7.júní 2007
Það er komin táningur í húsið. Ekkert öðruvísi vaxinn uppúr barnalegum huxunum og kjánaskap og táningurinn fullskapaður.....kannski.... Vöktum táninginn í morgunn upp með okkar fjölskyldu afmælissöng um hálf sjö, og færðum henni gjafir í rúmmið. Fuglasöngur og sól. Táningurinn gat farið í nýjum sumarkjól í skólann og notið dagsins.
Afmæliskortið samanstóð af myndum frá bernskuskeiði táningsins og það er það eina sem minnir mann á barnalega tíma eru myndirnar. Og breytingin er ótrúleg, bara á þremur árum hefur táningurinn gjörbreyst. En sumt breytist aldrei.
Kristinn FaðirAbraham

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home