föstudagur, apríl 02, 2004

Matarboð og vikulok.

Jæja þá er þessi vikan liðinn. Það hefur nú heilmikið gerst eins og sést á pistlum vikunnar. En í dag lauk þessari vinnuviku. Næsta vika verður skemmtileg hér í Skanderborg, þar sem foreldrar Dagmar verða mættir hér. Það verður því sannkölluð íslendingavika hér nú. Töluð íslenska í öll mál. Það verður mjög fínt....svo er aldrei að vita hvort það leynist páskaegg í töskunum....það halda amk. börnin þau tvö elstu d+k.

Við fórum í matarboð í kvöld til dönskukennarans, Dorit. En hún og eiginmaðurinn buðu í lasjanja...öl og rautt. Svo það var bara fínt. Heilmikið spjallað. Axel Orri var nú orðinn ansi þreyttur undir það síðasta og vildi fara heim, við fóum um hálfsex leytið og komum heim rúmlega tíu. Ræddum um Danmörku og Spán en þau hafa búið á Spáni í 4 ár en fluttu aftur til Danmerkur fyrir 9 mánuðum síðan. Þau eiga heima í sömu götu og við. Þau hafa einstaklega hjálpleg við okkur nýbúana.....og hafa sannarleg ýtt undir og aukið hraða okkar við að læra dönskuna. Fyrir utan það að hafa skrifað nýja ferilsskrá á dönsku fyrir mig.

Nú erum við að leggja lokahönd á undirbúning gönguprógrammsins sem við bjóðum uppá í Skanderborg. Gestirnir eru væntanlegir nk. sunnudag og verða rétt tæpa viku. Það verður skemmtilegur tími. Við hugusm hinsvegar um að vökva trén, Epli og Pera standa hér útí garði. Flestir nágrannarnir eru búnir að setja út garðhúsgögnin sín. En hann Svend Mogensen nágranni okkar hér var einmitt að koma með í dag borð og stóla fyrir framan húsið sitt í dag. (hann býr við hliðina á okkur).

Hér segja þeir í veðurfréttunum að búast megi við "frískum vindi síðdegis" sem þýðir í raun hávaða rok, hér er sjaldnast logn, það er amk. undantekning ef það er. En svona er þetta það lægir vonandi með sumrinu.

Vinnuvikan liðinn, í dag tók ég einn túr um fyrirtækið og fékk upplýsingar um þá tækni sem fyrirtækið notar til að lakka, slípa og útbúa gler fyrir gleraugnaverslanarnar. Í handbók starfsmanna er fjallað um trúnað um framleiðsluna og því get ég ekki skrifað meira um það hér ha ha ha ha . En hinsvegar get ég sagt að við notum vatn, til að hreinsa gler, og þetta vatn fer í gegnum ákveðið ferli sem verður til þess að það verður 100% dauðhreinsað, það er hvorki korn né einasti skítur í þessu vatni. Tærasta vatn í heimi. Vatnið er þannig að þegar maður lætur það renna á hendina á sér..virkar það eins og það sé þurrt. Já hvernig hljómaði þetta.... ha hummmmm...Vatnið er þurrt. Það er ekki hægt að lýsa þessu öðruvísi.

Kristinn...... á ennþá eign í Heimahverfinu.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Counters
Web Site Counter