laugardagur, mars 20, 2004

Atvinnuleit í Damörku.

Það er ekki auðvelt að fá vinnu í Danmörku. Af þeirri einföldu ástæðu að hér er vinnumarkaðurinn umtalsvert stærri en á Íslandi og atvinnuleysi hér er mikið. Það er því rétt sem sagt hefur verið að ætli maður að flytja frá Íslandi til atvinnuleytar þá er Danmörk ekki endilega besti staðurinn. Það verður að segjast eins og er þegar ég og mín fjölskylda hafði tekið ákvörðun um flutning. Þá glumdi þetta í höfðinu á okkur. Allir töluðu um erfitt ástand í Danmörku.

Svo upptekin vorum við af þessu þegar við komum að þegar við fyrst fengum sjónvarp, voru einu fréttirnar sem við tókum eftir, það voru fréttirnar um atvinnuleysið, uppsagnir og vandamál vinnumarkaðarins. Og í vonleysi og vandræðagangi, undir stöðugri presssu frá ættingjum á Ísalandi, hófst atvinnuleit nýbúanna hér í Danmörku.

Ég sendi líklega frá mér um 30 umsóknir á 2ja mánaða tímabili. Og það verður nú að segja um Danina að þeir eru sanngjarnir og sýna umsóknum einstaklinga langtum meiri áhuga en hægt er að segja um íslenskan atvinnumarkað. Það er þó hér í Danmörku að í svona 95% tilfella þá fær maður svar, frá viðkomandi....en svarið er í 98% tillfella neikvætt. " Þakka þér fyrir áhugaverða umsókn....en því miður höfum við ekkert starf laust"


Uppskrift af atvinnuleit
Það sem gildir hér í Danmörku er að ráðningar í laus störf eru í yfir 60% tilfelli ráðningar í gegnum klíkuskap. Það er auglýst en ættingjar, vinir eða þessi þekkir þennan...og hann er ráðinn í djobbið. Það er algengt að mikill fjöldi sæki um hvert starf, en líkt og heima og er stundað á ráðningarstofunum þar er nánast öllum ráðlagt að sækja um þrátt fyrir að hafa ekki eina einustu þekkingu, reynslu eða kunnáttu í starfið. Því þar gildir það er að segja á Íslandi að fá sem mestan fjölda svo ráðningarfyrirtækið geti fullyrt við vinnuveitendur "tja blessaður maður við fengum yfir 100 umsóknir".

Hér sækja margir um sem hafa þekkingu og kunnáttu til. En fá ekki endilega starfið, það er líka þannig hér að umtalsverður fjöldi þeirra sem eru atvinnulausir hafa engann áhuga á að vinna..en það er nú bara eins og á íslandi.

Atvinnuleit / reynslusaga:

Þegar maður kemur til Danmerkur í atvinnuleit, og hefst hana við að skrá sig í "samfélagið" er einn staður sem maður fer á en það er Arbejdsformidlingen sem er svona atvinnumiðlun ríkisins og sá staður sem atvinnulausir koma og stimpla sig inn og fá í kjölfarið atvinnuleysisbætur frá Sveitarfélaginu. AF rekur einnig atvinnumarkað um alla Danmökur á netinu www.af.dk þar skráir maður sig inn, fær númer og vottorð um skráningunga og hefur síðan atvinnuleytina.

Maður skráir einnig inn ferilsskránna sína og fer síðan að leita. Það finnur enginn neitt fyrir mann....strax.

Vinnumiðlun ríkisins = AF
Það er skrifstofa sem vinna 4-6 starfsmenn hér í Skanderborg. Þetta er allt ágætis- og geðgott fólk. En málið er að svo einhver aðstoð fáist við atvinnuleitina þá gildir að gera sig sýnilegan og láta í ljós áhuga sinn á að fá vinnu. Málið er að koma svo oft sem maður þarf, til að geta kastað á starfsfólkið kveðju, spurt það nokkuð reglulega svona um gang mála, hvort það viti um eitthvað, eða hvernig markaðurinn sé osfrv. Almennt svona hjal um allt og ekkert. Um leið og maður er komin með þetta á hreint, fara koma skilaboð frá starfsfólkinu um að "jú hugsanlega sé nú að detta inn þetta eða hitt, prófaður hringja þarna..."
Svona virkar þetta.

Það er hellingur að liði sem mætir á vinnumiðlunina en hefur engann áhuga að fá vinnu, eða hætta í vinnunni sem það er í og hætta að fá bæturnar. Hér er nefnilega algengt EINS OG á Íslandi. Að fólk vinnur "svart" og kemur reglulega í "atvinnuleit" en vill alls ekki fá vinnu. Þetta fólk er ekki að spjalla við starfsfólk atvinnumiðlunarinnar :-)

Einn góðan veðurdag ertu komin í "klíkuna" það er hringt í þig frá atvinnumiðluninni frá starfsmanninum sem þú hafðir náð þokkalegu sambandi við og hann segir " Heyrðu það er starf sem ég veit um að er að losna, ég sagði honum frá þér hringdu í hann"

Svoleiðis var þetta hjá mér og ég hringdi, mætti og fékk vinnuna.

Gamall vinnufélagi minn, sagði mér sem hafði flutt til Svíþjóðar í sömu erindum og ég geri nú "Þeir fiska sem róa" en það á svo sannarlega við hér í atvinnuleysinu í Danmörku.

Ekki meir um atvinnuleit í Danmörku en ef þú vilt frekari ráðgjöf, eða upplýsingar :-)
sendu mér línur: kristinn@c.dk

kv. Kristinn

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Counters
Web Site Counter