þriðjudagur, júlí 03, 2007

Sumarfrí.

Já virðurlegir lesendur það er brostið á sumarfrí. Skólunum hér á meginlandi Evrópu er lokið og sex hundruð þúsund börn laus úr fjötrum skólakerfisins. Og það þýðir náttúrulega sumarfrí. Ég sjálfur held þó eitthvað áfram eða þangað til heimsókn í fyrirheitna landið brestur á. Já það verður nú í júlí mánuði sem það gerist. Og viti menn, atli maður gifti sig ekki bara í leiðinni. Ég hef fundið brúðina,prestinn og veisluþjónustuna. Svo það er ekki annað hægt. Hér á síðunni er brostið á sumarfrí en lesendum er boðið á myndaýningu í staðinn frameftir sumri.

Afmælisveisla í dag, fyrsta stóra veislan sem haldinn er í nýja húsinu. Breytti öllu í stofunni og setti upp diskótek fyrir heimasætuna. Inní stofunni voru 20 táningar sem dönsuðu sig inní sumarfríið. Allt í botni með drottni. Annars er maður bara brattur enda ekki annað hægt þegar lífið leikur við mann.

Góðar stundir.

Kristinn Góði.

1 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Herra ritstjóri - ég vill þakka þér að minnast ekkert á komu mína og minnar fjölskyldu til Skanderborgar frá 21-25 júní sl ... ekki ein lína! Þetta kallar maður að fá að halda "low profile" eins og fína og fræga fólkið.

4:00 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home

Counters
Web Site Counter