laugardagur, maí 01, 2004

1.maí Verkalýðsdagurinn.

Þá er kominn hér 1.maí líkt og annarsstaðar. Dagur verkalýðsins, og það verður nú ekki annað sagt en við jafnaðarmenn höfum nú staðið
vörð um þann pakka alla tíð allstaðar. Jafnt á Íslandi sem annarsstaðar. Jafnaðarmenn eru stórir hér í Danmörku og reyndar á allstaðar á norðurlöndunum. Enda las ég það í blaðinu að jafnaðarmenn á Íslandi væru orðnir stærstir og myndu vinna kosningar þar, yrði boðað til þeirra. En mikið afskaplega er nú dapurlegt að fylgjast með tilburðum Davíðs Oddssonar og ríkisstjórnar hans, eins og nýlegt frumvarp um eignarhald fjölmiðla sannar. Það er þegar geðvonskan og hefnigirnin tekur öll völd þá er ekki að spyrja aðþví. Það er vonandi að þeirri ógæfu og geðvonsku linni. Og maðurinn drífi sig bara í útileigu ásamt ríkisstjórninni og þeim viðundursflokkum sem þar sitja.
Guð minn almáttugur ég segi nú ekki annað.

En að málefnum hér í Danmörku, Alfreð er hundurinn í næsta garði sem dyggir lesendur kannast við. Þetta er hvolpur sem er Franskur-Bulldog hundur. Nokkra mánaða og illa upp alinn. Nema hvað við vorum hér í garðyrkjustörfum í allann daginn í gær og svo í dag. En það var í gær sem dróg til tíðinda í garðinum. Við Axel Orri vorum að undirbúa að fara girða (okkur) um allan garð og birtist þá Alfreð í sínum garði. Alltaf jafn hávaðasamur og geltandi og vildi leika. Axel Orri sussaði hvað eftir annað á hundinn en hann lét sér ekki segjast. Svo fór að hann hoppaði uppá girðinguna í sínum garði og reyndi heiðarlega tilraun til að éta vinnuvetlingana hjá okkur félögunum. En það tókst nú ekki. Mikill skelfingarsvipur kom hinsvegar á Axel Orra sem líkaði ekki vel. Nema hvað hundurinn hljóp framm og til baka og gelti. Skyndilega fékk hann bolta útí garð og vildi ólmur fara að leika. Hann hljóp og djöflaðist um allann garð og við bara horfðum á. Svo kom aðþví að hundurinn hljóp inn (alltaf opið út í garð). Kemur ekki bölvaður hundurinn á gríðarlegum spretti hlaupandi með tusku í kjaftinum. Axel Orri hrópaði á föður sinn og sagði hundinn vera með eitthvað......kemur þá ekki ljós að hvolpsfíflið hafði hlaupið inn og beint í þvottinn hjá konunni og birtist nú með fjólublá brjóstarhöld húsmóðurinnar í kjaftinum....og það útí garði. Hlaupandi á eftir kom síðan húsbóndinn með prik í hendi, hentist á eftir hvutta og gerði sig líklegann til að ná haldaranum....hundur stökk til hægri og bóndinn til hægri, þá hundurin til vinstri osfrv. Hundurin virtist æsast þvílíkt við þetta allt saman og við feðgar gátum vart varist hlátri í næsta garði. Endaði svo að brjóstahaldarinn fór inn í höndum húsbóndans og eftir í garðinum sat Alfreð heldur niðurlútur....við héldum áfram vinnu okkar.

Fórum í morgunn í miðbæinn og ætluðum að láta smíða fyrir okkur lykil. Neibb ekki möguleiki hér er lykill úr masterkerfi, og því ekki mögulegt að smíða slíka eftirlíkingu. Svo nú verðum við að fara í leigufélagið og ræða við þá um nýja lykla. Það kemur í ljós hvaða vesen því mun fylgja. Fórum á bókasafnið og fengum Kardimommubæinn, Dýrin í Hálsaskógi og Ronju ræningjadóttur á geisladiskum, fyrir Axel Orra. Löbbuðum einnig aðiens um miðbæinn en fórum ekki í kröfugöngu nema í huganum. Flóamarkaður á torginu í miðbænum en frekar svona kolaportsstemming og ekki spennandi hlutir.

Nú er búið að girða garðinn og kanínurnar fengu að hlaupa frjálsar um blettinn. Það var mikil gleði og hlupu þær og hoppuðu. Það var mikill hraði á þeim svo við vorum allveg gapandi. En hafa verður á þeim gætur, Alfreð lét í sér heyra og vildi koma út að leika en fékk ekki.

Axel Orri aðstoðaði við uppsetningu á garð-netinu en hjálpin var nú aðalega fólgin í því að fikta í verkfærum föður síns, og svo fór að hann barði á puttann á sér með hamrinum. Og er nú nokkuð blár...en óbrotinn ömmur, óbrotinn....og ræddi hann þetta nokkuð mikið í matartímanum í kvöld.

Anna Marín var úti að hjóla með vinkonu sinni, en nú er svo komið að kennarinn hefur sagt við þær og við bekkinn þeirra að þær megi ekki leika svona mikið saman, þær eigi að leika líka við aðra krakka. Nokkuð sérstakt og óljóst hvernig á að framfylgja þessu. Maður gat nú látið sér segjast þegar maður átti að leika við hundleiðinlega ættingja sína eða gesti sem komu í heimsókn, þegar maður var 3ja ára....en 10 ára er þetta hæpið amk, teljum við foreldrarnir...en við sjáum hvað gerist.

Fékk í dag aukinn hraða á netinu úr 512k í 1024 fyrir sama verð, eða 299dkr. og ótakmarkað niðurhal ekki slæmt það. Enda er maður hættur að tala við fólk eða fjölskylduna maður sendir þeim bara meil.

Kristinn Fitt.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Counters
Web Site Counter