjörnuhiminninn, en það hefur gerst. Danskennarinn hún Marianne tilkynnti í kvöld að ákvörðun hennar og félaga Bjarne væri endaleg. Þeirra dansferli væri lokið. Hætt á toppnum sagði hún. Hún hefur verið danmarksmeistari í nokkur ár, og er semsagt eitt stærsta nafnið hér í bransanum. Þá er það búið. Einbeitir sér að kennslunni í staðinn og Show-bisness sem hefur tekið meiri og meir tíma segir hún.
Axel Orri hefur fengið þá ótrúlegu flugu í höfuðið að senn verði fjölgun í fjölskyldunni og úr því að verða fjögur þá verðum við fimm. Þessu trúir hann og hefur undanfarna daga rætt reglulega við aðra í fjölskyldunni um málefnið. Hann stefnir á að verða stóri bróðir fljótlega. Hvort hann hafi gert einhverjar ráðstafnir í netverslun einhversstaðar í heiminum, veit ég ekki eða hvað sé í gangi er óljóst með öllu. En það má ljóst vera að málið er mér gersamlega ótengt og kem af fjöllum...en verði þessi bróðir eða systir svört, þá má ljóst vera að einhversstaðar er pottur brotinn ég segi nú ekki meir.
Skólinn líður áfram og nú hefur prófessorinn í Alþjóðastjórnmálum ákveðið að bjóða bara öllum heim, já hvorki meira né minna. Allir nemendur velkomnir heim föstudagskvöld í spjall, öl og vín. Já þeir eru nú ekki sonna kumpánlegir íslensku prófessorarnir...
Kristinn Faðir.

5 Comments:
Hver á að verða stóri bróðir í þessir stórfjölksyldu sem þú tilheyrir. Það er skarplega athugað hjá syni þínum að það verður að vera hann, tæplega vera það bræðrasynir ykkar. Hann sonur þinn er skír í hugsun og áliktun.
Jú það er rétt, ég bara óttast að drengurinn sé heltekinn af ókunnum skygnilýsingargáfum og sé að segja eitthvað um eitthvað sem ég veit ekki.
Æii maður er alltaf svo áhyggjufullur yfir lífinu...hvað... eins og þessi krakki viti nokkurn skapaðann hlut ekki byrjaður í barnaskóla.
kv.
Kristinn
Ef sonur þinn er eitthvað líkur þér sem ég efast ekki um þó að ytra útliti sé hann líkari móður sinni, sem betur fer, þá efast ég ekki um að hann veit lengra nefi sínu. Það kæmi ekki að óvart að þessar vangaveltur hans eigi sér stoð. Aðgát skal höfð í nærveru sálar.
Athyglisvert...já eigi sér stoð og stoð ég var einmitt að kaupa Blútúð-prófið frá Apótekinu..þetta skýrist. En fegurðin kemur að innan þótt ég hafi fallið fyrir ytri fegurð móður hans.
kv.
Kristinn
Sæll frændi, vor ætt af öðrum ber og eigi eru margir jafn sætir í sér og þú þannig að afkomendur vorir þurfa engu að kvíða í gæfu eða gjörfuleika.kveðja: Númer eitt.
Skrifa ummæli
<< Home