fimmtudagur, mars 29, 2007

Gamli tíminn.

Í gamalli kirkju langt útí sveit. Þéttsetin bekurinn með sálmabók í hendinni situr maður innan um sveitungana. Óþægilegur kirkjubekkurinn meiðir mann í baki og lærum. Bændur sem lykta af sérkennilegri blöndu af heyi, sveitalykt og Old Spæs. Kórinn stendur fyrir aftan kirkjugesti, kór sem ýmist hefur sungið við réttir,ættarmót eða virðulegar athafnir í kirkjunni. Það er sérkennilegur blær yfir öllu og maður finnur hvernig kirkjan og andrúmsloftið umlykur mann þar sem maður horfir í gaupnir sér. Og upplifir skyndilega gamla tíma, sem maður þó aldrei lifði. Langamma mín fædd 1901 var að kveðja. Frændi minn skrifaði: Hún hafði skap sem var meitlað aga og sjálfsstjórn, þó kom upp stríðni og kankvísi þegar færi gafst, en fáir komust að innsta hjartslætti auðmjúkrar konu er bar allt það sem að höndum bar með æðruleysi og íhugun.

Ég er smeykur um að mín börn, á tímum Pleisteisjón þrjú munu seint upplifa svo magnaða athöfn sem þessa á okkar tímum. Fyrir nokkrum árum sat ég nákvæmlega í þessari aðstöðu í kirkju langt útí sveit. Og allt í einu gerist það, kórinn sem fyrirfram næstum hafði verið dæmdur til að vera smáborgaralegur kór, sveitabænda hóf upp raust sína sem líkt og þrír hinir heimsfrægu tenórar kölluðu fram gæsahúð allra viðstaddra. Óvænt og útskýranlegt, þéttur samsöngur karlakórs, sem svo sannarlega kunni að fara með kvæðið. Allt passaði líkt og skipulagt atriði í stórbrotinni kvikmynd, andrúmsloftið, kirkjan, sveitin og umhverfið. Með ótrúlegri reisn,virðugleika og rómantískum blæ söng kórinn:

Blessuð sértu sveitin mín!
sumar, vetur, ár og daga.
Engið, fjöllin, áin þín
- yndislega sveitin mín!-
heilla mig og heim til sín
huga minn úr fjarlægð draga.
Blessuð sértu sveitin mín!

sumar, vetur, ár og daga.

Þeir sem þekkja lagið vita hversu angurvær melódían er og textinn í umhverfi því sem var á þessum tíma þegar söngurinn hljómaði var mögnuð upplifun. Það einfalda varð skyndilega svo rausnarlegt, svo konunglegt en samt svo einfalt og heiðarlegt.

Ekkert prjál, enginn tilgerð, bara svona. Það er best að vera bara ávalt maður sjálfur, alla leið.


Séra Kristinn.

2 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Ertu nokkuð með heimþrá??? Blessuð sértu sveitin mín??? Hvað er í gangi???

Didda föðursystir

12:52 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Sæl vertu...

ég dattútúr deginum og skrifaði þetta
asssko...heimþrá nei og er byrjaður að pakka á næstu stoppistöð...ég bæti þetta upp í næsta pistli...Séra Kristinn mæesss....

kv.
Kristinn

2:46 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home

Counters
Web Site Counter