Nýr tími.
Í nótt gerðist það sem við vorum farin að undirbúa. Í Danmörku er klukkann nú 2 klukkutímum á undan hinum Íslenska.
Já það var stór stund í eldhúsinu að breyta klukkunni um einn klukkutíma, án þess að vera koma úr flugvél eða aðhafast
nokkurn skapaðan hlut..bara lifa hinu erlenda lífi.
Danmörk tók upp sumartíma 1980, en það var 1996 sem hið sama gerðist í öllum Evrópusambandslöndunum.
Nú fer fjölskyldan klukkutíma fyrr að sofa. Það verður nú líklega ekki mikil breyting, hér er
stjörnubjart á kvöldin og klukkan sex á morgnanna er orðið albjart. Í dag er milt veður 10 stiga hiti og lítilsháttar gola.
Fjölskyldan ætlar að taka sér hressingargöngutúr um hverfið. Og undirbúa gönguferðir næstu gesta.
Góðir gestir eru væntanlegir um helgina. Það er á sunnudaginn nk. Foreldrar Dagmar koma þá og einnig hinn
geðgóði bróðir hennar sem býr í Kaupmannahafn. Og með þeim öllum kemur síðan hin magastóra verðandi móðir,
kærasta Heimirs, Íris (en þau eru í sambúð og barn þeirra mun fæðast innan skamms.. í þó nokkurri synd...var þetta
steinn úr glerhúsi sem fór hér um ..)
En það er einmitt Heimir bróðirinn í Kaupmannahöfn sem hefur sagt okkur allar sögurnar um lífið í Danmörku, og
lítið sem ekkert af því virðist passa...en þar sem hann getur ekki svarað fyrir sig nefni ég ekki dæmi um þetta strax
en það kemur að því. Við erum nefnilega ennþá að upplifa sannleika sögusagna Heimirs.
Kv. Kristinn.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home