Salsa, sólskin og skólinn.
Jæja kominn heim sveittur eftir salsakvöldsins. Já tíminn gekk bara vel. Við vildum jú ekki byrja í byrjendahóp svo við skráðum okkur í framhaldshóp....já jú jú það vantar nú kannski eitthvað örlítið uppá en hvaaa...við æfum okkur nú öllum stundum heima og heima. Telja í 1, 2og3. Hraðinn er mikill og skemmtuninn umtalsverð. Anna Marín hefur ráðið sig í vinnu á meðan danstímunum stendur og stefnir held ég einna helst á Pleisteisjón með karókí.
Annars er það skóladagur á morgunn hjá Ritstjóranum, það verður mikil breyting og ekki laust við að maður sé kominn með fiðring í magann. Já það er langt síðan setið var á skólabekk en það gersit á ný á morgunn.
Helgin var róleg hjá okkur fjölskyldunni. Fengum hinsvegar góða gesti en frænka hennar Dagmar, hún Sigrún kom með fjölskyldu sína hér í miðdagsmorgunnkaffi. Þau voru á leið heim eftir helgarferð til Aarhus. Það var mjög skemmtilegt og fórum við með hefbundinn kynningarpistil um húsið og nágrannanna.
Kosnignarnar nálgast hér í Danmörku, og það eru kappræður hér í sjónvarpinu einmitt núna. En það er jú annað landslag hér en á Íslandi. Það er spennandi að fylgjast með þessu þótt að kratarnir standi nú ekki nógu vel um sinn....en þeir munu ná sér á strik áður en lokað verður fyrir kjörstaðina. Annars kom frétt í sjónvarpinu um fystu vorblóminn sem voru að gægjast upp. Glampandi sól í dag og milt veður.
Annars snýst umræðan nú um búningana....öskudagurinn nálgast sem óðfluga, drengurinn hefur ákveðið að fyrsti búningurinn hans verði Spædermann. En Anna Marín hallast aðþví að vera Andrés Önd. Ég hallast aðþví að vera ostur og Dagmar stefnir á að verða hártoppur eða kolla.
Kristinn nemandi.

1 Comments:
Öskudagstillaga. Þar sem KFÁ hefur til þessa ætíð slegið í gegn í búningavali á öskudag þá væri gaman á sjá hann ( takandi tillit til núverandi stöðu og fyrri starfa) sem SALSASKÓLAOST með gleraugu Kv : Amain
Skrifa ummæli
<< Home