þriðjudagur, september 11, 2007

Axel Orri 6 ára.

Við vorum óróleg í maga og tókum róandi áður en gestirnir mættu. Bekkjarbræður Axels Orra voru hingað boðaðir í veislu. Sl. Sunnudag var haldið uppá afmæli drengsins, en dagurinn sá rétti er vitanlega 10.sept. Já hingað komu þeir allir sem einn og það var nú fróðlegt. Maður sá fljótlega hvernig samfélag sex ára er. Einn neitaði að koma inn og skilja við pabba sinn, stóð hér vælandi fyrir utan og þorði ekki inn. Ég sagði að þeir feðgar mættu allveg koma báðir....en það tókst ekki. Þeir hjóluðu einn hring og komu svo, samt var hinn nú kjökrandi áfram. Pabbinn fylgdi honum inní herbergi og hann hætti bölvuðu vælinu. Stuttur tími leið og hann var sá fjörugasti í afmælinu og neitaði að fara heim. Þegar við hentum þeim öllum út klukkan 1700. Þá hafði afmælið staðið síðan tvö. Við Anna Marín tókum að okkur skipulag og stjórnun leikja. Og vorum við gjörsamlega á fullu að finna nýja leiki...og þá kom uppí manni gamli skáta skrattinn....og við hlupum í skarðið...það þekkti þeir ekki en þótti fyndið...nema Jakob....þegar Jakob átti að hlaupa þá hvöttu hann allir og hrópuðu nafnið hans...skyndilega stoppaði Jakob og fór að HÁ-Há grenja...”ég vill ekki láta kalla nafnið mitt” Og þar með hætti hann í leiknum...við fórum þá í stórfiskaleik....Jakob náðist og átti að vera ‘ann...Jakob snar stoppaði og fór að Há, há grenja.....Við Anna Marín krossuðum okkur....svona hélt þetta áfram og Jakob náði líklega að grenja fjórum eða fimm sinnum áður en hann snautaði heim....grenjuskjóða....

Afmælið endaði í fjársjóðsleit í skóginum þar sem faðir afmælisdrengins klæddist skikju og góðum búning og hlóp öskrandi á eftir afmælisgestunum....og kastaði í þá eplum af eplatrénu okkar...það þótti þeim skemmtilegt.. Axel Orri var svona líka hrikalega ánæðgur með veisluna sína og spurði oft gestina hvort þeim fyndist þetta ekki bara vera kúúl veisla. Hann var glaður og við urðum það líka.

Kristinn ÖskrandiLjón.

2 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Til hamingju með drenginn. Sé að hann á sama afmælisdag og tengdafaðir minn heitinn og líka vinnufélagi minn hún Guðbjörg.
Getur maður leigt þig í leikjastjórnun í afmælum og öðrum gleðum??

11:26 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Sæl Helga og takk fyrir þetta.

Heyrðu já það er fjölmenni í kringum þig. En sko veislustjórn og skemmtanastjóri...þú getur nú heldur betur trúað því. Maður spilaði nú á dönsku jólahlaðborði hjá vinnufélögum Meistarans á síðasta ári...öll íslensku jólalögin og gott betur.
Svo endilega senda inn pönntunn.

kv. Kristinn

3:43 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home

Counters
Web Site Counter