laugardagur, júní 24, 2006

Sumarfrí.

Jæja þá verður nokkur bið á næstu skrifum, ritstjórinn hefur ákveðið að taka sér frí frá ritstörfum um stundarsakir. Já sumarfrí með fjölskyldunni er hafið. Og í sumarfríi á maður að tala saman, já vera saman, og sinna blessuðu litlu börnunum saman. En yndislegt. Og láta ekkert raska ró sinni nema að setja aðeins meiri sólarvörn á bakið og rassinn. Já það er mikið framundan.

Við vorum akkurat í Sankti Hanz varðeldabáli með nágrönnum okkar í gærkvöldi, grillað og borðað úti. Góð stemming og vel mætt bara.

En allavega það eru allir að verða klárir og ekki laust við að óútskýrðir strumar spennu og eftirvængingar séu í loftinu. Það skýrist svo hvernig mál þróast. Gleðilegt Sumar og góðar stundir.

Kristinn Sól.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Counters
Web Site Counter