Merrild er kaffið.
Hingað mættu í kaffi í dag allir helstu sölustjórar,markaðsstjórar og snilingar frá Danól heildverslun á Íslandi. Já það var kátt í koti hér í dag. Og skýringin jú Heimir bróðir Meistarans var svo himneskur að líta hér við og snúa sínum samstarfsmönnum hingað. Ég hellti að sjálfsögðu uppá kaffi, en áður en það gerðist......rétt fyrir klukkan níu í morgunn komst ég aðþví að ekkert kaffi var til. Ég hringdi í Meistarann og bað hana að útvega kaffi með hraði, tómur Merrrildinn væri á borðinu við hlið kaffivélarinnar.
Meistarinn nýkomin til vinnu, ég heima með flensuveikann son oss, orðinn taugaóstrykur yfir að yfirmenn kaffiheildverslunarinnar skyldu birtast hvað úr hverju. Nýkomnir af kynningar og söluráðstefnu frá höfuðstöðvum Merrild í Danmörku.
Meistarinn ók í gegnum Skanderborg á ljóshraða, í næstu verslun og leitaði að kaffinu, hringdi með angist í rödd og ekki laust við nokkra þrúgandi spennu.....ekkert Merrild kaffi til. Ég sagði henni að kaupa það sem til væri og koma heim...hún gerði það.
Mæta nú ekki allir kaffimeistararnir í hús, sveittur í lófanum býð ég uppá danska lagköku og kaffisopa....fyrsta spurning gestanna...”Jæja og hvaða kaffi er þettta nú?” ég teygi mig skjálfandi eins kúrreki teygir sig eftir byssunni...og án þess að snerta...bendi ég á tómann Merrild pokann og segi “tja þetta hérna bara sko” og það stóð ekki á viðbrögðum “Haaaa gettturþa verið, brúna Merrildið er þá eitthvað öðruvísi en heima” Ég hvítnaði í framann, skammaðist mín ógurlega fyrir að reyna svíkja gestina (eins og segjast bjóða upp Kók en hafa Spur-Kóla í glasinu) og sagði afsakandi að þetta væri bara BKI kaffi, en í sömu andrá hélt þéttingsfast í Merrild umbúðirnar sem ég sagði með áherslu að setti svip sinn á sérhvern dag, og væri okkar uppáhald. Þetta leit ekki vel út en mér var fyrirgefið.....ég sagði líka bara stax “Má ekki bjóða ykkur einn öl?”
Þeir fóru allir glaðir heim.
Kristinn KaffiLatteBaun

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home