fimmtudagur, mars 25, 2004

Uppgefinn eftir vikuna.

jæja nú er orkann lítil, þetta hefur verið nokkuð strembið sem af er vikunni, ekki aðeins líkamlega heldur andlega líka...já maður er líklega að snapppa.....nei nei sennilega ekki. Vinnufélaginn, Morten hélt í dag að ég væri orðinn veikur, svo einbeittur var ég í verkefninu, en ég var fljótur að segja honum að það væri nú ekki.

Nú styttist í fyrsta sumarboðann hér í Danmörku en nk. laugardag verður klukkunni breytt, og færð framm um eina klukkustund. Enda er orðið albjart hér klukkan 6 á morgnanna. Svo það verður mjög gott. Eitthvað sem hefði fyrir löngu átt að endurupptataka upp á Íslandi.
En eins og glöggur lesandi benti á var sumar og vetrartími á Íslandi. En það gerðist nú fyrir mína fæðingu.
Húsmóðirinn hér hugsar um og skoðar bæklinga hvaða lauka við ætlum að setja niður, og hvort það verður sett banana, epla eða jarðaberjatré í garðinn. Um það er tekist á um þessa stundina. Axel Orri átti slæman dag í dag, vaknaði sem geðvondur fýr, og hefur ekki verið í sínu besta formi. Hann hefur sofið illa blessaður.

Styttri dagur á morgunn en venjulega. Unnið frá 8:30 til 15:30 ...og síðan er bara vinnufélaginn búinn að bjóða helefamilíenn í síðdegiskaffi á morgunn. Það verður spennandi að sjá og heimsækja orginal dani og þiggja veitingar. Það verður spennandi.

Kristinn Silúett (hver man ekki eftir "Silúett á Íslandi, silúett svo kom eitthvað....sem ég man ekki)

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Counters
Web Site Counter