Dapurlegir Danir.
Ég varð nú bara að bæta við pistil dagsins...hér þegar klukkan er að verða hálfeitt á kosningakvöldi. Já maður sofnar nú ekki strax og sefur værum svefni. Það er óvíst hvað maður fær að vera lengi hér í Danmörku. Innflytjendur og útlendingar ja það er nú óþjóðalýður sem ólíklegt er að verði lengi hér um slóðir. Skattahækkanir og einkavæðing. Ja þeir fá það nú óþvegið danirnir...þetta hafa þeir kosið yfir sig. Og verði þeim að góðu.
Socialdemókratarnir...dapurlegt var það, stórtap. Formaðurinn Mogens segir af sér og það voru dramatískar ræður fluttar í kvöld. Já sviptingar hér ljótt er það.
Ég reyni bara að flýta náminu....eða þannig...
Kristinn Útlendingaskratti.

2 Comments:
Eru Mogens og Össur minnipokamenn ?
Það eru ekki alltaf jólin, pólutík er pólutík, líka hér í Danmörku. Kveðja frá Amain. P.s. nú er bara að bretta upp ermar.
Skrifa ummæli
<< Home