þriðjudagur, mars 30, 2004

Sumarhiti og Víkingasýning.

Í dag var þetta fína veður, þau mæðgin gátu leikið sér úti á bol og peysu og skyndilega birtust allir íbúar hverfisins á lóðinni sinni eins og þeir hefðu allir vaknað úr dvala. Það var logn, heiðskírt og hiti. Íbúar borgarinnar voru ekki lengi að koma sér út, og sátu í öllum görðum. Þau mæðgin höfðu ekki við að ræða við fólk sem kom og forvitnaðist um hagi okkar ofl.....

Ég hinsvegar upptekin í vinnu að vanda...mig. Gekk fínt í dag en ég var á þönum í allann dag en það gekk nú bara vel. Missti af veðrinu en sá það útúm gluggann. Reyndar er mötuneytið þannig að á sumrin borða allir útá þaki á fyrirtækinu hádegismatinn sinn. Og drekka öl, en það er bannað inní fyrirtækinu eins og segir í Alkahólstefnu fyrirtæksins. Já það er í handbók starfsmanna sérstakur kafli um alkahólstefnuna ekki veitir núaf.

Víkinga-sýning í kvöld í skólanum hjá Önnu Marín, þar sem hún var uppáklædd og allur bekkurinn eins og víkingar til forna. Katahrine vinkona hennar og reyndar móðir hennar útbjuggu bara í leiðinni búning á Önnu Marín og alles. Þær fóru síðan í kvöld með kökur og fínerí í skólann þar sem Anna Marín var með upplestur og tókst bara vel upp. Gekk mjög vel og var skemmtilegt. Myndir af því fljótlega á síðunni okkar.
Ég og Axel Orri fórum hinsvegar heim. Hann var uppgefinn eftir daginn, var útí í allan dag. Fékk sér kvöldmat en óskaði fljótlega eftir því "að fá að leggja sig aðeins". Fékk "innpökkunn" í sængina og sofnaði ánægður. Mæðgurnar komu síðan heim um níu leytið.

Lauk við skattaskýrsluna í kvöld svo nú veit Geir um tekjurnar, ætti að vera sáttur.

Kristinn... alltaf með skatt og skæting.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Counters
Web Site Counter