Axel Orri...3 dagar búnir.
Jæja ekki er hann nú sá kátasti yfir þessum viðskilnaði við móður sína á morgnanna. Það var í gær sem hann gargaði lítið eitt á eftir móðir sinni sem hélt sína leið. Sama gerðist í dag, hann svoleiðis ríghélt í móður sína að það lá við hárlosi hjá henni. Hann er hinsvegar fljótur segir Læla að jafna sig, og fer fljótlega að leika sér. En viðskilnaðurinn er erfiður. Hann hefur verið án bleyju hjá henni þessa daga og það hefur gengið vel. Hann skilur þegar hún býður honum að tissa svo það gengur flott. Hann hefur líka verið töluvert úti með henni en það finnst honum mjög skemmtilegt.
Hann hefur hinsvegar frá mörgu að segja og þarf mikið að ræða málin þegar mamma hans kemur að sækja hann. En hann er jafnframt mjög þreyttur þegar hann kemur heim. Á morgun mun hann vera frammyfir hádegismat og leggja sig hjá henni ef hann þarf þess með. Það svona smá lengist í þessu. En við því er ekki að búast að hann hætti að væla þegar móðir hans fer allavega ekki á næstunni sýnist okkur. En það er svosem ekki nýtt, hann var alltaf vælandi þegar hann var á leikskólanum....blessaður drengurinn.....
Eitthvað er að bætast við orðaforðann strax á fyrstu dögunum en hann kveður dagmömmuna á dönsku og er rogginn með sig.
Vinnufélaginn Morten sagði í dag að um helgina myndi hann setja fjölskyldubátin á flot á vatninu. Hann sagði að það myndi því styttast í það að við færum að veiða. En það verður frábært. Hann er í miklum bílahugleðingum og hef ég fylgst með því svona í fjarlægð. Hér virðist algengt að bílar séu keyrðir þetta allt uppí 35þúsund km á ári. Og notaðir bílar sem eru til sölu eru keyrðir þetta allt uppí 250 til 300 þúsund kílómetra. Eitthvað sem væri löngu dáið á Íslandi....en þessa bíla kaupa Danirnir.
Mikið að gera í vinnunni í dag, stór sending af gleri fyrir sólgleraugu kom í hús sem ég pantaði frá Japan á fyrstu dögum mínum. Svo það var nóg að starfa. Var svo þreyttur að ég nennti hreinlega ekki í dönsku tímann í dag. En ég bæti það upp með lærdómi bara...eða lestri blaða. Annars er félagi minn í dönskunni sem upphaflega kom frá Afganistann, en býr hér í nágrenni við okkur með konu og börn. Hann spurði í gær, afhverju ég væri í Danmörku osfrv. Hann fékk taugaáfall þegar ég sagði honum að við hefðum ákveðið að prófa eitthvað nýtt...hann átti ekki til eitt aukatekið orð, hló bara og sagði hvað eftir annað "Hold op man....eða..."Nei hættu nú allveg, nei nei hvað ertu að segja...." hann átti bara ekki til orð til að lýsa tilfinningum sínum um málið....og þegar hann vissi að ég ætti íbúð á Íslandi þá tapaði hann sér algjörlega.....Hann mun sennilega ekki prófa að skipta um umhverfi og prófa eitthvað nýtt, amk ekki í bráð.
Kristinn nýbúi.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home