Helgin sem var.
Anna Marin keppti í sínu fyrsta opna badmintonmóti hér í borginni. Og eftir að hafa verið sótburstuð, drullufúl, hroðalega pirruð næstum með tárin í augunum, hótaði hún að fara heim eftir sinn fyrsta leik. Jú hennar fyrsti leikur var nefnilega við eina sem er þremur árum eldri, og með fimm ára lengri ævingatíma í sportinu. Semsagt drulluburst.
Keppnin fór því ekki vel af stað það verður ekki annað sagt. En þegar leið á daginn og hún fékk tækifæri til að spila við jafnaldra sína þá kom nú annað hljóð í búkinn.
Í hádeginu var komið að tvíliðaleik, og viti menn, á verðlaunapall fór hún og sótti silfurbikar að launum. Vinkonurnar hinar voru nú ekki sérlega ánægðar með þetta, enda keppnisandinn þrúgandi á mótinu. Og var því örlítið dempuð stemming það sem eftir lifði dags í vinkonuhópnum. En það jafnaði sig síðla dags.
Ég fór sl. föstudag í boð til eins af prófessorunum, en hann það er sko hún. Hafði ákveðið að bjóða öllum á námskeiðinu heim. Hver kom með sinn réttinn og áfenga drykki til neyslu. Ég kom með sérstaklega hanteraðar kokteilpylsur úr gæðaúrgöngum hakkaðs svíns....og sá ég að allir boðuðu kokteilpyslurnar með bestu lyst....eina reynslu sögu á ég úr þessu boði...og kemur hún innan skamms hér í dagbókina. En ég komst að því að allir sem koma frá og búa og eru Portúgalar eru bölvaðir þjófar. Öll Portúgalaða þjóðin er allsekki nægilega settleg í sonna veislum.
Laugardagurinn fór síðan í gas-brennara-hitaleit en nú verður settur brennari á veröndina til að tryggja að maður geti setið úti með kaffið og koníakið í nóvember.
Kristinn Liðsstjóri.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home