Vinnufélaginn og nýr bílstóll í bílinn.
Fórum í þetta heljar kaffiboð til vinnufélags, hann Mortens sem býr í miðbæ borgarinnar í húsi sem var byggt 1850, hann hefur tekið það í gegn og er nú hið skemmtilegasta hús. Hann á kærustu sem hann ætlar að giftast í júlí, eitt barn og hund. Það var skemmtilegt að koma inn í orginal danskt heimili. Það var mjög fínt hjá þeim og vorum við langt frammeftir kvöldi að ræða málin. Við ræddum líka um starfsandann á nýja vinnustaðnum og svona hvernig starfsmannapólitíkin er..en það mál á ég eftir að kanna betur og læra inná.
Það er annað sem við veittum athygli og er ekki laust við að hafa verið svolítið pirrandi. Vinnufélaginn Morten og kona hans, hafa gengið í gengnum mjög erfiða hluti. í þeirra frábæru og huggulegu stofu, er ákaflega flott, stór ljósmynd í svarthvítu, af barni sem er nýkomið úr baði, strákur umvafinn í handklæði. Myndin er þannig að maður finnur næstum fyrir nærveru þessar litlu manneskju. Þetta er svona "ekta" mynd sem maður tekur af börnunum sínum. Nýkomnum úr baði. Þennan dreng áttu þau aðeins í 14 mánuði, hann fékk heilahimnubólgu og dó. Það eru núna tvö ár síðan hann dó. Þegar þau sögðu okkur frá því, fann maður hvað það verður erfitt og ólýsanlega flókið að ræða jafn viðkvæma hluti eins og um þetta og það á tungumáli sem maður hefur ekki full tök á. Þá fyrst verður það erfitt að vera ekki talandi á dönsku. Það eru mörg orðin sem koma uppí hugann sem maður vill segja en kann ekki. Að missa barnið sitt er reynsla sem enginn vill upplifa. Þau eiga í dag frábæra stelpu Emmu sem verður eins árs eftir tvær vikur. Og tók sín fyrstu skref í síðustu viku.
Í dag settum við barnastól í heimilisbílinn (hjól húsmóðurinnar). Axel Orri gríðarlega ánægður með að vera kominn loksins á fulla og fljúgandi ferð. Fyrsti hjólreiðatúrinn gekk líka svona ljómandi vel.
Kristinn.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home