fimmtudagur, júní 22, 2006

Rotaður.

Já það er bara eins og maður hafi rotast gjörsamlega. Maður er svo upptekinn við að grilla og taka til að tími til skrifta hefur bara ekki verið til. En í gær fórum við nú ég og Meistarinn inn í Orhús og fengum okkur kaffisopa saman, já menningarferð á kaffihús. Sátum með latte-ið, hönd í hönd og horfðumst í augu, laus við krakkana. Löbbuðm síðan hönd í hönd um strikið og kíktum innum gluggana. Sumarfríið er bara að bresta hönd í hönd svo það verður snilldin ein gerir maður ráð fyrir.

Var að fara yfir flugskilmálana sem við þurfum að passa okkur á í komandi sumarfríi. En það er einmitt hægt að kaupa auka súrefni fyrir farþegana í fluginu. Ég hef svosem ekki allveg áttað mig á tilganginum, en gerir ráð fyrir að hinir farþegarnir bara kafni þá á meðann. Ég held samt ég kaupi bara svona litlar gasflöskur fyrir mína fjölskyldu til að hafa í fluginu...sá ódýrara gasflöskur í búðinni í vikunni....hef heyrt að þær geri sama gagn...það hýtur að virka svipðað og þetta aukasúrefni. Gas eða súrefni er þetta ekki allt sama tóbakið.

Jæja og svo nátturlega verður maður að passa að taka alls ekki neitt nesti með í flugið, það er allveg bannað og kemur skýrt framm á flugseðlinum hvorki þurrt né blautt. Það ku vera stranglega bannað. Þannig að maður verður bara að haga sér eins og hver annar fíkill á klóssettinu að háma í sig nestið. Það er víst betra að gleyma ekki bréfaruslinu á klósettinu. Ég hef því ákveðið að líma inná magann á mér fjórar túnfisksamlokur og einn djúsbrúsa. Síðan förum við bara í röð á klóssetið og borðum okkar nesti. Það verður EKKERT nákvæmlega EKKERT keypt í þessari ferð.


Kristinn Sparigrís.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Counters
Web Site Counter