Goggi mætir á svæðið.
Fór á sjálfann Djorgs Mækel með Meistaranum sl. Föstudagskvöld og þótti gott. Nei annars það skorti nú töluvert uppá að gæsahúðinn léki um allann skrokkinn. Þó tók hann nú svolítið af sínum bestu lögum, og sviðið var stórt og við stóðum í stöppunni með 33 þúsund öðrum. Ég er ennþá með "nasa-far" á hnakkanum frá þeim sem stóð fyrir aftan mig í troðningnum. Það var ákveðinn stemming. Svo það var náttúrulega upplifelsi að sjá Gogga svona með berum augum, og já bara skemmtilegt...en ekki nógu. Þannig að helgin fór í það sem Axel Orri kallar ”bjór-veiki” hann af einhverjum óskilgreindum ástæðum, telur að faðir sinn hafi fengið ”bjór-veiki” en ég þaggaði nú snarlega í honum og sagði honum bara að fara leika sér...hann gerði það. Fyrripart dags á tónleikadeginum kom hinsvegar einn af aðstoðarmönnum Gogga á stofuna til Meistarans og fékk lagningu.....viðkunnanlegur breskur fír...sem fór alsæll út og hefur vafalaust sagt Gogga frá Aros Hair. Nú, en það var notalegt að koma heim eftir tónleikanna það verður ekki annað sagt, tónleikarnir búnir um eitt leytið, þá var keyrt í rútu frá ”Wembley-Orhúss” og niður á höfn, þaðan löbbuðum við á brautarstöðina og þá var klukkan að smella í 02, við hlupum niður á bratuarpallinn og sáum þar afturenda miðnætur hraðlestarinnar renna frá....við misstum af henni. Sem þýddi að næsta far heim var klukkan 03 jeppp....líkt og aðrir flækingar og næturhrafnar biðum við á lestarstöðinni í klukkutíma og fórum síðan með hinum partýdýrunum af stað klukkan 03, komum heim um fjögur leytið.....hefði betur farið á bílnum.
Lítið gert í garðinum um helgina en grillað og notið veðursins. Það er búinn að vera löng helgi hér þar sem almennur frídagur var sl. fimmtudag, og þar sem bara einn vinnudagur var til helgarinnar þá voru margir í fríi bara líka á föstudeginum....svo við skólafólkið vorum heima.
Kristinn Mækel.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home