mánudagur, febrúar 21, 2005

21.febrúar

Jón Baldvin á afmæli í dag og ég sendi honum hér mínar, bestu afmælis og heillaóskir.
Mér hefur alltaf fundist Jón Baldvin ákaflega heillandi og skemmtilegur maður. Og aldrei farið leynt með dálæti mitt á honum.

Um helgina fengum við okkur snakk meðan við horfðum á sjónvarpið. Eitthvað hafði þetta snakk nú beðið lengi í hillunni í búðinni því það bragðaðist ekki vel. Dagmar sagði því "þetta er nú ekki í lagi, þetta er bara gamalt snakk". Axel Orri svaraði til baka "já, við skulum bara gefa Ömmu Línu það"

Hvaða snakk eða kex til heyrir þessum degi og fellur í minn hlut kemur í ljós.


Kristinn Baldvin.

2 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Kristinn afmælisbarn!!!!!
Til hamingju með daginn, vonandi að hann verði þér ákaflega góður og eftirminnilegur.
Afmæliskveðjur frá þinni og þínum börnum.

7:54 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Innilega til hamingju með daginn Kristinn litli, eða Kiddi Cosmó - eins og við þekkjum þig best undir :-)

Njóttu dagsins og alls þess sem hann ber í skauti sér !!!!!

Hilsen úr Heilzubælinu,
Mozdal-fjölskyldan

5:30 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home

Counters
Web Site Counter