Aarhus Universitet.
Fékk í dag formlegt bréf frá skólanum. "Þú ert hér með innritaður í kandidatsnám í stjórnmálafræði". Já ég var nú búinn að fá vísbendingar um að þetta yrði nú samþykkt það er umsókn mín. En maður veit jú aldrei. Það er sérstök tilfinning að vera byrjaður aftur í skóla. Þetta er í raun óskrifað blað og maður veit í raun ekkert hvernig fer. Það eru þó tvö bréf sem maður bíður eftir. Bréfið sem ég fékk í dag um að nú væri ég innritaður og síðan hitt bréfið sem ég bíð eftir, þú ert útskrifaður. Það kemur vonandi síðar.
Foreldraviðtal í vikulokin á leikskólanum. Já fengum umsögn um unga íslendinginn Axel Orra. Hann vill fara sínu fram, vinnur svona stundum á sínum hraða. Flýtir sér ekki að borða, situr við allann tímann. En vill hugsa málin. Segir hinum krökkunum þegar þau biðja hann að leika. "æi nei ég nenni því ekki núna". Hann getur leikið við hvern sem honum sýnist. Honum er heilsað af hinum krökkunum og kvaddur. Það hópaðist um hann liðið þegar hann kom frá Íslandi, en hann nennti víst ekki að leika við alla. Þegar hann síðan útskýrir eitthvað fyrir gæslufólkinu, þá hættir hann ekki fyrr en þau skilja hann. Hann gefur sig aldrei ef þau skilja hann ekki í fyrstu atrenu. Ef tungumálið flækist fyrir honum eða vantar orð. Fer hann aðra leið og kemur málinu í gegn.
Í upphafi viðtalsins var hann vinsamlegast beðinn um að vera úti, forstöðukonan sagði við okkur að það væri ekkert gott að hann hlustaði á allt sem hún segði um hann. Hann skildi jú allt sem hún segði....hann var því rekinn út á meðan.
Helgin er hafin, hér er kvef. Axel Orri hóstar og hnerrar á víxl. Og maður verður að ská skjóta sér til hliðar ætli maður ekki að verða fyrir frussinu. Hann náði þó bæði móður sinni og föður í morgunknúsinu....þar sem komu tveir hnerrar, einn hósti og þrjú fruss....ekki gott. Anna Marín er komin á þann aldur að samhæfingin er fullkomin. Þegar hún hnerrar, hóstar, frussar...þá er hendinni brugðið fyrir. Það er af sem áður var. Dagmar í vinnu í dag, hóstalaus ennþá.....
Andleg íhugun og slökun, fyrsta heila skólavikan framundan, ný vinnuvika. Öskudagurinn í öllu sínu veldi, búningar og söngur.
Kristinn Horaði.

1 Comments:
þú manst að vera kurteis í skólanum Kiddi krútt, kurteis en ákveðinn, aldrei að gefast upp, ná sínu fram eins og sonur þinn, en kurteis umfram allt kurteis. Biðjast afsökunar þegar hnerrað er, ekki leysa vind í fjölmenni og þakka fyrir sig ef greiði er gerður. Þannig gengur skólagangan betur. Þetta er jú ekki grunnskóli eða þannig. Bestu kveðjur frá Amain.
Skrifa ummæli
<< Home