laugardagur, apríl 22, 2006

Hlaupahjól eða bólur.

Axel Orri fékk nýtt hlaupahjól frá Ömmu sinni sem fór heim í gær. Hvort því er um að kenna að í dag fékk hann hlaupabólur er óvíst. Hann telur þó fullvíst að hlaupabólur stafi af því hvað hann hleypur hratt. Hann er svona mátulega brattur, hefur bólur á öllum þeim stöðum sem fullorðnum karlmanni í það minnsta geðjast ekki að hafa bólur á...en hvað um það.

Foreldrar mínir hafa nú lokið opinberri heimsókn sinni hingað sem tókst allveg glimrandi vel. Það er alltaf gaman að fá gesti. Nú tekur við enn eitt veikindatímabilið í lífi okkar, en það er að sjá hversu hratt Axel Orri rífur þetta af sér. Þetta var í gangi á leikskólanum fyrir mánuði síðan, og vorum við vona að hann myndi ná sér í þetta þá en gerði ekki. Nú er þetta komið. Í kvöld voru því lesin ljóð eftir Bólu-Hjálmar.

Meistarinn í vinnu í dag, með ungverska miðaldra konu sem ákvað að giftast Dana í dag, fékk tilheyrandi greiðslu. Tókst svona ljómandi vel bara. Sjónvarp og sælgæti í kvöld.

Kristinn Unglingabóla.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Counters
Web Site Counter